Czytaj książkę: «Steindrekinn»

Czcionka:

Steindrekinn

© Andrew Davidson, 2009

Bókin heitir „The Gargoyle“ á frummálinu.

© Katrin Agency, 2013

Íslensk útgáfa: JENTAS ehf., 2013

Þýðing: Sölvi Björn Sigurðsson

© kápa: Katrin Agency, 2012

Hönnun kápu: Jentas ehf.

ISBN 978-9979-64-213-8 (epub)

Samningar er varða verk höfundar, þýðingu, kápu og útlit texta og notendarétt á þeim eru í eigu © Katrin Agency.

www.jentas.is

www.isfolkid.is

www.galdrameistarinn.is

JENTAS gefur bókina út á íslensku og dönsku.

Öll réttindi áskilin.

Bók þessa, eða hluta af henni, má ekki afrita með neinum hætti, hvorki með ljósmyndun, prentun, hljóðritun né á annan hátt, án skriflegs leyfis útgefanda.

„Die Liebe ist stark wie der Tod, hart wie die Hölle.“

Der Tod scheidet die Seele vom Leibe,

die Liebe aber scheidet all Dinge von der Seele …

MEISTER ECKHART, deutscher Mystiker

Predigt: „Êwige Geburt“

„Ástin er sterk eins og dauðinn og ástríðan vægðarlaus sem hel.“

Dauðinn skilur sálina frá líkamanum

en ástin skilur allt frá sálinni.

MEISTER ECKHART, þýskur dulspekingur

Predikun : „Hinn eilífi getnaður“

I

Voðinn situr um þá óviðbúnu, stundum hamslaus, rétt eins og ástin.

Þetta var á föstudaginn langa og stjörnurnar voru nýteknar að fölna saman við morguninn. Ég keyrði og strauk örið á brjóstinu af gömlum vana. Augun voru þung og sjónin óskýr, sem kom ekki á óvart í ljósi þess að ég hafði eytt nóttinni yfir hvítum rimlum duftspegilsins með andlitið í gíslingu. Ég taldi mér trú um að ég skerpti með þessu viðbragðsnæmið. Ég hafði rangt fyrir mér.

Vegarslóðinn hlykkjaðist gegnum fjallþykknið með þverhnípi á aðra hönd og myrkan skóg á hina. Ég reyndi að hafa ekki augun af veginum en var yfirkominn af tilfinningu um að eitthvað sæti fyrir mér handan trjánna, kannski hópur af málaliðum. Þannig er dópnojan. Hjarta mitt hamaðist þar sem ég greip fastar um stýrið og svitinn safnaðist í hálsmálið.

Á milli læranna hafði ég skorðað fleyg af bourbon-viskíi sem ég greip í til að fá mér einn sopa í viðbót. Hann rann úr höndunum á mér svo vökvinn gusaðist á mig, pelinn datt á gólfið og ég þreifaði niður í ofboði til að varna því að áfengið helltist niður. Þegar ég leit upp mætti mér sýnin, hin fáránlega sýn sem kom öllu af stað. Ég sá hríð logandi örva storma að úr trjáþykkninu, beint á bílinn. Eðlishvötin tók völdin og ég sveigði stýrið í átt frá skóginum sem geymdi hina ósýnilegu árásarmenn. Þetta var ekki góð hugmynd. Ég hentist upp á vegriðið sem aðskildi mig frá þverhnípinu. Ýlfrið af málmi skrapa málm skar loftið á meðan farþegahurðin skóf strengda vegvírana og hvellirnir ómuðu þar sem ég hentist aftur af trépóstunum, hver þeirra eins og rafstraumur frá stuðtæki.

Í ofboðinu sneri ég stýrinu of mikið, þaut yfir á akreinina á móti og slapp naumlega við að verða fyrir pallbíl. Ég sveigði stýrið enn einu sinni of harkalega og stefndi aftur á vegriðið. Vírarnir smullu í sundur og þeyttust í allar áttir, eins og óðir griparmar á skutluðum kolkrabba. Einn þeirra mölvaði framrúðuna, ég man eftir að hafa glaðst yfir því að hann skyldi ekki hæfa mig þar sem bíllinn þaut úr fangi viðþolslausrar skepnunnar.

Eitt andartak tók þyngdarleysið völdin: núningspunktur milli lofts og jarðar, moldu og himins. Hve undarlegt, hugsaði ég, hve undralíkt andránni milli svefns og falls, þegar allt sveipast órafegurð og ekkert er líkamlegt. Hve líkt þetta er að fljóta í átt að fullkomnun. En eins og oft vill verða um þessa andrá milli tilvistar og draums lauk andartakinu á bjargbrúninni með vægðarlausum rykk inn í vökuheiminn.

Bílslys virðist taka heila eilífð og sá möguleiki líður stöðugt hjá að hægt sé að leiðrétta mistökin. Já, hugsarðu, það er rétt að ég þýt stjórnlaust niður fjallshlíð í bíl sem vegur um það bil fimmtán hundruð kíló. Það er rétt að það eru þrjátíu metrar niður á botn. En ég er viss um að ef ég sný stýrinu mjög fast í aðra áttina þá verður allt í lagi.

Þegar þú hefur snúið stýrinu nokkrum sinnum og komist að því að það breytir nákvæmlega engu altekur þessi óbifandi hugsun þig: Æ, fokk. Eitt undursamlegt andartak hríslast um þig alsæla tómsins sem austrænir heimspekingar verja lífi sínu í að leita að. Vitrunin gerir huga þinn að ofurtölvu sem fer létt með að reikna út snúningshröðun bílsins, margfalda fallhraðann út frá gráðuhalla fjallsins með hliðsjón af þyngdarlögmáli Newtons og komast loks að þeirri niðurstöðu, á agnarbroti úr sekúndu, að þetta eigi eftir að verða ógeðslega sárt.

Bíllinn eykur hraðann niður hlíðina og skröltir. Kenning þín reynist skotheld: þetta er, í sannleika sagt, mjög sárt. Heilinn í þér flokkar niður ólíkar skynjanirnar: endalausa smellina og svimandi upplausnina, ásamt skrækjunum í bílnum þar sem hann stundar sitt vanhelga jóga. Það brakar í málmi sem þrýstist inn í rifbeinin á þér. Daunninn fyllir loftið af svikráðum djöfulsins. Þú ert með heykvísl í rassinum og brennistein á tungu. Andskotinn er þarna, þú skalt ekki efast um það.

Ég man silfurheitt leiftrið þegar gólfið klippti allar tærnar af vinstri fætinum. Ég man stýrisskaftið sem kom fljúgandi yfir öxlina á mér. Ég man eldgos glerbrotanna sem þutu alls staðar í kring. Þegar bíllinn nam loks staðar hékk ég öfugur í sætisbeltinu. Ég heyrði hvissið af lofttegundunum sem flæddu út úr vélinni, niðinn af hjólunum sem snerust yfir höfði mér og skröltið af málmi sem vaggaði sér í ró um leið og bíllinn hætti að snúast, aumkunarverð skjaldbaka á hvolfi.

Í þann mund sem ég tók að svífa á vit meðvitundarleysisins kvað sprengingin við. Ekki bíómyndasprenging, heldur örlítil raunveruleikasprenging, eins og þegar óhamingjusamur gasofn kveikir á sér í uppreisn gegn eiganda sínum. Blik af bláum loga dreifði úr sér á bílþakinu sem slútti undir dinglandi líkama mínum. Blóðdropi skreið út úr nefinu á mér og stökk ákafur í litlu, kátu logana sem lifnuðu óðum við undir mér. Ég fann að það kviknaði í hárinu á mér; svo fann ég lyktina. Hold mitt tók að stikna, eins og ég væri kjöthleifur sem rétt í þessu hefði verið smellt á grillið, og svo heyrði ég húðina sviðna undan kossum loganna. Ég kom ekki hönd á höfuðið til að slökkva í skíðlogandi hárinu. Hendurnar svöruðu ekki boðum mínum.

Ég ímynda mér, lesandi góður, að þú hafir haft einhver kynni af hita. Kannski hefurðu hallað hraðsuðukatli öfugt í höndunum á þér og gufan skriðið upp ermina, eða verið manaður af eigin æsku til að halda logandi eldspýtu milli fingranna eins lengi og þér var unnt. Hafa ekki allir, að minnsta kosti einu sinni, fyllt baðkerið sitt með of heitu vatni og gleymt að dýfa í það tánni áður en fóturinn fór á kaf? Ef slík smátilvik eru þín einu kynni af hita vil ég að þú ímyndir þér svolítið nýtt: Að þú kveikir á einni hellunni á eldavélinni þinni – gefum okkur að þetta sé rafmagnshella með svörtum hitaspíral að ofanverðu. Ekki setja pott með vatni á hana, vatnið dregur bara í sig hitann og notar hann til að soðna. Kannski stígur upp örlítill reykur af brunasulli frá síðustu matseld. Ofurlítil fjólublá slikja mun birtast á svörtu hringjunum áður en tækið tekur á sig rauðleitari blæ, líkan óþroskuðum brómberjum. Hann færir sig yfir í appelsínugult þar til loksins – loksins! – hann verður djúpglóandi rauður. Er þetta ekki undursamlega fallegt? Beygðu núna höfuðið þannig að augun beri við efra lag hellunnar og þú getur pírt þau gegnum merlandi tíbrána sem rís af henni. Láttu þig hverfa inn í gömlu bíómyndirnar þar sem hetjan horfir yfir eyðimörkina á óvænta vin í fjarska. Ég vil að þú strjúkir fingur­gómum vinstri handar blíðlega yfir hægri lófann og gætir þess hversu vel húðin nemur minnstu snertingu. Ef einhver annar gerði þetta gæti hann jafnvel gert þig svolítið graðan. Skelltu nú þessari viðkvæmu, viðbragðsnæmu hönd beint á logandi helluna.

Og haltu henni þar. Haltu henni þar á meðan hellan svíður níu hringi Dantes beint í lófann á þér og markar hönd þína helvíti til eilífðar. Leyfðu hitanum að rista mark sitt í húðina, vöðvana, hásinarnar; leyfðu honum að brenna glóð sína inn að beini. Bíddu þar til bruninn hefur grafið sig svo djúpt í þig að þú veist ekki hvort þér verður nokkru sinni unnt að sleppa taki af spíralnum. Það líður ekki á löngu þar til ódauninn leggur af sviðnandi holdinu, festir sig í nasahárunum og neitar að hverfa af hólmi, og þú finnur lyktina af brennandi líkama þínum.

Ég vil að þú haldir höndinni þarna fastri á meðan þú telur hægt upp að sextíu. Ekkert svindl. Þús-und-og-einn, þús-und-og-tveir, þús-und-og-þrír ... Þegar kemur að þús-und-og-sextíu er höndin bráðnuð svo hún umkringir helluna og verður hluti af henni. Rífðu nú holdið laust.

Ég er með annað verkefni handa þér: beygðu þig niður, hallaðu höfðinu til hliðar og leggðu kinnina á þessa sömu hellu. Þú mátt ráða hvora kinnina þú velur. Aftur þús-und-og-sextíu; ekkert svindl. Sem betur fer er eyrað á þér alveg innan seilingar til að heyra smellina, snarkið og gneistana í kjötinu á þér.

Nú hefurðu kannski einhverja hugmynd um hvernig það var fyrir mig að sitja fastur inni í þessum bíl, ófær um að flýja logana, með nægilega meðvitund til að flokka niður reynsluna áður en ég fór í lost. Nokkur snögg og dásamleg andartök liðu þar sem ég fann lykt, gat heyrt og hugsað, fært allt til skrásetningar innra með mér án þess að ég fyndi til neins. Hvers vegna er þetta ekki lengur sárt? Ég man eftir að hafa lokið aftur augunum og óskað mér algjörrar, alfagurrar myrkvunar. Ég man eftir að hafa óskað þess að hafa lifað lífi mínu sem grænmetisæta.

Síðan skókst bíllinn einu sinni enn og sporðreistist út í lækinn sem hann hafði riðað við um stund. Líkt og skjaldbakan hefði komist aftur á lappir og skjögrað út í næstu lind.

Þessi atburður – að bíllinn skyldi falla út í lækinn – bjargaði lífi mínu með því að kæfa logana og kæla nýgrillað hold mitt.

* * *

Voðinn situr um þá óviðbúnu, stundum hamslaus, rétt eins og ástin.

Ég hef ekki hugmynd um hvort sú ákvörðun að byrja á slysinu mínu hafi verið rétt þar sem ég hef aldrei skrifað bók áður. Í sannleika sagt byrjaði ég á brotlendingunni vegna þess að ég vildi vekja áhuga þinn og draga þig inn í söguna. Þú ert enn að lesa, svo það virðist hafa virkað.

Ég er smám saman að komast að því að það erfiðasta við skriftir er ekki að smíða sjálfar setningarnar, heldur ákveða hvað á hafa með, og hvar, og hverju á að sleppa. Ég efast stöðugt um sjálfan mig. Ég byrjaði á slysinu en ég hefði alveg eins getað valið einhvern annan atburð frá þeim þrjátíu og fimm árum sem ég hafði lifað fram að því. Hvers vegna ekki að byrja á: „Ég fæddist árið 19 ––, í borginni ––“?

Og ef út í það er farið – hvers vegna ætti ég yfirhöfuð að takmarka byrjunina við mitt eigið líf? Kannski ætti að ég byrja í Nürnberg við upphaf þrettándu aldar, þar sem kona sem nefnd var því óheppilega nafni Adelheit Rotter sneri frá lífi sem hún taldi vera syndugt og gekk í hóp begúína – kvenna sem heyrðu ekki beint undir kirkjuna en helguðu líf sitt fátækt að hætti Jesú Krists. Þegar fram liðu stundir laðaði Rotter stóran hóp til fylgis við sig og árið 1240 flutti hersingin að mjólkurbúi í Engelschalksdorf, nærri landamærum Sviss, þar sem velunnari að nafni Ulrich II af Königstein leyfði þeim að búa gegn því að þær sinntu húsverkum. Þær reistu byggingu árið 1243 og ári seinna komu þær á fót klaustri og völdu sína fyrstu príorinnu.

Þegar Ulrich dó án þess að skilja eftir sig karlkynserfingja ánafnaði hann begúínunum gjörvalla landareign sína. Í staðinn fór hann fram á að klaustrið sæi ættingjum sínum fyrir greftrunum og að það myndi biðja um alla eilífð fyrir Köningstein-fjölskyldunni. Til merkis um skynsemi sína fyrirskipaði hann að staðurinn yrði nefndur Engelthal, „Engladalur“, frekar en Swinach – „Svínastaður.“ Það var síðasta skilyrði Ulrichs sem átti eftir að hafa mest áhrif á líf mitt: hann fyrirskipaði að klaustrið kæmi á fót skriftastofu.

* * *

Augun opin móti rauðbláum eldingagarra. Leifturárás radda og hljóða. Járnstöng gatar bílhlið, rífur hana í sundur. Búningar. Jahérna, ég er í helvíti og menn ganga í búningum. Einn þeirra öskrar. Annar segir sefandi röddu: „Við náum þér út, hafðu ekki áhyggjur.“ Hann er með barmmerki. „Það verður allt í lagi með þig,“ lofar hann gegnum yfirskegg sitt. „Hvað heitirðu?“ Man það ekki. Annar sjúkraliði hrópar á einhvern sem ég sé ekki. Hann hrökklast undan við að sjá mig. Eiga þeir að gera það? Myrkur.

Augun opin. Ég er reyrður niður á sjúkrabörur. Rödd: „Þrír, tveir, einn, lyfta.“ Himinninn þýtur að mér og síðan burt frá mér. „Inn,“ segir röddin. Málmglamur þegar börurnar smella á sinn stað. Kista, hvar er lokið? Of sótthreinsað fyrir helvíti, og gæti þakið á himnum í raun verið gert úr gráum málmi? Myrkur.

Augun opin. Þyngdarlaus á ný. Karon er klæddur blárri pólíester-bómullarblöndu. Sjúkrasírenur endurkastast af steinsteyptum Akkeron. Ég er með vökvalausn í æð – alls staðar? Ég er þakinn gelábreiðu. Blautt, blautt. Myrkur.

Augun opin. Hjólaþytur eins og innkaupakerra á steinsteypu. Ég er ásóttur af drullurödd: „Af stað!“ Himinninn hæðist að mér, leiðir mig hjá sér. Síðan gifshvítt loft. Tvöfaldar dyr opnast. „Skurðstofa fjögur.“ Myrkur.

* * *

Augun opin. Gapandi gin á snáki stingur sér að mér, hlær, segir: éG ER AÐ KOMA... Naðran reynir að gleypa á mér höfuðið. Nei, ekki snákur, súrefnisgríma. ...OG ÞAÐ ER EKKERT SEM ÞÚ GETUR GERT Í ÞVÍ. Ég hníg inn í gasgrímu­myrkur.

Augun afhjúpuð. Brennandi hendur, brennandi fætur, eldur út um allt en ég er í miðri stórhríð. Þýskur skógur, í grennd rennur á. Kona á klettasnös með lásboga. Mér líður eins og ég hafi verið hæfður í brjóstkassann. Ég heyri hvissið þegar hjartað gengur til þurrðar. Ég reyni að tala en garga í staðinn og hjúkrunarkona segir mér að hvílast, að allt fari vel, allt fer vel. Myrkur.

Rödd svífur fyrir ofan mig. „Sofðu bara. Sofðu.“

* * *

Eftir slysið blés ég út eins og nýgrilluð pylsa, húðin öll sundursprungin til að rýma fyrir útþöndu kjötinu. Læknarnir, með sína hungruðu skurðhnífa, flýttu fyrir ferlinu með nokkrum snöggum skurðum. Meðferðin kallast brunarista og gefur bólgnu vefjunum færi á að þenjast út: einskonar uppstigning leynilegrar innri veru sem fær loks að klóra sig upp á yfirborðið. Læknarnir héldu að þeir hefðu rist mig upp á gátt til að hefja batann en í raun losuðu þeir aðeins um skepnuna – fyrirbæri sem var úttroðið af holdi, fljótandi í djús.

Fólk sem verður fyrir vægum bruna fær blöðrur sem fyllast af blóðvökva en af brunasárum eins og mínum hlýst gríðarlegt vökvatap. Fyrsta sólarhringinn sem ég dvaldi á spítalanum dældu læknarnir tuttugu lítrum af saltlausn í mig til að vinna gegn vökvamissinum. Ég baðaðist vökvanum sem flæddi út úr skrælnuðum líkamanum jafnharðan og honum var dælt inn, líkur eyðimörk í stórflóði.

Þessi of hröðu vökvaskipti leiddu af sér ójafnvægi í efnasamsetningu blóðsins svo ónæmiskerfið riðaði undan álaginu, vandamál sem varð þeim mun hættulegra eftir því sem á vikurnar leið og mér stóð æ meiri ógn af blóðeitrun. Jafnvel brunasjúklingur sem virðist vera á batavegi getur fyrirvaralaust misst fótanna ef sýking sækir að. Varnir líkamans eru svo veikburða einmitt þegar þeirra er mest þörf.

Rústað ytra lag mitt var gljáð blóðugum hreytum af sviðnum vef sem kallast hrúður, Hiroshima líkamans. Rétt eins og þú getur ómögulega kallað hrúgu af muldum múrsteinum „byggingu“ eftir að sprengjan er sprungin var ómögulegt að kalla ytra lag mitt „húð“ eftir slysið. Ég var eitt samfellt neyðarástand, leifarnar af mér stráðar silfurjónum og súlfadíasínkremum. Ofan á allt saman voru lögð sárabindi til að hvíla yfir rústunum.

Sjálfur vissi ég ekki um neitt af þessu og frétti ekki af því frá læknunum fyrr en seinna. Á þeim tíma lá ég í dái, tengdur vél sem knúði áfram silalegan taktmæli hjartans. Flæðiefni, rafvökvi, sýklalyf og morfín streymdu í gegnum röð af æðaleggjum (vökvalegg, ásgarnarlegg, munnholslegg, nefholslegg, þvaglegg, það var sannarlega leggur við öll tilefni.) Varmabrynja hélt líkamanum nógu heitum til að deyja ekki, öndunarvél sá um að ég andaði og ég hafði nógu mörg blóðskipti til að smána Keith Richards.

Læknarnir flettu utan af mér auðninni með því að flá mig og skófu burt sviðna holdið. Þeir komu með heilu tankana af fljótandi köfnunarefni sem geymdu húð af nýlega dánu fólki. Lögin voru látin þiðna í vatnsskálum áður en þeim var haganlega komið fyrir á bakinu á mér og þau heft á sinn stað. Nákvæmlega þannig, eins og í torflögn yfir melbarð uppi í sumarbústað, vöfðu þeir mig í húð hinna dauðu. Líkami minn var hreinsaður án afláts en ég hafnaði þessum holdfúa engu að síður; mér hefur aldrei komið vel saman við aðra. Og því var ég aftur og aftur reifaður húð af líkum.

Ég lá þarna klæddur í dautt fólk til að brynja mig fyrir dauðanum.

* * *

Fyrstu sex ár ævi minnar.

Faðir minn var rokinn áður ég fæddist. Mjög heillandi náungi á hamingjutímum, að því er virðist: lunkinn með typpið á sér og lunknari við að láta sig hverfa. Yfirgefin af þessum nafnlausa flagara dó móðir mín um leið og ég brunaði inn í heiminn í ölduróti blóðs hennar. Hjúkrunarkonan sem tók löðrandi líkama minn í fangið rann í polli þegar hún fetaði sig út af fæðingar­stofunni, eða svo var mér sagt. Amma mín leit mig ekki augum fyrr en rauðhvítt persónuleikapróf í formi hjúkrunarkonu þaut framhjá henni með með skrækina í mér í fanginu.

Fæðingin gekk heldur ekki vel. Mér var aldrei sagt nákvæmlega hvað gerðist en einhvern veginn æxlaðist það svo að líkami minn skarst frá maga upp að brjósti – kannski var það skurðhnífur þegar þeir reyndu að bjarga móður minni. Ég einfaldlega veit það ekki. Þegar ég stækkaði stóð örið í stað svo það varð að endingu ekki nema nokkurra þumlunga depill á miðju vinstra brjóstinu, þar sem rómantíker myndi teikna hjarta.

Ég bjó hjá ömmu minni þar til ég var sex ára. Beiskjan yfir hlutdeild minni í dauða dóttur hennar leyndi sér ekki. Ég held að hún hafi ekki verið vond manneskja, bara manneskja sem bjóst aldrei við því að lifa sína eigin dóttur. Hvað þá að fá ungbarn í umsjá sína svo seint á lífsleiðinni.

Amma mín lamdi mig ekki; hún ól mig vel; hún sendi mig í allar nauðsynlegu bólusetningarnar. Hún bara kunni ekki við mig. Dauða hennar bar upp á einn þeirra sjaldgæfu daga þegar var gaman hjá okkur. Hún ýtti mér í rólu. Ég þaut upp í loftið og teygði lappirnar í átt að sólinni. Ég þaut aftur niður í átt að jörðinni og bjóst við því að hún gripi mig. Í stað þess sveif ég framhjá lotnum líkama hennar og þegar ég sveif fram að nýju hafði hún fallið fram á olnbogana. Síðan teygði hún út anga sína og laut ofan í eðjuna á leikvellinum. Ég hljóp að nálægu húsi til að láta fullorðna fólkið vita og sat svo ofan á klifurgrindinni á meðan sjúkrabíllinn lét bíða eftir sér. Þegar sjúkraliðarnir lyftu henni sveifluðust holdugir handleggir ömmu minnar eins og leður­blökuvængir sem lífið hefur verið kreist úr.

* * *

Á því andartaki sem ég steig inn á spítalann hætti ég að vera manneskja og varð tryggingalínurit. Eftir að hafa vigtað mig drógu læknarnir fram reiknivélarnar sínar til að slá inn umfang áverkanna og reikna líkurnar á að ég lifði af. Ekki góðar.

Hvernig fóru þeir að þessu öllu? Eins og í öllum góðum ævintýrum ræður töfraformúla sem í þessu tilviki nefnist níureglan. Umfang brunans er mælt og fært inn í línurit, ekki ólíkt vúdúkorti af mannslíkamanum, og skipt niður í svæði sem ákvarðast af margfeldi tölunnar níu. Handleggirnir samsvara 9 prósentum af heildaryfirborði líkamans; höfuðið er 9 prósent; hvor löpp um sig er 18 prósent; og búkurinn, að framanverðu og aftan, er 36 prósent. Sem sagt: níureglan.

Auðvitað þarf að taka tillit til annarra þátta við mat á bruna. Aldurs, til dæmis. Lífslíkur hinna fjörgömlu og bráðungu eru minni en ef hinum ungu tekst það eru þeir mun betur í stakk búnir fyrir batann. Svo það vinnur með þeim. Sem er gott. Það þarf líka að hafa í huga hvers kyns áverkarnir eru: sár eftir sjóðandi vökva; rafmagnsbruni eftir straumvíra; eða efnabruni, hvort sem er eftir sýru eða lút. Ég lét nægja að panta varmabruna af matseðlinum, þann sem einskorðast við loga. Þú veltir kannski fyrir þér hvað verður um lifandi hold í eldi? Frumur standa einkum saman af vökva sem getur soðnað og valdið því að frumuveggirnir springa. Þetta er ekki gott. Í síðara dæminu steikist frumuprótínið á sama hátt og egg á steikarapönnu og breytist úr þunnum vökva í eitthvað klístrað og hvítt. Ef þetta gerist stöðvast öll efnaskipti frumunnar. Svo jafnvel þótt hitinn dugi ekki til að drepa frumuna með öllu, sér hefting súrefnisflæðisins til þess að vefurinn deyr von bráðar. Munurinn felst í hægri uppgjöf í stað tafarlausrar fórnar.

* * *

Eftir að amma dó fór ég og bjó hjá Debi og Dwayne Michael Grace – frænda og frænku sem voru rusl í mennsku formi og lögðu fæð á mig frá upphafi. Þau kunnu hins vegar vel að meta ávísanirnar sem ríkið sendi þeim fyrir að fóstra mig. Þetta gerði þeim miklu auðveldara að dópa.

Árin sem ég eyddi með Grace-fólkinu flutti ég úr einum hjólhýsagarðinum í annan þar til verndarar mínir fundu morgunpartí sem varð að þriggja ára amfetamínhátíð. Þau voru langt á undan sinni samtíð: chrystal meth var ekki nærri jafnvinsælt á þeim árum og það er núna. Ef hvergi fannst pípa til að reykja það úr var notuð ljósapera og stundum gekk svo á perurnar að við bjuggum í algjöru myrkri. Dópið virtist samt aldrei klárast. Grace-fólkið brosti og flassaði rústuðu nótnaborðum munnholsins um leið og það lét dílerinn hafa síðustu aurana sem það átti.

Einn nágranna okkar seldi aðgang að dóttur sinni í skiptum fyrir dóp. Hún var nokkrum árum yngri en ég, og ef þú skyldir velta því fyrir þér þá er götuverðið á átta ára krakka 35 dollarar, eða var það að minnsta kosti þegar ég var krakki. Þegar móðirin fylltist innhverfu brjálæði til augnanna kom litla stelpan til að gráta úr sér óttann í kompunni minni og bjó sig undir yfir­vofandi sölu. Síðast þegar ég frétti var móðir hennar edrú, laus undan fíkninni og búin að finna Guð. Síðast þegar ég frétti var stelpan (nú fullorðin) ófrískur heróínfíkill.

Bernska mín var ekki sérlega þægileg en ég var aldrei seldur á kynlífsuppboði svo forráðafólk mitt gæti dópað sig. Hins vegar ætti fólk líka að geta sagt fallegri hluti um bernsku sína en það.

Eina leiðin til að lifa af þennan ömurlega heim var að ímynda sér aðra betri svo ég las allt sem ég komst yfir. Snemma á unglingsárunum var ég þegar tekinn að verja svo löngum stundum á bókasafninu að bókaverðirnir komu með samlokur aukalega handa mér í vinnuna. Ég á mjög ljúfar minningar um þessar konur sem mötuðu mig á bókum og töluðu síðan tímunum saman við mig um það sem ég hafði lært.

Löngu áður en ég uppgötvaði eiturlyfjafíknina sem átti eftir að ráða fullorðinsárum mínum hafði tilvera mín fest sig í sessi áráttunnar. Mín fyrsta og langlífasta fíkn er árátta gagnvart hverju því sem læsir sig í forvitni mína.

Þótt mér hafi fremur leiðst að ganga í skóla var ástæðan ekki sú að ég taldi menntun algjört fánýti. Langt frá því: vandinn fólst í því að skólinn tók tíma frá áhugaverðari málum. Námskeiðin voru hönnuð til að miðla hagkvæmum upplýsingum en þar sem ég náði svo fljótt taki á grundvallaratriðunum fór áhuginn fljótt fyrir bí. Hugur minn reikaði inn í þekkingarfræðilegu smáatriðin sem birtust í neðanmálsgreinum kennslubóka eða tilviljanakenndum athugasemdum kennaranna. Ef rúmfræðikennarinn minn minntist til dæmis á fyrirlestra Galíleós um formskipulag Helvítis var mér fyrirmunað að hverfa aftur inn í útskýringar hans á samsíðungi. Ég skrópaði í næstu þremur tímum til að heimsækja bókasafnið og gleypti í mig allt sem ég fann um Galíleó. Þegar ég sneri aftur í skólann kolféll ég á næsta stærðfræðiprófi þar sem það geymdi engar spurningar um Rannsóknarréttinn.

Þessi ástríða fyrir sjálfsnámi lifir enn með mér, eins og ætti að vera augljóst af lýsingum mínum á brunameðferð. Viðfangsefnið hefur svo persónulega skírskotun að ég gæti ómögulega horft framhjá nokkru sem hægt er að læra um það. Sjálfsnámið takmarkast þó ekki hér: rannsóknir á Engelthal-klaustrinu hafa af ástæðum sem brátt koma í ljós einnig gert drjúgt tilkall til tíma míns.

Þótt það sé rétt að líf mitt utan bókasafnsins hafi einkennst af djöfulgangi hef ég innan þess alltaf verið jafntryggur fylgisveinn þekkingarinnar og dýrlingur sinni Biblíu.

* * *

Ég komst líka að því að brunasár eru flokkuð eftir því hversu mörg lög húðarinnar verða fyrir skaða. Yfirborðssár (fyrsta-stigs) ná aðeins til yfirhúðarinnar, efsta lagsins. Sár sem hafa hlutaþykkt (annars-stigs) taka til yfirhúðarinnar og næsta lags, leðursins. Mjög alvarlegir annars-stigs brunar eru sár sem teljast hafa djúpa hlutaþykkt. Og síðan eru fullþykktarsárin (þriðja-stigs) sem ná til allra húðlaganna og skilja eftir sig varanleg ör.

Alvarleg tilfelli – eins og mitt – fela oftast í sér blandaða brunaþykkt, þar sem enginn sér um að snúa teininum til að tryggja jafna steikingu. Til dæmis er hægri hönd mín algjörlega ósködduð. Hún brann ögn á yfirborðinu en eina meðferðarúrræðið var venjulegur handáburður.

Hlutaþykktarsár mín takmarkast einkum við neðri hluta fótleggjanna, neðan hnjánna og kringum þjóhnappana. Húðin rúllaðist upp eins og blaðsíður brennandi handrits og það tók hana nokkra mánuði að gróa. Í dag er húðin ekki fullkomin en fjandinn hafi það, hún er ekki svo slæm. Ég finn enn fyrir rassinum á mér ef ég sest á hann.

Fullþykktarsár eru eins og steikin sem pabbi gamli gleymdi á grillinu þegar hann var fullur. Þessi sár eyðileggja; þessi vefur grær ekki. Örið er hvítt, eða svart, eða rautt; þetta er hart, þurrt sár, að eilífu hárlaust vegna þess að hársekkirnir hafa verið ristaðir í burtu. Hið einkennilega er að þriðja-stigs brunasár eru sumpart betri en annars-stigs: maður finnur ekkert fyrir þeim vegna þess að taugaendarnir hafa verið grillaðir í drasl.

Brunasár á höndum, höfði, hálsi, brjósti, eyrum, andliti, fótum og nára krefjast sérstakrar aðgátar. Þessi svæði skora hæst í níu-svæða-reikninum: tomma af brenndu höfði trompar tommu af brenndu baki. Því miður eru þetta svæðin þar sem fullþykktar­sárin mín halda sig; sem sagt fullt hús af hörmung.

Enn ríkja nokkrar deilur um það í læknasamfélaginu hvort til sé eitthvað sem kalla megi fjórða-stigs bruna, en í raun snýst þetta ekki um annað en hóp heilbrigðra lækna að þrátta um merkingarfræði. Þessir fjórða-stigs brunar, ef maður fellst á fræðiheitið, feta sig alla leið inn að sinum og beini. Ég fékk þannig sár líka; eins og væri ekki nóg að gólfefni klippti af mér allar vinstri tærnar þá tóku þessi svokölluðu fjórða-stigs sár af mér þrjár tær á hægri fætinum og einn og hálfan fingur á vinstri hönd. Og, vei mér, einn líkamspart að auki.

Þú manst að ég hellti bourbon-viskíi yfir buxurnar mínar fáeinum andartökum fyrir slysið og tímasetninginn hefði ekki getað verið verri. Kjalta mín var í raun gegnsósa af kveikilegi sem olli því að svæðið brann af tvöföldum krafti. Typpið á mér var eins og kerti sem stóð út úr líkamanum og brann eftir því, svo eftir varð sviðinn kveikur þar sem skaftið hafði verið áður. Án þess að því yrði bjargað var það fjarlægt skömmu eftir innlögnina, í aðgerð sem kallast reðurnám.

Þegar ég spurði hvað orðið hefði um leifarnar af karlmennsku minni sagði hjúkkan mér að þeim hefði verið fleygt sem læknisfræðilegum úrgangi. Og eins og það myndi einhvern veginn bæta líðan mína útskýrði hún fyrir mér að læknarnir hefðu leyft pungnum og eistunum að halda sér. Of langt gengið, mætti ætla, að taka allt draslið í einu.

* * *

Grace-fólkið dó í sprengingu í miðri amfetamíntilraun níu árum eftir að ég kom fyrst í hjólhýsið. Þetta kom ekki á óvart: er til verri hugmynd en tveir fíklar að malla dóp í lokuðu rými, úr aðföngum á borð við lampaolíu, hvítspritt og þynni?

Ég var ekki sérlega niðurbrotinn af sorg. Á jarðarfarardaginn fór ég og ræddi við bókasafnsfræðingana um ævisögu Galileo Galileis sem ég hafði verið að lesa – því að rúmfræðikennarinn hafði sannarlega vakið áhuga minn á vísindamanninum.

Og enda þótt hver einasti skólastrákur geti sagt þér frá ofsóknum Rannsóknarréttarins á hendur Galileo þá er sannleikurinn um líf hans talsvert flóknari. Það var aldrei ætlun hans að vera „slæmur“ kaþólikki, og þegar honum var skipað að kenna ekki sólmiðjukenningu sína gekkst hann inn á bannið svo árum skipti. Virginia, dóttir hans, gerðist nunna undir því indæla nafni systir Himna-María, á meðan Livia, dóttir hans, gekk í klaustur undir álíka ójarðnesku heiti: systir Erki-Angela. Það er eitthvað skáldlega viðeigandi við þetta því enda þótt nafn hans sé nú vinsæll stökkpallur í samræðum um ofríki trúar gagnvart vísindum, þá tvinnaðist líf Galileos bæði trú og vísindum. Sagan segir að þegar Tommaso Caccini, ungur prestur af Dóminíkana-reglunni, varð fyrstur til að fordæma stuðning Galileos við Kóperníkusarkenninguna þá hafi hann endað messu sína á erindi úr Postulabréfunum: Þið menn Galíleu, því starið þið til himna? Það sem Caccini grunaði hins vegar ekki var að ef Galileo starði til himins gat hann allt eins verið að biðja, eins og að kortleggja hreyfingu himintunglanna.

Tuttugu og fjögurra ára að aldri sótti Galileo um kennarastöðu við háskóla og hélt af því tilefni tvo fyrirlestra um eðlisfræðina í Infernói Dantes. Flestum nútímahugsuðum kann eflaust að þykja þetta dásamlega duttlungafullt en á dögum Galileos var dantísk heimsmyndunarfræði sjóðheitt viðfangsefni. (Það var engin tilviljun að fyrirlestrarnir voru haldnir við Flórensarakademíuna, í heimabæ skáldsins.) Fyrirlestrarnir slógu rækilega í gegn og áttu stóran þátt í því að tryggja Galileo stöðu stærðfræðiprófessors við Háskólann í Písa.

Það var ekki fyrr en seinna að rann upp fyrir Galileo að röksemdir hans í fyrirlestrunum voru á fölskum grunni byggðar og að staðhæfingar hans um að strýtulaga samsetning helvítis væri óháð stærðarlögmálum – gæti stækkað án þess að glata einingu eða styrk – væri ekki rétt. Ef helvíti var í raun og veru til í innviðum jarðar hlaut gríðarlegt umfang holrúmsins að valda því að þakið (möttull jarðar) félli saman, nema þá að veggir vítis væru mun þykkari en hann hafði upphaflega haldið fram. Galileo hóf því að vinna að lögmálum kvarðafræðinnar og birti uppgötvanir sínar seint á lífsleiðinni í ritinu Tvenn ný vísindi, reglur sem áttu sinn þátt í að skapa nútímaeðlisfræði. Vísindagreinin á tilvist sína að hluta til því að þakka að það rann upp fyrir Galileo að hann hafði gert mistök við beitingu náttúrulögmála á yfirnáttúrlegan stað.

En ef helvíti væri raunverulegur staður væri enginn vafi á því að Debi og Dwayne Michael Grace væru þar niðurkomin núna.

* * *

Ég var meðvitundarlaus í næstum sjö vikur, vafinn inn í holdfúann af sjálfum mér. Upphafleg ástæða þess að ég féll í dá var lost en síðan ákváðu læknarnir að halda mér sofandi, læknisfræðilega lömuðum, þar til mér færi að batna.

Þegar blóðrásin hætti að virka almennilega gat ég látið það mig litlu varða. Nýrnaskemmdir giltu mig einu. Ég meðtók lokun þarmanna í algleymi. Um æxlin sem létu mig æla blóði hafði ég engan grun og ég varð í engu var við bröltið í hjúkkunum þegar mér lá við að kafna á þessum æxlum. Ég þurfti ekki að ergja mig á sýkingunum sem fylgdu í kjölfar neyðaruppskurðanna og skinnágræðslanna. Mér var ekki sagt að hársekkirnir hefðu brunnið til ösku eða að svitakirtlarnir hefðu eyðilagst. Ég var ekki vakandi þegar þeir soguðu sótið upp úr lungunum á mér – meðferð sem vel að merkja kallast lungnaklósett.

Raddbönd mín höfðu orðið fyrir umfangsmiklum skaða vegna innöndunar á reyk og því var framkvæmdur barkaskurður svo barkakýlið gæti byrjað að gróa án síáreitis frá kokslöngu. Meira var ekki hægt að gera. Annar líkamshluti sem naut lítillar umönnunar í fyrstu var mölbrotinn hægri fóturinn. Læknarnir þurftu að bíða eftir að ástand mitt yrði stöðugt svo hægt væri að hefja endurbyggingu lærleggsins og brotna hnésins. Það var sett í forgang að halda í mér lífinu frekar en að tryggja laglegt göngulag eða aðlaðandi rödd.

Í dáinu reyndist ómögulegt að koma í veg fyrir vöðvarýrnun. Þar kom bæði til hreyfingarleysi mitt og svo hitt að þegar megnið af húðinni á mér dó fór líkami minn að éta sig. Hann neytti prótínsins innan frá þar sem gríðarleg orka fór í það eitt að viðhalda jöfnu hitastigi. Varmabrynjan dugði ekki ein og sér og því hætti líkami minn að flytja blóð til útlimanna. Líkaminn lætur sér annt um miðjuna, skítt með ytra byrðið, og ég hætti að framleiða þvag og varð eitraður. Því meira sem líkami minn skrapp saman því stærra varð hjartað í mér: ekki af ást, heldur af álagi.

Ég var þakinn ormum, meðferð sem var vinsæl í gamla daga en hefur nýlega komist aftur í tísku innan læknisfræðinnar. Pöddurnar átu burt holdfúann og fitnuðu á hrörnun minni án þess að hreyfa við því sem lifði. Læknarnir saumuðu augnlokin föst til að vernda augu mín og allt sem vantaði var að einhver legði yfir þau smápeninga. Þá hefði ég verið allur.

* * *

Ég á eina góða minningu frá tíma mínum með Grace-fólkinu: góða, en þó mótaða af hinni einkennilegustu uppákomu.

Flugsýningin var haldin á heitum ágústdegi við nálægan flugvöll. Flugvélararnar vöktu ekki áhuga minn – en fallhlífarstökkvar­arnir, með fallhlífarnar opnar móti himni og lituð reykskýin í slóð sinni, gerðu það! Þetta fall frá himni til jarðar – guðleg dýfa sem dempaðist ekki af öðru en blaktandi silkiblæju – virtist ekki vera annað en kraftaverk. Fallhlífarstökkvararnir handléku töfratækin sín, fetuðu hringi yfir stórum hvítum skotmörkum sem höfðu verið stensluð á jörðina og lentu án undantekninga beint í miðjunni. Þetta var það ótrúlegasta sem ég hafði nokkru sinni séð.

Einhvern tíma meðan á þessu stóð gerði asísk kona vart við sig fyrir aftan mig. Ég fann fyrir henni áður en ég sá hana; það var eins og ég hæfist á loft við eina saman nærveru hennar. Þegar ég sneri mér við stóð hún og brosti til mín. Ég var ungur og hafði ekki hugmynd um hvort hún væri kínversk eða japönsk eða víetnömsk; hún hafði einfaldlega asísk augu og litaraft og náði mér varla að hæð þótt ég væri ekki nema tíu ára. Hún klæddist dökkum kufli úr einföldu efni sem fékk mig til að halda að hún tilheyrði einhvers konar trúhreyfingu. Klæðnaður hennar var mjög óvenjulegur en enginn viðstaddra virtist gefa því minnsta gaum, og hún var algjörlega sköllótt.

Mig langaði að einbeita mér aftur að fallhlífarstökkvurunum en gat það ekki. Ekki á meðan hún stóð þarna á bak við mig. Nokkur andartök liðu þar sem ég reyndi að horfa ekki á hana en að lokum stóðst ég ekki lengur mátið. Allt hitt fólkið starði upp í himininn en hún horfði beint framan í mig.

„Hvað viltu?“ Rödd mín var stöðug; ég vildi bara fá svar. Hún sagði ekkert en hélt áfram að brosa.

„Geturðu ekki talað?“ spurði ég. Hún hristi höfuðið og rétti svo fram miða. Ég hikaði áður en ég tók við honum.

Á honum stóð: Hefurðu aldrei velt fyrir þér hvaðan örið þitt kemur í raun og veru?

Þegar ég leit aftur upp var hún farin. Það eina sem ég sá voru starandi andlit mannfjöldans.

Ég las miðann aftur án þess að trúa því að hún gæti vitað af lýti mínu. Það var á brjóstkassanum, falið undir skyrtunni minni, og ég var viss um að ég hafði aldrei séð þessa konu áður. En jafnvel þótt ég hefði einhverra ólíkinda vegna gleymt að hafa rekist á litla, sköllótta, asíska konu í kufli þá var enginn vegur að ég hefði sýnt henni örið á mér.

Ég tók að feta mig gegnum mannþröngina í von um að koma auga á hana – kufl sem smýgur gegnum fjöldann; aftanvert höfuðið – en ég sá ekkert.

Ég setti miðann í vasann og seildist nokkrum sinnum í hann yfir daginn til að sannfæra mig um að hann væri raunverulegur. Dwayne Michael Grace hlýtur að hafa fundið til óvenjulegrar rausnar því hann keypti handa mér kandífloss í sælgætissölunni. Síðan faðmaði Debi mig og það var næstum eins og við værum fjölskylda. Eftir flugsýninguna fórum við að skoða útstillingu á pappaluktum sem voru látnar fljóta niður nálæga á, undurfalleg sjón sem var ólík öllu sem ég hafði áður séð.

Þegar við komum seint heim um kvöldið var miðinn horfinn úr vasanum þótt ég hefði verið mjög varkár.

* * *

Mig dreymdi án afláts í dáinu. Myndirnar liðu hver inn í aðra og kepptust um hringsviðið í sirkusnum.

Mig dreymdi sveitakonu sem hitaði baðvatn. Mig dreymdi blóðið úr kviði móður minnar. Mig dreymdi hvapholda upphandleggi deyjandi ömmu minnar þar sem þeir lyftu mér upp í himinblámann. Mig dreymdi Búddahof nærri köldum, straumhörðum ám. Mig dreymdi litlu stúlkuna sem mamman seldi fyrir spítt. Mig dreymdi bílinn sem skældan steikarapott. Mig dreymdi víkingaskip. Mig dreymdi steðja járnsmiðs. Mig dreymdi hendur höggmyndasmiðs sem beitti meitlinum hamslaust á grjótið. Mig dreymdi logandi örvar þjóta af himni, mig dreymdi eldregn. Mig dreymdi gler sem tvístraðist út um allt. Mig dreymdi frá sér numinn engil í frostvatni.

En umfram allt dreymdi mig steindrekana sem biðu þess að fæðast.

* * *

Það var eftir atvikið á flugsýningunni sem ég vandi mig á að strjúka örið á brjóstkassanum. Ég varð aldrei var við að ég gerði það en það fór ekki framhjá öðrum. Dwayne þoldi þetta ekki og sló á höndina á mér, sagði mér að „hætta að fitla við mig.“ Síðan reykti hann meira dóp sem dró einhvern veginn úr vægi þessara aðfinnslna.

Þegar Dwayne og Debi hrukku upp af missti ég síðustu skyldmenni mín – úr móðurætt að minnsta kosti; föðurættin var ekkert meira en spurningarmerki. Ég var settur á vistunarheimili sem hét Annað tækifæri – nafn sem fékk mig fyrst og fremst til að velta fyrir mér hvað hefði orðið um mitt fyrsta. Á Öðru tækifæri fékk ég líka megnið af minni opinberu menntun, sótti menntaskólanámskeiðin reglulega þótt mér leiddust þau og hlaut grunnþekkingu í stærðfræði og raungreinum. Allir tímarnir á bókasafninu fóru ekki til spillis. Löngu áður en nokkur reyndi að kenna mér eitthvað hafði ég kennt sjálfum mér að læra.

Með hjálp krakkanna á Öðru tækifæri komst ég fljótt í tæri við alls konar eiturlyf sem gáfu færi á tilraunum. Þótt mér þætti chrystal meth ógeðslegt varð ég býsna heillaður af maríúana og hassi. Reyndar hafði frændfólk mitt snemma hvatt mig til að láta reyna á þessi efni þar sem þau vildu – án þess að gera sér grein fyrir því að fólk gæti raunverulega lifað án aðstoðar spilliefna – vernda mig frá sterkari efnum.

Ég uppgötvaði líka þriðju iðjuna til að stunda samhliða bóka­söfnum og eiturlyfjum: kraftaverkið að láta sængurföt syngja. Í upphafi snerist þetta um býtti á tilraunamunnmökum við besta vin minn, Eddie. Þetta er það sem unglingsstrákar gera: þeir mana hver annan til að kyssa hann og kalla svo vin sinn homma þegar hann gerir það. Næsta nótt, sami hlutur. Mér fannst kynlíf gott en samkynhneigð var ekki fyrir mig svo ég sneri mér fljótt að kvenfólki – einkum og sér í lagi stúlku sem hét Chastity, Hreinlíf. Hún var blessunarlega ómeðvituð um hvað nafnið hennar merkti, eins og hún var, satt best að segja, um mjög margt. Í fyrsta skipti sem Hreinlíf heyrði talað um „kynmök“ hélt hún að þau tengdust kinnunum. Kinnmök, býst ég við.

Á átjánda árinu hafði ég fikrað mig lengra áfram og fundið kynferðislegri forvitni minni svölun hjá einum leiðbeinandanna. Að vera forsjármaður hjá ríkinu hafði sína kosti. Ef einhver átti í vandræðum með fullorðinsárin var það Sarah: hálffertugur alkóhólisti með svikulan eiginmann, í snemmbúinni miðaldrakrísu. Ég varð henni úti um huggun og spennu, hún varð mér úti um kynlíf. Það spillti ekki fyrir að myndarleiki minn, sem fram til þessa hafði falið sig bak við krúttlegt bollufés, var nú sprunginn út í öllu sínu veldi. Kjálkarnir voru tónaðir, hárið hafði hrokknað fallega og líkami minn þroskast í form glæsilegrar karlmennsku.

Þegar ég útskrifaðist um átján ára aldurinn bjó ég yfir tveimur hæfileikum. Annar var að reykja dóp, hinn var að ríða leiðbeinandanum mínum og ég varð að rækta annan hvorn til að sjá mér fyrir húsaskjóli og mat. Það virtist ósennilegt að dópneysla gæfi vel í aðra hönd en hins vegar reyndist auðvelt verða sér úti um 50 dollara með því að sitja fyrir nakinn, enda skortir veröldina ekki miðaldra karlmenn sem vilja borga drengjum fyrir að standa naktir í stofunum þeirra. Ég setti þetta aldrei á siðferðisvog; ég var of upptekinn við að reikna út hvað 50 dollarar dygðu fyrir mörgum hamborgurum. Þaðan var líka stutt yfir í 150 dollara myndir með kynferðisathöfnum og – þar sem maður er hvort sem er farinn að stilla sér upp fyrir framan myndavél – mjög skynsamlegt að þrefalda tekjurnar með þátttöku í hreyfimynd. Hver vill ekki vera kvikmyndastjarna, ef út í það er farið? Tökurnar tóku í mesta lagi tvo daga, oftast bara fáeina tíma, sem er góður peningur fyrir átján ára mannveru án sérþekkingar. Með svo einföldum hætti upphófst ferill minn í klámi.

II

Ljós baðaði innanverð augnlokin og ég vaknaði við að snákurinn synti hægt upp mænuna og gleypti hana með liðalausum kjálkanum. Klikk, klikk, klikk, söng tungan um leið og hún hvæsti, ÉG ER AÐ KOMA OG ÞAÐ ER EKKERT SEM ÞÚ GETUR GERT Í ÞVÍ. Röddin var kvenleg – þannig veit ég að þetta var hún – og tunga hennar kitlaði sérhvern hryggjarlið um leið og hún fann sér veg að efsta hluta baksins. Þegar hún náði þangað sleikti hún neðstu gróp höfuðkúpunnar og skók sér nokkrum sinnum til að láta mig vita að hún hefði komið sér fyrir. Hreistur hennar neri á mér líffærin og lifrin þoldi högg frá kæruleysislegum sveiflum halans.

Ég lá í loftrúmi sem dró úr núningi og flýtti fyrir bata; sárabindin flöksuðust svolítið í uppblæstrinum. Á hvorri hlið rúmsins var hvítmálað rið, eins og röð upplitaðra beina, sem kom í veg fyrir að ég félli eða kastaði mér fram úr. Ég nefndi þetta rúm fljótt beinagrindamagann, lá í golunni sem blés gegnum rifjagrindina á meðan beinin komu í veg fyrir að ég villtist inn í nýjan kirkjugarð.

Ég var sloppinn úr öndunarvélinni en ég leit út eins og vúdúdúkka, ástunginn af endalausum slöngum. Þær vöfðust í hringi allt í kringum mig og ég hugsaði um Mínos þar sem hann vakti yfir inngangi helvítis og leiðbeindi syndurum í hinstu átt með því að vefja halanum um líkama þeirra. Fyrir hvern viðbótarvafning halans lá leiðin einum hring dýpra í hel. Svo ég taldi elsku slöngurnar mínar af einfaldri forvitni: hversu djúpt hugðist flokkari hins flára og dökka sökkva mér af grimmd sinni?

* * *

Hjúkrunarkonan virtist glöð yfir því að koma að mér vakandi. „Edwards læknir breytti lyfjagjöfinni til að vekja þig af dáinu. Ég næ í hana.“

Ég reyndi að tala en tilfinningin var eins og einhver hefði stungið kókflösku ofan í hálsinn á mér og troðið henni djúpt á kaf; í stað raddbanda var þar mulið gler. Hjúkkan sussaði á mig og svaraði spurningunum sem hún vissi að ég myndi spyrja ef ég gæti það. Ég var sjúkrahúsi, á brunadeildinni, sagði hún. Það hafði orðið slys. Ég var mjög heppinn. Læknarnir höfðu lagt hart að sér. Og svo framvegis, framvegis, framvegis. Mér tókst loks að rispa upp: „Hversu – lengi?“

„Næstum tvo mánuði.“ Hún aumkaðist yfir mig með brosi og snerist á hæli til að ná í lækninn.

Ég rannsakaði beinagrindarifjurnar. Á stöku stað hafði skín­andi hvít málningin verið kroppuð burt af viðþolslausum fingr­um. Málað hafði verið yfir skellurnar, að sjálfsögðu, en smávægilegur uppgröfturinn var enn sýnilegur. Hugur minn hvarflaði niður á við, gegnum lög málningarinnar. Hversu oft eru þessi rúm máluð? Fyrir hvern sjúkling? Hverja sex, hverja tólf? Hversu margir hafa legið hér á undan mér?

Mig langaði að gráta en tárakirtlarnir höfðu brunnið aftur.

* * *

Það var fátt annað að gera en flakka frá og til meðvitundar. Morfínið draup og snákurinn hreiðraði um sig í hverjum þumlungi hryggjarsúlunnar og hélt áfram að smella óhræsistungunni í höfuðkúpugrófina. Sleikt og kysst, dripp, dripp, dripp, draup dópið, hviss, hviss, hviss, söng snákurinn. Safalræður snáksins um innræti syndugrar sálar minnar virtust endalausar. Glamrinu og skarkalanum á ganginum linnti ekki, þúsund manns að votta hinum feigu virðingu sína. Niður sápuópera bergmálaði um herbergin. Kvíðafullar fjölskyldur hvísluðust á um það versta sem gat gerst.

Ég áttaði mig ekki alveg á umfangi hörmunga minna og velti mér enn upp úr fánýti eins og hvenær ég kæmist aftur í kvikmyndagerðina eða hversu mikið þessi litla spítalaferð myndi kosta mig. Það hafði enn ekki runnið upp fyrir mér að ég myndi aldrei snúa aftur til vinnu og að þessi ferð myndi kosta mig allt sem ég átti. Það var ekki fyrr en leið á vikurnar og læknarnir tóku að útskýra fyrir mér hryllileg smáatriði sjúkrasögunnar að ég byrjaði loks að skilja.

Bólgur líkamans höfðu hjaðnað og höfuðið á mér skroppið saman í næstum mannlega stærð. Andlitið á mér var ógeðslegt viðkomu fyrir óbrennda fingurna. Fæturnir voru festir til lofts með einangrunarlímbandi og ég var vafinn þykkum reifum sem hindruðu hreyfingu svo að ég klóraði mér ekki í græðivefina. Ég horfði á ónýtan hægri fótinn og sá ótrúlega títuprjónaþyrpingu á kafi í holdinu. Brunasjúklingar geta ekki klæðst gifsi úr trefjaefni – allt of ertandi – og því uxu út úr mér vélkóngulær.

Á brunadeildinni voru þrjár yfirhjúkrunarkonur: Connie, Maddy og Beth. Þær veittu ekki aðeins líkamlega aðhlynningu, heldur héldu líka láttu-ekki-deigan-síga ræður, sögðust trúa á mig svo að ég varð að trúa á mig sjálfur. Ég er viss um að Connie trúði öllum þvættingnum sem streymdi út um munnholið á henni en mér fannst Maddy og Beth líkari búðarlokum sem raðþuldu „Eigðu góðan dag.“ Hver og ein vann átta tíma vakt; saman fylltu þær út í sólarhringinn.

Beth vann eftirmiðdagana og sá um nudda mig, hún liðkaði liðamótin og neri vöðvana. Jafnvel þessi milda snerting fól í sér gríðarlegan sársauka, alla leið gegnum morfínið. „Ef við gerum þetta ekki herpist húðin á þér og þú átt ekki eftir að geta hreyft liðamótin nokkuð. Við gerðum þetta allan tímann sem þú lást í dáinu.“ Útskýring hennar dró ekkert úr sársaukanum. „Samdráttur er mikið vandamál. Ef þú gætir séð á þér tærnar sem eftir eru myndirðu reka augun í spelkurnar á þeim. Geturðu þrýst á mér höndina?“

Ég reyndi að þrýsta en vissi ekki hvort mér tókst það eða ekki; tilfinningin – eða raunar skorturinn á henni – var hreinlega of villandi. Ég vissi ekki lengur hvar líkami minn endaði.

Doktor Nan Edwards, aðallæknirinn minn og yfirmaður brunadeildarinnar, útskýrði að hún hefði gert á mér reglulegar aðgerðir í dáinu, skorið burt skaddaða húð og vafið mér í ýmiskonar staðgengla. Auk samgena ágræðslu (húð af mannslíkum) hafði ég fengið sjálfgræðslu, húð af ósködduðum hluta líkama míns, og ósamgena ágræðslu af svínshúð. Maður veltir ósjálfrátt fyrir sér hvort gyðingar og múslimar myndu hljóta samskonar meðferð.

„Þetta var algjör flýtimeðferð vegna þess að lungun í þér voru svo illa farin. Við urðum stöðugt að hækka súrefnisstreymið í öndunarvélinni sem er aldrei góðs viti,“ sagði Edwards læknir. „En þú hafðir þetta af. Þín hlýtur að bíða eitthvað býsna gott.“

Þvílíkur bjáni. Ég hafði ekki barist fyrir lífi mínu, ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að ég lá í dái og ég hafði sannarlega ekki barist fyrir því að vakna úr því. Aldrei hafði það hvarflað að mér þennan tíma sem ég lá í myrkrinu að ég yrði að snúa aftur til heimsins.

Edwards læknir sagði: „Ef ekki væri fyrir framfarirnar sem urðu á brunameðferð í Víetnamstríðinu …“ Rödd hennar fjaraði út, eins og það væri betra fyrir mig að fylla sjálfur í eyðurnar til að sjá á hvílíkum hamingjutímum ég lifði.

Hversu heitt ég óskaði þess að röddin í mér virkaði. Ég hefði sagt henni að helst hefði þetta mátt gerast á fjórtándu öld, þegar mér hefðu verið allar bjargir bannaðar.

* * *

Ég byrjaði feril minn sem klámmyndaleikari með gagnkynhneigðar kvenorgíur að sérfagi, þar sem ég naut margra kvenna á stuttum tíma án þess að glata stinningu. Vinsamlegast álítið mig þó ekki einhæfan; sem listamaður leitaði ég stöðugt nýrra áskoranna. Af óþreytandi samviskusemi víkkaði ég starfsreynsluna stöðugt út, með munngælum, rassgælum, þríreið, fjórreið, fjöldareið. Samkynhneigð var ekki fyrir mig þótt ég hafi alltaf fremur dáðst að mönnum sem gátu sveiflast til beggja átta. Ég var frekar áhugalaus um sadómasó, jafnvel þótt ég hafi gert nokkrar myndir með léttu fjötraþema. Ég var fráhverfur hvers kyns myndum þar sem pedófílísk hneigð kom við sögu. Skelfilegur óhroði, þótt ég verði að viðurkenna að Humbert Humbert fær mig til að flissa. Saurhneigð var algjörlega út úr myndinni þar sem hvergi í sál minni finnst löngun til að skíta á einhvern og því síður býr í mér hneigð til að vera áskitinn. Og ef ég telst snobb fyrir að vilja ekki taka þátt í myndum sem fela í sér kynlíf með dýrum, þá verður að hafa það: ég er snobb.

* * *

Ég lá í rúminu, skynjun mín öll á valdi tilfinningar þess að anda. Samanborið við öndun mína fyrir slysið var hún nú … hvert er besta orðið? „Áreynslusöm“ er ekki alveg rétt. „Þjökuð“ er betra og eins nærri hinu rétta og ég kemst. Þjökuð öndun mín var að hluta til orsökuð af sködduðu andlitinu, að hluta til af slöngunum sem liðuðust niður hálsinn og að hluta til vegna grímu allra sárabindanna. Stundum ímyndaði ég mér að loftið væri hrætt við að stíga inn í líkama minn.

Ég gægðist undir líkamsreifarnar, forvitinn að sjá hvað væri eftir af mér. Fæðingarörið sem hafði varið öllu lífi sínu fyrir ofan hjartað var ekki lengur einmana. Reyndar fann ég það varla lengur, svo makindalega hafði það hreiðrað um sig í kræklóttri óreiðu brjóstkassans. Á hverjum degi valsaði hersing af hjúkkum, læknum og þerapistum inn í herbergið mitt til að maka mig í smyrslum sínum og salva, nuddandi á mér hin rauðu Pompei-skriðuföll húðarinnar með þeim orðum að „mótstöðulaus teyging væri gríðarlega mikilvæg.“ Mótstöðulaus teyging, hugsaði ég, er sárari en andskotinn.

Ég hringdi stöðugt á hjúkkurnar og bað um meira morfín til að friðþægja snákinn en uppskar ekki annað en ávítur um að ég þyrfti að bíða. Ég heimtaði, grátbað, prúttaði og grét; þær fullyrtu að þær – árans drullurnar – hefðu bestu hagsmuni mína fyrir brjósti. Of mikil lyfjagjöf kæmi í veg fyrir að líffærin störfuðu sem skyldi. Of mikil lyfjagjöf gerði mig háðan. Of mikil lyfjagjöf myndi á einhvern hátt gera allt verra.

Inni í mér bjó snákur. Ég var lokaður inni í búri úr beinagrinda­rifjum. Víetnamstríðið virtist hafa átt sér stað mér til gagns og nauðsynjar. Fingurnir á mér og tærnar höfðu verið höggnar af og ég hafði nýlega frétt að jafnvel þótt læknarnir gætu gert reðursmíð, sniðið nýtt typpi úr vef úr öðrum handleggnum eða fótleggnum á mér, þá myndi ég aldrei aftur ná reisn.

Á hvaða mögulega hátt, hugsaði ég, gat meira morfín gert þetta verra?

* * *

Þegar hjúkkurnar þreyttust á kvabbi mínu um meira dóp sögðust þær ætla að kalla til geðlækni. Blái sloppurinn sem hann klæddist yfir fötin sín, til verndar brunasjúklingunum, passaði ekki sem skyldi og ég heyrði rifflaða flauelið nuddast upp við lærin á honum í hverju skrefi. Hann var með ört stækkandi skalla og ósnyrt hökuskegg í misheppnaðri tilraun til að hylja undirhökuna og hann státaði af bollukinnum einstaklings sem fær alla sína næringu úr sjálfsölum. Hliðstæða hans í dýraríkinu hefði verið jarðíkorni með kirtlavandamál, og hann teygði fram þófann eins og hann væri nýi besti vinur minn. „Ég heiti Gregor Hnatiuk.“

„Nei, takk.“

Gregor brosti breitt. „Á ekki einu sinni að gefa manni séns?“

Ég sagði honum að skrifa það sem honum sýndist í geðheilsumatið og við gætum þóst hafa lagt okkur fram. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég reynt að hafa gaman af þessu – sagt honum að ég hefði verið of lengi á brjósti og saknaði mömmu minnar eða að geimverur hefðu numið mig á brott – en hálsinn á mér þoldi ekki álagið sem fylgdi því að segja svona mörg orð í einu. Engu að síður tókst mér að koma því til leiðar að ég hefði lítinn áhuga á neins konar meðferð.

Gregor settist niður og fitlaði við skrifblokkina sína eins og skóladrengur að reyna að fela standpínu. Hann fullvissaði mig um að hann vildi aðeins hjálpa og notaði síðan fingurna, í fullri alvöru, til að gera gæsalappir utan um þá staðreynd að hann væri ekki þarna til að „fara inn“ í höfuðið á mér. Hrekkjusvínin í hverfinu hljóta að hafa barið hann til óbóta þegar hann var barn.

Mér tókst að kreista fram nokkur orð áður en hann fór: „Meiri verkjalyf.“ Hann sagðist ekki geta látið mig hafa þau svo ég sagði honum að fara. Hann sagði að ég þyrfti ekki að tala ef mig langaði ekki til þess en hann myndi deila með mér nokkrum aðferðum í skapandi sjónarspili til að takast á við sársaukann. Ég tók hann á orðinu og skapaði mér sjónarspil þar sem hann var horfinn út úr herberginu.

„Lokaðu augunum og hugsaðu um stað sem þig langar að heimsækja,“ sagði hann. „Þessi staður getur verið minning eða áfangastaður sem þig langar að heimsækja í framtíðinni. Bara einhver staður sem gerir þig hamingjusaman.“

Guð minn almáttugur.

* * *

Edwards læknir hafði varað við því að fyrsta skiptið sem ég vakti við húðflettingu yrði sársaukafyllra en svo að morfínið réði við það, jafnvel þótt skammturinn yrði stækkaður. Það eina sem ég heyrði var „skammturinn stækkaður“ og það kallaði bros fram á varir mínar þótt enginn sæi það undir reifunum. Aukadópið tók að hrífa skömmu áður en átti að færa mig og ég flaut um í fagurri vímu þegar ég heyrði skellina í skynsamlegum fótabúnaði Edwards læknis nálgast utan af ganginum.

Edwards læknir var á allan hátt meðalmanneskja í útliti. Hvorki falleg né ljót en gat haft sig til þannig að hún var ekki óaðlaðandi, þótt hún hefði sjaldnast fyrir því. Hárið á henni hefði litið út fyrir að vera þykkara ef hún hefði burstað það á morgnana en hún lét yfirleitt nægja að binda það aftur í hnút, kannski af hagkvæmnisástæðum, þar sem varla er hægt að mæla með því að hárlubbi reytist yfir brunasár. Hún var ögn yfir kjörþyngd og – ætti maður að giska – ekki ólíklegt að á einhverjum tímapunkti hafi hún hreinlega gefist upp á því að telja kaloríur. Það var eins og hún hefði vaxið saman við þennan fábreytileika sinn og gengist við honum; nema ástæðan hafi verið sú að henni hafi þótt óviðeigandi að hugsa um útlitið innan um öll þessi fórnarlömb eldsins.

Edwards læknir hafði sjúkraliða með í för, rjóðleitan mannklump sem spenntist og hnyklaðist þegar hann teygði sig í áttina að mér samkvæmt skipunum hennar. Í sameiningu færðu þau mig úr rúminu mínu yfir á sjúkrabörur. Ég hrein eins og stunginn grís og komst um leið að því hversu líkami minn hafði hænst að legunni.

Brunadeildin er oftast fjarlægasta álman á hverjum spítala vegna þess að brunasjúklingar eru svo viðkvæmir fyrir sýkingum að það verður að halda þeim í vissri fjarlægð frá öðrum. Staðsetningin gegnir auk þess því mikilvæga hlutverki að draga úr líkum á því að spítalagestir hrasi um Kentucky-Fried-sjúkling. Það fór ekki framhjá mér að húðflettingarherbergið var fjærst í þessari fjærstu álmu en það sem ég vissi ekki fyrr en eftir á var að þetta var gert til að hinir brunasjúklingarnir heyrðu ekki öskrin.

Sjúkraliðinn lagði mig niður á skáhallandi stálrúm þar sem volgt vatn flaut um gljáfægt yfirborðið, blandað kristöllum sem stilltu af efnasamsetningu líkamans. Edwards læknir fjarlægði sárabindin af mér til að afhjúpa blóðugan kjötmassann. Þau gáfu frá sér flatan dynk um leið og hún lét þau falla ofan í járnskál. Á meðan hún þvoði mér hreiðraði andstyggðin um sig í munnvikum hennar og vansældin kom sér fyrir í fingurgómunum. Vatnið sem flaut um mig tók á sig bleikan lit. Síðan dökkbleikan, ljósrauðan, dökkrauðan. Myrkt vatnið þyrlaðist kringum litlu kjötklumpana mína sem minntu á fiskinnyfli á aðgerðarborði.

Allt var þetta aðeins forspil að aðalviðburðinum.

Húðfletting er eins konar rista á manneskju, allt skorið burt sem mögulega getur farið. Tæknilega felur hún í sér brottnám dauðra eða sýktra vefja kringum sár í því skyni að heilbrigð húð geti vaxið þar í staðinn. Sjálft fræðiheitið – débridement – er tekið úr frönsku, þar sem það þýðir bókstaflega að losa úr beisli. Orðsifjarnar er auðvelt að útskýra: brottnám sýktra vefja af líkamanum – brottnám heftandi efnis – vekur upp myndina af því þegar beisli er tekið af hesti, þar sem beislið er sjálft heftandi. Óbeislaða manneskjan er því frelsuð undan aðskotahlutnum.

Svo stór hluti húðarinnar hafði orðið fyrir skaða að brottnám rotnandi vefja fól í raun í sér að allt var skafið burt. Blóðið úr mér gusaðist upp á Edwards lækni svo rauðir taumarnir lituðu sloppklæddan barminn. Hún notaði einhvers konar rakvélarapparat til að skafa af mér leðrið, ekki ólíkt því þegar skrælara er beitt á mat.

Edwards læknir fór í langar – nei, þetta er of formlegt. Ástandið gerði okkur nákomnari en grimmustu elskendur svo hvers vegna ekki að nota fornafnið hennar? Nan fór í langar dýfur yfir bakið á mér. Ég heyrði í blaðinu þar sem það rann eftir líkama mínum og losaði burt skinnið. Eina leiðin fyrir hana til að vita að hún væri komin að góða vefnum var að skera hreinlega inn í hann. Ef ég öskraði af sársauka hafði hún grafið nógu djúpt til að finna starfandi taugaenda. Eins og Blake skrifaði í Hjónabandi himnaríkis og helvítis: „Þú veist aldrei hvað er nóg fyrr en þú veist hvað er meira en nóg.“

Nan lagði frá sér þunnar húðflögurnar í sömu skálina og geymdi skítugu sárabindin af mér. Þetta var eins og að horfa á sjálfan mig hverfa, sjá vörður tilveru minnar fjúka burt, millimetra í einu. Sársaukinn sem blandaðist morfíninu kallaði upp áhugaverðustu myndir í huga mér: Joe McCarthy öldungadeildarþingmaður baulandi „Betri dauður en rauður“; smiður að safna saman krossum sem hinir krossfestu yrðu negldir á; krufning í líffræðitíma þar sem áttundubekkjarskurðhnífar stungust inn í froskamaga.

Þegar ég var fullfleginn varð að þekja berskjölduðu svæðin með græðivefjum af líki eða svíni. Uppruninn skipti aldrei máli því líkami minn hafnaði þeim undantekningalaust hvort sem var. Það mátti búast við þessu þar sem græðivefirnir áttu aldrei að nýtast til frambúðar; þeir voru þarna fyrst og fremst til að koma í veg fyrir sýkingu.

Á meðan á spítaladvöl minni stóð var ég fleginn lifandi trekk í trekk. Húðflettingin er á margan hátt skelfilegri en sjálfur bruninn. Andstætt slysinu sem gerði ekkert boð á undan sér vissi ég alltaf hvenær von var á húðflettingu. Ég lá í beinagrindamaganum og kveið hverri framtíðarstroku hnífsins, sá hana hundrað sinnum fyrir mér áður en sjálf stundin rann upp.

Ég mátti ráða hversu mikið ég tróð mig út af morfíni – „til að efla þig“, sögðu þau – og ég hamaðist brjálæðislega á takkanum. Einhver skítahindrun á heildarflæðinu kom þó í veg fyrir of stóran skammt: svo langt náði sú efling.

* * *

Tuttugu og þriggja ára hafði ég leikið í meira en hundrað klámmyndum af ýmsu sauðahúsi. Margar þeirra fyrstu eru frumstæðar en ég tel nokkrar þeirra seinni vera raunverulega sæmandi listaverk.

Klám er eins og hver önnur vinna: maður byrjar hjá smáfyrir­tækjum og eftir því sem starfsreynslan eykst færist maður ofar. Í upphafi vann ég með leikstjórum sem stóðu vart þrepi ofar viðvaningum – en hið sama mátti líka segja um sjálfan mig; ég hafði enn ekki lært að kynlíf, hvort sem er fyrir bíó eða annað, snýst ekki um að hamra sér leið að fullnægingu.

Ég lærði kynlíf á sama hátt og allir, með því að stunda það; sá dagur rann upp að bókasafnið var ekki tæmandi uppspretta þekkingar. Ástundun, ekki kenning, kenndi mér að leikari getur ekki flýtt sér í átt að fullnægingu án þess að valda áhorfandanum vonbrigðum – en hann getur heldur ekki riðið út í hið óendanlega án þess að verða leiðinlegur, og í þessu fólst hið gullvæga jafnvægi. Að sama skapi komst ég að því að það eru engin staðalbrögð sem virka við öll tilefni og að fínstilling hreyfinganna næst aðeins með því að hlýða kalli mótleikarans.

Mér er ekki í mun að gorta en það var aðdáunarvert hversu hratt mér fór fram. Aðrir tóku eftir þessu: eftirspurn eftir þjónustu minni jókst, leikstjórarnir mínir urðu æ mikilsmetnari, konurnar sem ég vann með hæfileikaríkari, og kaupið hækkaði. Orðstír minn, frammistaða og ósérhlífni barst víða, bæði meðal neytenda og fagfólks.

Að lokum nægði mér ekki að vinna bara öðrum megin við myndavélina og fór fram á að mér yrði veitt fjölbreyttari ábyrgð. Sístritandi starfsliðið var aðstoðinni fegið; ég hjálpaði til við ljósabúnaðinn og spurði tökumanninn hvar ljósið félli, fylgdist með sviðsetningu leikstjóranna og var orðinn nógu reyndur til að geta oftar en ekki komið með góðar tillögur. Ef framleiðandinn lenti í vandræðum – ef leikkona forfallaðist á síðustu stundu eða ef tökuvél bilaði – þá átti ég nógu marga vini í bransanum til að geta leyst vandann með nokkrum símtölum.

Áður en leið á löngu hafði ég tekið að mér skriftirnar, svo langt sem það nær að tala um klámmyndir og skriftir. Rithöfundur getur diktað upp aðstæður en þegar kemur að sjálfum atganginum er fátt hægt að skrifa nema KYNLÍFSSENA HÉR. Einn leikari er öðrum ólíkur: sumir neita að stunda endaþarmsmök, sumir fást ekki til lesbíukynlífs. Og svo framvegis. Og þar sem maður veit aldrei hvaða leikari mun taka að sér tiltekna senu má maður ekki skilgreina hana um of. Endanlegar ákvarðanir eru alltaf teknar á tökustað.

Þrátt fyrir kókvana, sem varð svo sterkur að risavaxnar moskítóflugur fengu hvítuna af því að stinga mig, var ég ekki ógreindur ungur maður. Ég vissi allt um hvernig átti að græða á klámi því það er óháð ástandi þjóðfélagsins. Og fleira kom til. Mér fannst gaman að skrifa og leika og leit svo á að vinnan mín fullnægði listrænum metnaði ekki síður en bankareikningnum. Eftir að hafa leikstýrt nokkrum myndum áttaði ég mig á því að feiti bitinn fólst ekki í að leika fyrir aðra, heldur að fá aðra til að leika fyrir mig. Svo ég stofnaði mitt eigið framleiðslufyrirtæki frekar ungur og varð „farsæll framkvæmdastjóri í kvikmyndaiðnaðinum með umfangsmiklar tekjur.“

Stundum fannst mér þetta betri leið til að kynna sjálfan mig en sem klámhöfund.

* * *

Ég var auðvitað ekki eina fórnarlambið á brunadeildinni. Sjúklingar komu og fóru. Sumir luku meðferðum sínum og héldu sína leið á meðan aðrir dóu. Sem dæmi: einn sjúklingana var Thérèse, fullkomlega yndislegt barn með ljóst hár og safíraugu.

Ásjóna Thérèse gaf manni ekki minnstu vísbendingu um að hún hefði brennst því öll eyðilegging hennar var innvortis. Thérèse hafði fengið ofnæmisviðbrögð – ekki ósvipuð efnabruna í lungunum – við sýklalyfjum sem sefuðu astmaköst. Ég heyrði einn lækninn útskýra þetta fyrir kandídatinum sínum: „Fyrir hana var þetta eins og að fá sér stóran sopa af illgresiseyði.“

Móðir Thérèse, klædd dökkgrænum slopp sem gaf til kynna að hún var gestur, kom með ótrúlegustu endaleysur af plastblómum. (Alvörublóm sem bera með sér bakteríur í milljónatali gátu verið útsendarar dauðans.) Móðirin var guðhrædd og hamraði á því við stúlkuna að sérhvert atvik væri hluti af hinu stóra plani Guðs. „Við getum ekki vitað hvers vegna hlutirnir gerast, bara að Guð hefur stórfengleg áform fyrir hvert og eitt okkar. Ástæður hans eru réttlátar þótt við séum kannski ekki fær um að skilja þær.“ Sjálfum fannst mér það fátækleg hugmynd að segja sjö ára stúlku að stórfengleg áform Guðs væru að brenna í henni lungun.

Howard var annar sjúklingur á deildinni. Hann hafði brennst löngu áður en ég kom, í húsbruna sem varð eftir að Alzheimer-veik amma hans sofnaði með sígarettu á milli fingranna. Hún lifði brunann ekki af en það gerði hann aftur á móti og nú vann hann af kappsemi að öllum þáttum batans. Hann notaði göngugrindurnar, hann krullaði saman litlu silfurlóðin sín og hann gekk tíu skref einn daginn og tólf þann næsta. Það skein af honum í hvert sinn og hann þreyttist ekki á að segja mér að hann myndi „sigrast á þessu“ og „endurheimta líf sitt.“ Þessar yfirlýsingar mögnuðust bara eftir að unnusta hans sagði honum að þau myndu ekki gifta sig.

Þegar Howard útskrifaðist kom öll fjölskylda hans og fjölmargir vinir (þar á meðal fyrrverandi unnustan) til að fagna með honum á brunadeildinni. Þau komu með köku og allir sögðu honum hversu vel hann liti út og hvað þau væru stolt af honum. Howard talaði um að þetta væri „fyrsti dagurinn af því sem eftir lifði ævinnar.“ Þetta var allt einn sirkus, jafnvel hvernig þau pökkuðu niður í töskurnar hans. Howard skakklappaðist að rúminu mínu og greip í góðu höndina. „Ég sagði þér að ég myndi sigrast á þessu. Ég sagði þér það. Þú getur það líka!“ Hann blikkaði mig í von um að það hvetti mig til dáða en þar sem húðin herptist svo kringum augun minnti þetta mig bara á húsflugu sem rembist við að komast upp úr klósettskál.

Þar sem hann gekk út úr herberginu með foreldrana hvort við sína hlið varð honum ekki litið til baka til að skima í síðasta sinn yfir brunadeildina sem hafði verið heimili hans svo mánuðum skipti; ég sá að hann hugðist aldrei horfa um öxl.

Ég býst við að þetta sé hjartnæm saga af mannlegum sigri: staðfesta, ást á fjölskyldu og vinum, og jákvætt hugarfar! En í alvöru, hvern var hann að blekkja? Unnusta Howards hafði með réttu látið sig hverfa – hver myndi (geta) elska(ð) púka? Myndi hann nokkurn tíma stunda kynlíf aftur? Myndi hann fara í gegnum lífið með foreldra sína hvort undir sinni hendinni sér til stuðnings eins og hann væri að eilífu tveggja ára? Hvar, spyr ég, felst sigurinn í því?

Howard hafði lagt mun harðar að sér en ég hafði í hyggju. Ég hafði hlustað á hann tala um hvernig hann ætlaði að láta sér batna. Ég hafði hlustað á alla segja hversu vel hann liti út, þegar raunin var sú að hann leit út eins og skrímslið sem hver einasta heilbrigð manneskja hleypur yfir götu til að forðast. Mig langaði að öskra þegar hann tók í höndina á mér því jafnvel ég vildi ekki að hann snerti mig. Hann vakti mér viðbjóð, þessi hlutur, bróðir minn.

Viðbrögð mín höfðu reyndar lítið með hann að gera; þau spruttu af þeirri uppgötvun minni að sama hvað ég gerði yrði ég aldrei sá sem ég var. Ég gæti æft mig daglega, þrælað mér gegnum þúsund aðgerðir og ég yrði enn sama vessabólan af manneskju. Það er engin lækning til við því sem ég er. Það er sá lærdómur sem ég dró af frábæru afreki Howards. Það var það sem rann upp fyrir mér þegar ég lá í beinagrindamaganum og snákurinn gleypti í sig hrygginn í mér. HANN ER ALVEG EINS OG ÞÚ, hvæsti hún, EN MEÐ BETRI SÁL.

Það sem sló mig enn verr: jafnvel þótt ég hefði getað snúið aftur til lífsins fyrir slysið, hversu miklu betra hefði það verið? Jú, ég hefði orðið myndarlegur. Jú, ég hefði haft fullar hendur fjár og feril á að byggja. En (tölum bara tæpitungulaust) ég hefði verið kók-rotinn klámleikari. Mér var sagt að vinir mínir, sem höfðu hlegið að bröndurunum mínum þegar ég reykti með þeim dóp á sundlaugarbakkanum, hefðu heimsótt mig þegar ég lá í dáinu – en hver og einn litið á mig í minna en mínútu áður en hann gekk út, til að snúa aldrei við aftur. Eitt auglit var nóg til að sannfæra þá um að dagar sniffs og jóna væru að eilífu liðnir.

Eftir að ég vaknaði var Candee Kisses eina manneskjan sem raunverulega reyndi, indæl stelpa sem fór í klám aðeins vegna þess að alheimurinn er ranglátur. Þegar hún var sautján ára var hún orðin þreytt á að stjúpfaðir hennar nauðgaði henni; hún var reiðubúin að gera hvað sem var til að sleppa frá honum. Sem hún gerði. Hún hefði átt að búa einhvers staðar á bóndabæ, gift duglegum manni sem hét Jack eða Paul eða Bill, í stað þess að vinna fyrir sér með því að sjúga tittling fyrir framan myndavél.

Candee kom nokkrum sinnum, færði mér litlar gjafir og reyndi að hressa mig við með því að segja mér hversu heppinn ég væri að vera enn á lífi en aðallega grét hún. Kannski var það vegna þess hvernig ég leit út; líklegra var þó að gráturinn væri af eigin raunum. Eftir þrjár heimsóknir lét ég hana lofa mér því að hún kæmi ekki aftur. Hún stóð við loforðið. En þetta er það undarlega: ég þekkti hana í fimm ár, ég stundaði kynlíf með henni og hafði heyrt sögur hennar um stjúpföðurinn en ég vissi ekki hvað hún hét í raun og veru. Kannski eru bara vissir hlutir sem maður skilur að baki þegar maður velur nýtt líf.

Þegar Howard og foreldrar hans hurfu út um gættina á brunadeildinni missti ég grímu yfirvegunarinnar. Brjóstkassinn gekk í bylgjum um leið og reiði og sjálfsvorkunn köstuðust upp eins og æla og skaddaður hálsinn á mér hleypti loftinu út í blásturskenndum andköfum.

Þá kom stúlkan Thérèse til mín. Það var ótrúleg og pínandi áreynsla fyrir hana og ég heyrði skrölta í lungunum hennar í hvert sinn sem hún andaði. Hún var að niðurlotum komin þegar hún náði að rúminu mínu. Hún klifraði upp á það og tók í höndina á mér. Ekki óbrenndu hægri höndina, heldur þá skemmdu vinstri með þremur og hálfa fingrinum og hún hélt í hana eins og hún væri venjuleg. Það var svo sárt að vera snertur þarna að þótt ég væri þakklátur snertingunni sárbændi ég hana um að fara.

„Nei,“ svaraði hún.

Ég réð enn ekkert við bylgjurnar sem gengu um brjóstkassann. „Sérðu ekki hvað ég er?“

„Jú,“ sagði hún. „Þú ert alveg eins og ég.“

Stór, blá augu hennar, geislandi gegnum sársaukann, viku ekki af ónýtu andliti mínu.

„Farðu,“ skipaði ég.

Hún sagðist þurfa að hvíla sig aðeins áður en hún sneri aftur í sitt rúm, og bætti svo við: „Þú ert fallegur í augum Guðs, vittu til.“

Hún lokaði augunum og ég horfði á þreytuna í andliti hennar draga hana inn í svefninn. Síðan hallaði ég augunum aftur, eitt andartak.

Hjúkrunarkonurnar vöktu mig fljótt. Thérèse var þarna í rúminu mínu og hélt enn í hönd mína, án þess að anda.

Það tekur ekki nema andartak.

* * *

Jæja þá, ég viðurkenni það: ég prófaði skapandi sjónarspilið sem Gregor hafði stungið upp á.

Ég hægði á önduninni og einbeitti mér að því að finna sem mesta þyngd í líkamanum, fyrst í afgangstánum tveimur: þungar, þungar. Síðan í fótunum, svo ökklunum. Því næst sneri ég mér að þungu kálfunum, þungu hnjánum og þungu lærunum. Alla leiðina upp, kviður, brjóst, háls, höfuð … með hugann við öndunina: inn, út, inn, út, hægt, rólega …

Það var þarna sem ég fór að hugsa um leggöng. Ég býst við að það hafi verið eðlilegt, þar sem ég hafði verið inni í hundruðum þeirra. Það eru til karlar sem vilja halda því fram að allar konur séu eins en þessir menn hafa augljóslega ekki verið með mörgum konum. Sérhver leggöng hafa sína eigin áferð, sína eigin dýpt og raka: hver og ein hafa sinn eigin persónuleika. Það er staðreynd.

Ég var mjög góður í kynlífi. Það var áhugamál jafnt sem atvinna. Utan vinnutíma var það mér ástríða að finna konur sem voru andstæða þeirra sem ég gerði myndirnar með. Ef þú vinnur á frönskum veitingastað, myndirðu þá vilja borða kræklinga á frídeginum þínum? Varla. Þú skutlast eftir einhverju á hverfisbúllunni. Ef þú vinnur við sjónvarpsframleiðslu gluggarðu í bók í dagslok. Sem atvinnuriðli sílíkonbomba fannst mér ánægjulegt að prófa öðruvísi konur. Með því að gaumgæfa orð mín án þess að leggja í þau sál mína – en láta sem svo væri – gat ég dregið upp hinn draumkenndasta töfraheim og dásamlegustu örlög. Með þessari náðargjöf orðsins gafst mér 1001 á vald, frá Scheherazade til suðurbæjar Selmu.

Samfarir fyrir framan myndavél fela í sér litla ánægju vegna þess að stundin er sviðsett, ávísunin í póstinum, og hvar er rómantíkin? En tilfinningin sem fylgdi því að taka – að vinna – konur sem voru ekki í leiknum var allt annars eðlis. Ánægjan var með húsmæðrum, lögreglukonum og riturum. Bókmenntaritstjórum. Fjósastelpum. Langhlaupurum, sjóstangveiðikonum, trjáplönturum, femínistahöfundum, atvinnuglímukonum, listakonum, þjónustustúlkum, bankagjaldkerum, sunnudagaskólakennurum, saumakonum, og opinberum starfskonum. Með móður þinni, systur þinni, kærustunni þinni. Ég sagði hvað sem er til að komast yfir konu þótt ekki væri nema í klukkutíma. Ég þóttist vera vinstrisinnaður, hægrisinnaður, hneigður að listum, karlmannlegur, viðkvæmur, valdsmannslegur, feiminn, ríkur, fátækur, kaþólskur, múslimi (bara einu sinni), stuðningsmaður fóstureyðinga, andstæðingur fóstureyðinga, hommahatari, hommi, kaldrifjaður, brjálaður af bjartsýni, búddamunkur og lúterskur prestur. Hvað sem aðstæðurnar kröfðust.

Ég man eftir konu sem hét Michelle. Kynlíf mitt með henni var það næsta sem ég komst fullkomnun við samfarir. Hún var þjónustustúlka með smá bumbu og angan af spældum eggjum og sósu og skartaði öri þar sem botnlanginn í henni hafði verið fjarlægður. Ég hafði fylgst með henni og eiginmanni hennar eiga í heiftarlegu rifrildi fyrir framan steikarabúlluna hennar. Eigin­maðurinn lét sig hverfa og hún settist niður á bekk, staðráðin í að gráta ekki. Ég gekk til hennar og fyrr en varði tókum við tal saman, fyrr en varði fór hún að hlæja, fyrr en varði vorum við komin heim til mín. Við fengum okkur smá kókaín og hlógum aðeins meira og fórum svo að leika okkur að því að kýla hvort annað í axlirnar. Þegar við byrjuðum að ríða var asi á öllu, síðan undrun yfir því hvað það var gott og síðan var stunið. Hún byrjaði aftur að hlæja og ég líka og síðan fór hún að gráta; hún grét allan tímann sem við vorum að – ekki af sorg, heldur losun.

Við héldum áfram svo klukkutímum skipti. Við virtumst liðast eftir þverhnípi þar sem hver taug vakti. Hún sagði mér frá öllu sem gerðist í og utan hjónarúmsins. Hún sagði mér að hún væri hrædd um að hafa aldrei raunverulega elskað manninn sinn. Hún sagði mér frá órum sínum um systur eiginmannsins og hvernig hún snerti sig á almannafæri þegar hún hélt – án þess að vera viss – að enginn væri að horfa, og hún sagði mér frá því hvernig hún stal smáhlutum úr búðinni á horninu vegna þess að það gerði hana graða. Hún sagði mér að hún tryði á Guð og fyndist gott að hugsa um Hann fylgjast með sér að gera hluti. Ég sagði henni að hún hefði verið mjög önnum kafin stelpa. Við hættum aldrei að ríða og ég fann að ég grét sjálfur yfir því hvað þetta var allt hrátt.

Húðin á mér mun aldrei virka svona aftur, svona næm fyrir hinni manneskjunni að ég veit ekki hvar hún endar og ég byrja. Aldrei aftur. Aldrei aftur verður húðin mín þetta fullkomna samskiptaafl; með því að glata húðinni í eldinum glataði ég líka tækifærinu til að hverfa í annarri manneskju. Að mestu er ég glaður yfir því að hafa fundið slíka líkamstengingu, þó ekki nema einu sinni, en ég hefði sannarlega óskað þess að það hefði verið með manneskju sem ég hitti síðar.

Kannski gekk ég augljóslega og af þrákelkni rangt fram í öllum mínum kynferðislegu viðskiptum. En kannski var líka raunin ekki sú. Hafðu vinsamlegast í huga að ég sá mörgum niðurdregnum konum fyrir umtalsverðum þægindum. Hverju skiptir þótt Kata Hvaðhúnhét hafi trúað því að ég væri nýlega fráskilinn og misskilinn listmálari? Maðurinn hennar hafði meiri áhuga á að drekka bjór með strákunum en að bjóða henni út að dansa svo það gerði henni eflaust óendanlega gott að ríða ókunnugum manni. Kjarni allrar upplifunarinnar fólst í því að ég gat án vandkvæða samlagað mig órum hverrar konu fyrir sig. Að gera þetta, að afkóða manneskju svo maður geti séð henni fyrir því sem hún vill og þarfnast, er list, og list mín var að ríða.

Konurnar vildu ekki þann sem ég var í raun og þær vildu ekki ást. Þær vildu holdlega smásögu af því tagi sem hafði þegar volgnað milli læranna á þeim til að segja frá í saumaklúbbnum. Ég var bara hreyfanlegt hold – ómetanlega fagurt ofan í kaupið – sem gerði þeim kleift að framkvæma sína villtustu óra.

Þetta er sannleikurinn: við þráum öll að komast yfir þann laglega því það staðfestir gildi okkar sjálfra. Svo talað sé fyrir hönd karlmanna, þá viljum við eiga fegurð kvennanna sem við ríðum. Við viljum kreista þessa fegurð þétt með gráðugu litlu fingrunum okkar, finna að eign okkar yfir henni sé óskoruð. Við viljum gera þetta á meðan konan glitrar í gegnum fullnæginguna. Það er fullkomnun. Og þótt ég geti ekki mælt fyrir munn kvenna þá ímynda ég mér – hvort sem þær viðurkenna það eða ekki – að þær óski hins sama: að eiga manninn, alla grófu karlmennskuna hans, þótt ekki sé nema í fáeinar sekúndur.

Þegar öllu er á botninn hvolft, hverju vörðuðu blekkingar mínar? Ég var ekki með alnæmi eða herpes, og þótt satt sé að ég hef fengið minn skammt af nálum í rassinn, gildir það ekki um alla? Svolítið pensilín dugar vel á slíkt. Á móti verður að segjast að það er auðvelt að gæla við minningar um minniháttar kynfærasýkingar eftir að typpið á manni hefur verið fjarlægt.

Skapandi sjónarspil er líklega ekki fyrir mig.

* * *

Connie, sú á morgunvaktinni, var sú yngsta, ljóshærðasta og sætasta af hjúkkunum mínum þremur, og hún aðgætti sárabindin mín þegar ég vaknaði. Þótt hún hafi verið almennt of hress fyrir minn smekk var hún með dásamlegt bros sem skartaði agnarskökkum tönnum og var alltaf einlæg í því að bjóða „Góðan daginn!“ Þegar ég spurði hana eitt sinn hvers vegna hún væri svona óskaplega indæl – erfið setning sem mér tókst þó að koma út úr mér – svaraði Connie að hún „vildi ekki vera vond.“ Það var eitt og sér afar hugljúft að hún gat ekki fyrir nokkra muni ímyndað sér hvers vegna ég hefði fyrir því að spyrja slíkrar spurningar. Í viðleitni sinni til að vera óumdeilanlega góð var sjaldgæft að hún kæmi á vaktina án þess að færa mér litla gjöf – gosdós sem hún hélt á fyrir mig á meðan ég saug innhaldið með röri, eða blaðagrein sem hún las upphátt þar sem hún taldi innihaldið geta höfðað til mín.

Beth, sem var meira en nokkrum árum eldri en hinar tvær, nuddaði mig í eftirmiðdaginn. Hún var of grönn og of alvarleg um alla hluti. Hárið á henni var hrokkið, jafnvel svolítið óstýrilátt, en maður sá að hún sleppti aldrei af því hendinni. Kannski hafði hún unnið of mörg ár á brunadeildum en hún neitaði að sýna minnsta kumpánleika í meðhöndlun sinni.

Maddy, sú á næturvaktinni, leit út fyrir að vilja heldur vera á bar að stríða gröðum háskólahnakka. Ekki endilega gefandi en óumdeilanlega stríðin. Jafnvel þegar hún annaðist okkur brunasjúklingana gætti hún þess að mjaðmirnar sveifluðust ögrandi í hvítu pilsinu. Hún var með það sem ég hafði jafnan kallað læmingjarass – semsé rass sem maður myndi elta alla leið fram af bjargbrún. Hún var óþekk, óþekk stelpa og mér flaug í hug að hún hefði gerst hjúkka til þess eins að geta fullkomnað hlutverk sitt sem óþæga-stelpan-í-hjúkkubúningnum. Hún greip mig einu sinni glóðvolgan við að stara á sig og sagði: „Þú varst bölvaður óþokki fyrir slysið, var það ekki?“ Þetta var fremur fullyrðing en spurning og hún virtist ekki vera reið, aðeins glettin.

* * *

Móðir Thérèse kom við seinna í vikunni til að sækja eigur dóttur sinnar. Hún sagði mér frá jarðarförinni; svo virtist sem borgar­stjórinn hefði sent „stórkostlegan liljuvönd“ og allir sungið sálma „með raddir reiddar Himni.“ Síðan tapaði hún þræðinum og horfði full löngunar út um gluggann að garðinum neðar í götunni þaðan sem bárust raddir frá börnum að leika sér í körfubolta. Hún leit skyndilega út fyrir að vera tíu árum eldri en andartaki fyrr og þegar transinn rofnaði varð hún skelfilega meðvituð um að ég hafði séð það.

„Fann Thé–“ byrjaði hún. „Mér skilst að dóttir mín hafi dáið í rúminu þínu. Fann hún …?“

„Nei,“ svaraði ég, „hún fann ekki til.“

„Hvers vegna fór hún … til þín?“

„Ég veit það ekki. Hún sagði mér að Guði þætti ég fallegur.“

Móðirin kinkaði kolli en brast svo í grát sem hún reyndi að troða aftur inn í munninn á sér. „Hún var svo góð stelpa. Hún átti skilið svo mikla–“

Móðurinni tókst ekki að ljúka við setninguna. Hún sneri við mér baki og því meir sem hún reyndi að vera kyrr því meir skulfu axlir hennar. Þegar henni var á endanum unnt að líta aftur á mig sagði hún: „Drottinn lætur aldrei neitt á herðar okkar sem við þolum ekki. Það verður í lagi með þig.“

Hún gekk í átt að dyrunum en stoppaði. „Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?“ Hún rétti úr bakinu. „Þetta er úr Sakaría 3:2. Heimurinn er góður.“

Síðan stakk hún plastblómunum undir handlegginn og fór.

* * *

Hver sá sem hefur varið löngum tíma á spítala veit að nefið á manni glatar þefskyninu í ammoníakloftinu. Á meðan á einni húðflettingunni með Nan stóð spurði ég: „Hvernig lykta ég?“

Hún strauk svitann af enninu með hvítri erminni og ég sá á henni að hún velti fyrir sér hvort hún ætti að segja mér sannleikann eða láta reyna á eitthvað skárra. Ég þekkti hana orðið þegar hér var komið: hún myndi velja sannleikann. Hún gerði það alltaf.

„Ekki eins illa og þú gætir haldið. Hún – ég meina, þú – lyktin af þér er fúin og gömul. Eins og hús sem allir hafa yfirgefið, með gluggana neglda aftur.“

Síðan sneri hún sér aftur að vinnunni, skóf og pússaði upp þetta hús sem eigandinn hafði yfirgefið. Mig langaði að segja henni að hafa ekki fyrir þessu en vissi að Nan myndi bara láta munnvikin síga og halda áfram með vinnu sína.

* * *

Ófær um að sjá um sjálfan þig á spítala ertu ofsóttur af ókunnugum: ókunnugum sem flá þig lifandi; ókunnugum sem geta ómögulega makað þig í nægu Eucerine-kremi til að halda aftur af kláðanum; ókunnugum sem þráast við að kalla þig elskuna sína eða ástina þegar það síðasta sem þú ert er elskan þeirra eða ástin; ókunnugum sem halda að þú hressist allur ef þeir pússa fram bros eins og gifsplötur á ógeðsleg andlit sín; ókunnugum sem tala við þig eins og heilinn í þér sé steiktari en andlitið; ókunnugum sem reyna að láta sér líða vel með því að „gera eitthvað fyrir þá ólánsamari“; ókunnugum sem kjökra vegna þess eins að þeir hafa augu sem sjá; og ókunnugum sem vilja kjökra en geta það ekki og verða fyrir vikið hræddari við sjálfa sig en brunarústina af þér.

Þegar ég hafði fengið mig fullsaddan af sjónvarpi taldi ég holurnar í riffluðu loftinu. Ég taldi aftur til að sannreyna niðurstöðuna. Ég lagði pukrið í skuggum sólsetursins á minnið þar sem þeir skriðu niður veggina. Ég lærði að þekkja skaphöfn hjúkrunarkvennanna frá degi til dags með því að hlusta á smellina í fótataki þeirra. Leiðindin voru minn rekkjunautur og þau sölsuðu undir sig sængurfötin. Snákurinn hélt áfram að kyssa á mér höfuðkúpugrófina, tíkin sú. ÉG ER AÐ KOMA. Ég var bugaður af fölva og því að svelgjast á sýklalyfjum. Mig langaði að skríða gegnum þvaglegginn minn og drukkna í eigin hlandi.

Eins slæmt og ástandið var þá versnaði það þegar Nan útskýrði fyrir mér að þegar spítalavistinni lyki – sem yrði ekki fyrr en eftir marga mánuði – þá yrði mér komið fyrir á vistheimili fyrir „enduraðlögun“ mína að samfélaginu. Á endanum, sagði hún, yrði ég að mestu fær um að sjá um mig sjálfur og búa einn.

Sautján árum eftir lausn mína af ríkisheimili myndi ég rata inn á aðra tegund þess að nýju – en þegar ég var auralaust barn átti ég þó alltént lífið framundan. Þrjátíu og fimm ára var ævi minni eytt. Útbrunninn.

Svo ég hlustaði á læknana og kinkaði til þeirra jájáum þegar þeir sögðu mér frá komandi skurðaðgerðum þótt þeir hefðu eins getað sagt mér frá væntanlegri ferð minni til borgarinnar á botni hafsins. Ég staðfesti samþykki mitt með undirskriftum; ég undirskrifaði frá mér húsið mitt og allar jarðneskar eigur. Meðferð við bruna á borð við minn getur auðveldlega kostað hálfa milljón dollara og það þarf lítið að hafa sig við til að kostnaðurinn skríði vel yfir milljón.

Lögfræðingurinn minn kom í heimsókn og fann til óþæginda í sloppnum. Ólíkt hinum gestunum hafði hann ákveðið að setja að auki upp skurðgrímu; mér finnst fallegt að hugsa til þess að hann hafi gert þetta til að vernda mig en þykir líklegra að hann hafi hafi óttast sóttsmit. Hver sem ástæðan var fannst mér þetta viðeigandi: ég gat ómögulega horft framan í grímuklætt andlit hans án þess að ímynda mér þjóf sem var kominn til að ræna mig.

Hann sagði örfá orð um hversu leiður hann væri yfir slysi mínu; síðan, eftir að hafa afgreitt þetta formsatriði, dembdi hann sér í útskýringar á þeim alvarlegu vandræðum sem framleiðslufyrirtækið mitt væri komið í. Rót vandans voru vangjöld á uppfyllingu samninga um afgreiðslu nýs efnis til söluaðila; tökur hefðu lagst af um leið og ég var ekki lengur á staðnum til að stýra aðgerðum en afhendingarsamningar hefðu þegar verið undirritaðir. Hann fór í gegnum nokkra möguleika en þar sem ég hafði aldrei þjálfað neinn til að sinna skyldum mínum ef ég yrði óvinnufær kom í raun aðeins ein atburðarás til greina: gjaldþrot. Hann sagðist ekki vilja ónáða stanslaust á þessum „erfiðu tímum“ og því hefði hann þegar gengið frá skjölunum sem gerðu lánadrottnum mínum kleift að gera eigur mínar upptækar og taka þær til gjaldþrotaskipta. Að sjálfsögðu hafði hann séð til þess að umsýslan við gjaldþrotaskiptin yrði greidd fyrirfram.

Ég skrifaði bara undir allt sem hann lagði fyrir mig til að losna sem fyrst við hann út úr herberginu. Kaldhæðnin fór ekki framhjá mér: að eftir að hafa grætt alla mína peninga í holdbransanum lét ég nú alla mína peninga af höndum fyrir hold. Eftir að málið var frágengið og fyrirtækið mitt hafði jafnsnögglega lagt upp laupana vissi lögfræðingurinn ekki hvað hann ætti að gera annað en að segja einu sinni enn að honum þætti þetta leitt og láta sig svo hverfa eins fljótt og hann gat út af deildinni.

Og þannig fór líf mitt. Þegar læknarnir sögðu mér að ég sýndi batamerki gerði ég mitt besta til að líkja eftir brosi. Hjúkkurnar voru stoltar af mér þegar ég kreisti meðferðarboltann með brunnu hendinni. Þær héldu að ég gerði þetta til að styrkja mig en mig langaði bara til að þagga niður í þeim. Mér leiddist stríðnin í Maddy, alvaran í Beth, og bjartsýnin í Connie.

Ég lá þolinmóður í Eucerin-nuddinu sem hvert og eitt var endurtekin skylduathöfn. Í refagreninu í huga mér lagðist ég á bæn um tækifæri til að hlaupast á brott. Einu sinni lýsti Nan því kæruleysislega yfir að sár mín væru „klassísk áskorun“ fyrir lækni eins og hana sjálfa. Ég benti á að ég væri ekki vandamál sem bæri að leysa. Hún stamaði. „Það er ekki það sem ég meinti, ég – ég, ö … Þetta var óviðeigandi og mér þykir mjög fyrir því.“

Ég fann til örsnöggrar sigurvímu en spaugið í þessu öllu var að ég var algjörlega sammála henni: ég var vandamál sem þurfti að leysa þó svo að við sæjum það frá andstæðum sjónarhornum. Hún sá sárabindi mín sem lirfuhýði sem ég myndi skríða úr á meðan ég sá þau sem líkklæði.

Tíkarsnákurinn í hryggnum hélt áfram að sveifla halanum inni í mér og kreista út setninguna ÉG ER AÐ KOMA OG ÞAÐ ER EKKERT SEM ÞÚ GETUR GERT Í ÞVÍ. Mér stóð meira að segja orðið á sama. Snákurinn var að koma. Hvað með það? Aðeins enn eitt vandamálið á endalausum lista: Dachau-rústin í andliti mínu; líkaminn á mér: bein útsending frá Infernói Dantes sem stöðugt hótaði að rofna, falla saman. Húðskikkjan sem sveipaði holað helvítið í sál minni reis ekki lengur undir eigin þunga; heilindi mín höfðu alls staðar beðið hnekki. Einn læknir sem heyrt hafði af reðurtapinu leit við á spítalanum til að útskýra nýjustu hræringar í gervireðrum, ef mér hugnaðist að fá endursmíðaðan lim. Andstætt frumstæðum teinum á hjörum sem áður voru eina lausnin og gerðu limnum kleift að standa út í loftið eða hanga að öðrum kosti slöppum þá var nú möguleiki á að koma fyrir háþróuðum pumpubúnaði.

Slíkar tækninýjungar voru lítil huggun manni sem eitt sinn var dáður fyrir hæfileika sinn til að halda reisn alveg óguðlega lengi. Hve hátt er fall hins fræga.

Ég myndi einfaldlega láta mér batna nægilega til að vera sleppt og innan sólarhrings frá því ég yfirgæfi spítalann yrði ég dauður. Þetta var loforðið sem ég hafði gefið sjálfum mér og það var það eina sem hélt í mér lífinu.

* * *

Ég er trúleysingi.

Ég trúi því ekki að til sé guð sem muni refsa mér fyrir sjálfsmorð.

Vegna þess að mig skortir trúarsannfæringu hef ég aldrei talið slysið vera verk guðlegrar forsjónar til að refsa mér fyrir „ósiðlegar“ athafnir. Ég veit nákvæmlega hvað olli slysinu mínu. Vegna þess að ég var í vímu var ég haldinn ofskynjunum um að örvar stæðu að mér. Til að forðast ímynduðu örvarnar keyrði ég bílinn minn fram af raunverulegri bjargbrún. Eldsneytið í tankinum mínum gerði einungis það sem eldsneyti gerir sem er að fuðra upp þegar það kemst í tæringu við neista. Þegar logarnir gleyptu líkama minn tók líkami minn að brenna samkvæmt lögmálum líf- og varmafræði. Það er engin dýpri merking.

Ég skil að sumt fólk finni guð eftir ólukku, þótt mér finnist það jafnvel enn fáránlegra en að finna hann þegar allt leikur í lyndi. „Guð laust mig, hann hlýtur að elska mig.“ Þetta er eins og að vilja ekki rómantískt samband fyrr en fulltrúi gagnstæða kynsins lemur mann í andlitið. „Undursamleg lífsbjörg“ mín mun ekki breyta þeirri skoðun minni að himnaríki er hugmynd sem var smíðuð af manninum til að hjálpa honum að takast á við þá staðreynd að jarðlífið er bæði grimmilega stutt og, eins þverstæðukennt og það hljómar, allt of langt.

En svo allt sé leitt í ljós er rétt að ég greini frá því sem margir hinna trúuðu munu segja að hljóti að útskýra vantrú mína á guð. Þeir munu halda því fram að ég hirði ekki um himnaríki vegna þess að ef ég samþykkti það neyddist ég líka til að viðurkenna að örlög mín vísuðu til heljar.

Vegna þess að ég hef framið morð.

* * *

Mildur þytur, líkur ólgandi silki, líður yfir sál sem meðtekur yfir­vofandi dauða sinn. Þetta er blíður andvari í umróti hversdagsleikans. Silki þessarar tilfinningar blaktir – nei, „blaktir“ er of virkt orð – silkið umvefur þig eins og það hafi liðið til jarðar frá upphafi vega og loksins fundið takmark sitt. Fáni ósigursins hefur miskunnsamlega vera látinn falla og nú þegar missirinn á sér stað er hann ekki svo slæmur. Sjálfur ósigurinn er sigraður með því að fallist er á ósigurinn, og dauðanum er kyngt með sigri.

Hvæsið í snáknum deyr út og dauðinn strýkur ástúðlegri, verndandi hönd sinni: þetta er húsbóndinn sem strýkur hundi um kollinn eða foreldri sem huggar grátandi barn. Klukkutímarnir byrja að líða og dagarnir skera sig vart frá nóttinni. Myrkrið vellur eins og kyrrlát, undurfögur flóðbylgja og líkaminn þráir sefandi vögguvísur og útgöngusálma.

Ég get sagt þetta af sannfæringu: ekkert jafnast á við það að ákveða að deyja. Ég var með frábæra áætlun og hún fékk mig til að brosa. Hún fékk mig til að svífa léttar í loftrúminu mínu.

Ég var skrímsli, engum kær. Enginn myndi harma dauða minn; í sannleika sagt var ég þegar horfinn. Hver myndi sakna mín – læknarnir sem önnuðust mig? Nan gerði sitt besta til að segja öll réttu orðin og stappa í mig stálinu en hún var nógu vinsamleg til að ljúga ekki. Ég laug hins vegar að henni þegar ég sagðist vilja láta mér batna. Ég var að leggja lokahönd á áætlunina, vinna að henni á meðan hjúkkurnar hlúðu að ófrýnileika mínum, á meðan blíðar hendur þeirra trítluðu eftir líkama mínum eins og tignarlegustu skordýr á saurhaugum.

Sjálfsmorð er eitthvað sem maður vill ekki klúðra. Sérstaklega ef útlit er fyrir, eins og í mínu tilviki, að þú eyðir ævi þinni í formi núðlusúpunnar frá síðustu viku. Eina leiðin til að láta vont versna er að enda heiladauður eða lamaður frá toppi til táar, sem getur gerst ef maður misreiknar sig. Svo leyfið mér að endurtaka þetta: sjálfsmorð er nokkuð sem maður vill ekki klúðra.

Áætlun mín átti að taka gildi um leið og mér yrði sleppt af spítalanum vegna þess að á brunadeildinni var of vel fylgst með mér. Á vistheimilinu yrðu engir lásar eða öryggisverðir. Hvers vegna svo sem? Þessir staðir eru hannaðir til að koma fólki aftur út í samfélagið, ekki til að aftra því.

Ég átti enn nokkur þúsund dollara falda inni á reikningi undir fölsku nafni; þetta yrði meira en nóg. Ég myndi yfirgefa vistheimilið, haltra niður götuna, finna banka og taka út þessa peninga. Í fatabúð myndi ég verða mér út um frakka með hettu svo ég gæti fært mig úr stað óséður í heimi dauðlegra. Síðan myndi hin athyglisverðasta fjöruferð hefjast.

Að kaupa haglabyssu yrði auðvelt. Ég var þegar búinn að ákveða að hafa samband við Tod hvíthaug, smákrimma sem tæki hamingjusamur við klinki í skiptum fyrir ömmu sína. Tilfærsla á haglabyssu fyrir ríflega umbun myndi færa skítaglott á bólugrafið snjáldrið og hann myndi eflaust henda nokkrum skothylkjum með í kaupbæti.

Hinir hlutirnir yrðu jafnvel enn auðveldari viðfangs. Rak­vélablöð fást í hverri einustu matvöruverslun. Reipi fær maður í byggingavörubúðinni. Svefntöflur í næsta apóteki. Viskí í vínbúðinni.

Eftir að hafa aflað mér vistanna myndi ég tékka mig inn á hótel. Kominn einn inn á herbergi myndi ég taka nokkrar ofnæmistöflur, þó ekki gegn heymæði. Ég myndi koma mér vel fyrir yfir nokkrum klámmyndum á bláu rásinni á hótelinu, svona upp á gamla tíma að gera. Hver veit, kannski sæi ég sjálfan mig í kveðjuhlutverkinu.

Yfir myndinni myndi ég svo opna hlaupið á haglabyssunni til að hlaða inn nokkrum skothylkjum. Næst útbyggi ég snöru og aðgætti vel að hnúturinn væri í lagi. Markmiðið er að ekki að kyrkja mann, heldur brjóta hálsinn: stór, sterkur hnútur lætur allt ganga snurðulaust fyrir sig. Eftir að hafa útbúið glæsilega lykkju myndi ég snúa snörunni nokkrum sinnum í höndum mér, dást að henni og toga stoltur í hnútinn, því þú veist hvaða yndi karlmenn hafa af því að kippa í hnútana sína.

Ég myndi vafra út á svalirnar með byssuna mína og snöruna. Sólsetur. Ég myndi anda að mér kvöldloftinu. Breiða út faðminn til að umvefja borgina. Berja hnúunum tvisvar á brjóstið. Fullur styrks og karlmennsku festi ég reipið tryggilega á svalahandriðið. Ég myndi láta snöruna dingla fram af handriðinu til að fullvissa mig um að fallið væri nægt fyrir snarpan, fullnægjandi hnykk. Síðan myndi ég draga reipið aftur upp, óskandi þess að geta gert hið sama við bansettan tíkarsnákinn í hryggnum á mér.

Ég myndi snúa lokið af pilluglasinu og taka úr því fimm svefntöflur, skola þeim svo niður með glasi af viskí. Þetta hanastél yrði hið fyrsta af nokkrum slíkum. Það er alltaf gott að fá sér drykk á meðan maður horfir á sólina setjast. Á meðan ég melti þessa frískandi svaladrykki myndi ég taka eitt af rakvélablöðunum úr pakkningunni og skera ögn inn í reipið. Þessi aðgerð fæli í sér örlítið af menntaðri ágiskun, að skera reipið með þeim hætti að það slitnaði ekki samstundis í sundur í fallinu. Ég vildi að það héldi mér, að minnsta kosti í smástund þar sem ég danglaði á enda línunnar.

Ég myndi fá mér annað viskíglas og fimm svefntöflur í viðbót: svefntöflur geta framkallað uppköst séu þær teknar í of miklum mæli en ofnæmistöflurnar vinna gegn slíkum viðbrögðum og sjá til þess að svefndótið haldist niðri. Mjög sniðugt, hmm? Næst tæki ég vikuskammtinn af morfíninu sem ég fæ til að berjast við sársaukasnákinn og sprautaði honum í mig með einni unaðslegri nálarstungu. Til að fullkomna efnakokteilinn skolaði ég niður restinni af svefntöflunum með síðasta viskíglasinu. Nú ertu farinn að sjá hvernig áætlunin mín smellur saman.

Ég myndi hengja snöruna um hálsinn á mér og hafa hröð handtök því mig tekur brátt að svima, fröken Fima. Ég tæki annað gljáandi nýtt rakvélablað úr umbúðunum. Sjáðu hvernig glitrar á það í ljósinu, eins og blikki mig ímyndaður guð! Með fimu höggi risti ég upp á mér hægri púlsinn, djúpt og fumlaust, og svo þann vinstri á sama hátt. Þetta er mikilvægt: ég sker æðarnar á langveginn en ekki þvert. Fólk sem sker sig þverveginn á púls vill annað hvort ekki deyja eða er of heimskt til að lukkast það.

Ég sæti á svalabrúninni. Blóðugum höndum lyfti ég hlaðinni haglabyssunni og kæmi hlaupinu fyrir í munninum á mér. Ég myndi stilla hlaupið vandlega af svo höggið ferðaðist gegnum góminn á mér og inn í kjötkássuna í heilanum. Kosturinn við haglabyssu umfram skammbyssu er að miðið skiptir raunverulega engu máli. Höglin hundrað dreifa samstundis úr sér til að splundra fjandans höfðinu á þér í tætlur. Þetta er mjög fallegt.

Líkami minn sneri baki í borgina svo hvellurinn skyti mér yfir brúnina á svalahandriðinu. Með heilann tættan myndi ég detta en fallið yrði jafnframt snögglega stöðvað af snörunni sem brýtur á mér hálsinn. Í smástund myndi ég bara hanga þarna með dinglandi fætur. Raunar er möguleiki á því að ég myndi rykkjast til í krampaköstum; það er erfitt að segja. Úlnliðirnir flytu í blóði og hauskúpan væri klístruð kássa af grákvoðu, eitthvað líkt versta málverki Picassos. Það sem eftir væri af heilanum í mér færi að svelta af súrefnisskorti. Maginn flyti í viskíi og svefntöflum. Æðarnar dældu morfínsælu blóðinu út um svöðusárin á úlnliðunum. Og hafi ég skorið mátulega í bandið ætti það nú að byrja að trosna. Samfléttaðir þræðirnir myndu snúast hver frá öðrum og að nokkrum mínútum liðnum gefa endanlega eftir. Líkami minn félli tuttugu hæðir niður á gangstéttina fyrir neðan. Fallegt. Fullkomnun. Þetta er sjálfsmorð, svo miklu betra en kall á hjálp.

Að minnsta kosti var áætlunin mín svona. Aldrei hefur maður óskað dauða síns heitar en ég.

III

Leyfðu mér að byrja á að lýsa hári hennar – því í sannleika sagt væri ómögulegt að byrja á einhverju öðru. Hár hennar var eins og tartarískur vínviður sem óx að nóttu úr djúpi slíks óramyrkurs að sólin er þar aðeins orðrómur. Það dreifði villt úr sér um allt, dökkir lokkar með svo flæðandi aðdráttarafl að maður ímyndaði sér að þeir gleyptu á manni höndina, yrði maður nokkru sinni svo lánsamur að renna fingrum sínum í gegnum þá. Hár hennar var svo öfgakennt að jafnvel nú, mörgum árum seinna, er ég knúinn til að draga upp þessar fáránlegu myndlíkingar sem ég veit að ég mun sjá eftir að morgni.

Augu hennar eiga líka eftir að neyða mig í pínlegar útlistanir. Þau brunnu eins og græn hjörtu afbrýðisamra elskenda sem ásaka hvor annan um lágnættið. Nei, ég fer með rangt mál, þau voru ekki græn: þau voru blá. Haföldur ultu kringum sjáöldrin eins og óvæntur stormur sem býst til að hneppa sjómann burt frá ástkonu sinni. Nei, bíddu við … kannski voru augu hennar græn: stemningsaugu, kannski, eins og steindu hringarnir sem breyta um lit eftir hugarástandi eigandans.

Hún birtist í gættinni á brunadeildinni, klædd ljósgrænum spítalaslopp, með þessi óræðu augu og þetta berserkjahár, og ég beið eftir stununni sem ósjálfrátt barst frá öllum í fyrsta sinn sem þeir sáu mig. Ég beið þess að hún tæki fyrir munn sér af reiðarslaginu og ótta. Hún olli mér vonbrigðum með því að brosa bara.

„Þú hefur brennst. Aftur.“

Að jafnaði er það regla mín að bregðast ekki við stórundarlegum staðhæfingum ókunnugra en í þetta skiptið var ástæðan í fullri hreinskilni sú að ég vildi ekki að hún þyrfti að hlusta á stíflaða klósettið sem rödd mín var. Hálsinn á mér greri en eyrað (það sem virkaði enn) var enn ekki vant því hversu gæðin höfðu minnkað. Ég vildi aðeins að hún heyrði röddina sem ég hafði haft áður, þá sem gat lokkað konu upp í rúm.

Beint ofan í þögn mína tók hún aftur til máls: „Þetta er í þriðja sinn sem þú brennist.“

Ég beit á jaxlinn og leiðrétti hana: „Einu sinni.“

Svipbrigði hennar lýstu fáti. „Kannski ertu ekki þú.“

Hún kom nær rúminu mínu án þess að rjúfa augnsambandið og dró þykku plastgardínurnar fyrir til að tryggja okkur næði. Hún hallaði sér fram svo aðeins nokkrir þumlungar skildu að andlit okkar og gaumgæfði mig í framan. Enginn hafði nokkru sinni litið svona á mig, ekki fyrir brunann og allra síst eftir hann. Undir augum hennar, sem dönsuðu svo á milli bláa og græna litarins, voru dökkir baugar, eins og hún hefði ekki sofið svo vikum skipti. Þegar varir hennar snertu næstum mínar hvíslaði hún einu orði. „Engelthal.“

Á því er enginn vafi, lesandi góður, að einhvern tíma á ævi þinni hefurðu staðið augliti til auglitis við truflaða manneskju. Þú verður samstundis var við brjálæðið, oftast áður en manneskjan mælir orð frá munni, en þetta bjánalega orð útkljáði málið fyrir mér. Í rauninni er það ekki svo merkilegt að rekast á vitfirringa þar sem heimurinn er fullur af þeim; það sem vakti mér meiri áhuga var hvernig ég brást við. Að jafnaði hvetja viðlíka fundir mann einna helst til að láta sig hverfa. Ef maður er úti á götu lítur maður undan og hraðar sér en á brunadeildinni er ekki um annað að ræða en að þrýsta á hjúkkuhnappinn. En ég gerði það ekki. Einu viðbrögð mín við þessum hugsanlega sviplegu aðstæðum voru að bregðast alls ekki við. Svo hver var vitfirrtari, konan með villihárið eða ég?

Hún steig eitt skref aftur. „Þú manst ekki eftir því.“

„Nei.“ Hvað svo sem henni fannst að ég ætti að muna dúkkaði það greinilega ekki upp hjá mér.

„Það gerir þetta áhugaverðara,“ sagði hún. „Veistu að þeir reyna að eitra hjörtun mín?“

„Nei,“ svaraði ég aftur en var þó býsna forvitinn að fá að vita að hverju slík athugasemd vék. „Reyna þeir það?“

„Já. Ég má ekki leyfa þeim það því ég þarf að ljúka yfirbót minni.“ Hún horfði í kringum sig eins og hún óttaðist að einhver heyrði til hennar. „Hvernig brenndistu í þetta skiptið?“

Ég gat sagt nokkrar stuttar setningar í einu, svo lengi sem ég mundi eftir að taka mér málhvíld og anda, svo ég sagði henni frá nokkrum smáatriðum sem vörðuðu slysið – hvenær, hvar, hversu langt var liðið. Síðan spurði ég hana hvað hún héti.

„Þú veist hvað ég heiti.“ Hún þreifaði stöðugt á brjóstkassanum á sér eins og hún byggist við að finna þar eitthvað sem hana vanhagaði greinilega um. Hreyfingar hennar minntu mig á hvernig ég hafði alltaf strokið fæðingarörið mitt.

„Hvað ertu að gera?“ spurði ég.

„Þeir tóku af mér hálsfestina mína. Þeir sögðu að ég gæti notað hana til að skaða einhvern,“ svaraði hún. „Ung stúlka dó hér nýlega.“

Ég hugsaði um Thérèse. „Hvernig vissirðu það?“

„Ó, ég veit eitt og annað um hina látnu“ – hún hló – „en ég býst við að við séum heppin.“

„Hvernig þá?“

„Við höfum lifað sjö ára stúlku. Við höfum lifað hana hundrað­falt.“

„Um hvað ertu að tala?“

„Ég á hund sem heitir Bougatsa.“ Fingur hennar, sem héngu nú meðfram síðunum, kipptust til. „Hann á eftir að kunna vel við þig.“

„Mér er illa við hunda.“

„Það breytist.“

„Þeim er illa við mig.“

„Ó. Vegna þess að þú ert svo meinfýsinn og harður?“

Var hún raunverulega að hæðast að brunasjúklingi?

„Hvað merkir nafnið?“ spurði ég. „Bougatsa?“

„Þetta er fylling í grísku bakkelsi, og hundurinn minn er nákvæmlega eins á litinn. Kannski get ég komið með hann í heimsókn.“

„Hundar mega ekki koma hingað.“ Öndun. „Jafnvel blóm geta drepið mig.“

„Ha! Ekki halda að ég sé vitlaus. Þú veist að meiri hættur steðja að þér en hundur.“ Hún lagði höndina létt á brjóstkassann á mér, af blíðu. „Þín er sárlega freistað að stytta þér aldur og ég get ekki sagt að ég áfellist þig. En það er tími og staður fyrir slíkt og hann er ekki hér.“

Hvers vegna sagði hún annað eins? Ég varð að skipta um umræðuefni. „Þú lítur vel út miðað við að vera sjö hundruð ára.“

„Ekki þú,“ sagði hún og horfði niður eftir líkama mínum. Þetta var í fyrsta skipti sem nokkur hafði sagt brandara um brunasár mín. „Svo hvað finnst þér að ég ætti að gera við hjörtun mín?“

„Mér finnst …“ Ég gerði stutt hlé á máli mínu til að láta hana halda að ég velti þessu vandlega fyrir mér, þegar raunin var sú að ég var að undirbúa mig fyrir það hversu setningin var löng. „Mér finnst að þú ættir að láta réttmæta eigendur hafa þau.“

Augu hennar galopnuðust eins og ég hefði stungið lykli inn í leynilás og ég velti skyndilega fyrir mér hvort ég hefði ýtt á rangan takka á klikktöflunni. En jafnskyndilega varð upphafið augnaráðið fullt grunsemda. Hún færði sig að einu horninu á rúminu þar sem hún tónaði eitthvað á öðru tungumáli. „Jube, Domine benedictere.“ Latína? Stutt samræða fylgdi í kjölfarið þar sem hún talaði út í bláinn á máli sem ég skildi ekki og beið eftir svörum sem ég heyrði ekki. Eftir að fyrstu ímyndunarsamræðunum var lokið hneigði hún sig djúpt og gekk að öðru horni rúmsins til að endurtaka leikinn. Síðan að þriðja horninu. Hún lauk hverri samræðu á sama hátt og þær hófust – „Jube, Domine benedictere“ – og kom sér svo aftur fyrir eins og í upphafi án þessa að minnstu grunsemda gætti lengur í svip hennar.

„Meistararnir mínir þrír staðfesta að þú sért raunverulega þú. Það er fyrir þig sem ég hef verið að fullkomna síðasta hjarta mitt.“

Sjálf athöfnin að segja þetta skýrum orðum varð til þess að miklar tilfinningar fóru á flug í henni. Hún var við það að bresta í grát þegar hún sagði: „Ég hef beðið svo lengi.“

Í sama mund dró Beth gardínurnar frá. Henni virtist brugðið yfir því að ég skyldi hafa fengið gest eftir að enginn hafði heimsótt mig svo vikum skipti en undrun hennar breyttist fljótt í áhyggjur þegar hún greindi vitstola hamingjuna í augum konunnar. Þá sá Beth að þótt gesturinn minn væri klæddur í slopp var hann ekki dökkgrænn eins og gestaslopparnir, heldur fór þarna ljósara afbrigði sjúklingaslopps, og að liturinn á armbandi konunnar benti til þess að hún kæmi af geðdeildinni. Beth, fagmennskan uppmáluð eins og alltaf, réðst ekki beint til atlögu við gestinn en neitaði hins vegar að skilja mig eftir einan með henni. Hún kallaði strax á sjúkraliða til að „fylgja“ konunni aftur inn á geðdeild.

Mér fannst ég engu þurfa að kvíða og fagnaði því raunar að örlítilli geggjun væri sprautað inn í andrúmsloft sem var jafnþjakað sótthreinsuðum dauða. Á þeim fáeinu mínútum sem liðu áður en sjúkraliðinn kom héldum við konan áfram að tala saman, rólega, á meðan Beth stóð í horninu fjærst okkur og hélt vökulu auga yfir okkur. Gesturinn minn hvíslaði svo ekki heyrðist til hennar: „Við eigum sameiginlegan kunningja.“

„Ég efa það.“

„Þú sást hana bara einu sinni, í mannmergð. Hún getur ekki talað,“ sagði hún og hallaði sér nær, „en hún gaf þér vísbendingu.“

„Vísbendingu?“

„Hefurðu aldrei velt fyrir þér hvaðan örið þitt kemur í raun og veru?“ Gesturinn minn teygði hendurnar upp á barm sér og ég hélt að hún ætlaði að benda á blettinn þar sem örið var á líkama mínum en hún þreifaði bara árangurslaust eftir týndu hálsfestinni sinni.

Hvernig gat þessi kona giskað nákvæmlega á orðin sem höfðu staðið á miðanum frá flugsýningunni? Eigi að síður, ég er skynsemismaður – þetta var einkennileg tilviljun, annað ekki. Til að sanna það reyndi ég að villa um fyrir henni: „Allur líkami minn er eitt ör.“

„Ekki brunasárin þín. Örið sem þú fæddist með, það sem situr ofan hjartans.“

Í einmitt þessari andrá kom sjúkraliðinn og hóf að telja konuna á að fara. Beth hjálpaði með því að beita líkama sínum til að sveigja konuna í átt að dyrunum.

Rödd mín var enn ekki sterk en ég brýndi hana eins og ég gat. „Hvernig vissirðu það?“

Konan sneri sér aftur að mér og leiddi hjá sér handleggina sem drógu hana á olnbogunum. „Vandinn við fólk eins og okkur er að við deyjum ekki almennilega.“

Í þeim töluðu orðum tók sjúkraliðinn hana út úr herberginu.

* * *

Það er rökræn skýring á öllu; þess vegna var líka rökræn skýring á því hvers vegna þessi kona vissi af örinu mínu.

Fyrsta skýring: hún grísaði á það.

Önnur skýring: vinur minn var að grínast í mér, einhver sem hélt að það væri fyndið að senda á mig leikkonu sem þóttist vera trufluð manneskja með djúpstæða þekkingu á lífi mínu. Vandinn við þessa kenningu var sá að ég hafði aldrei sagt nokkrum vina minna frá asísku konunni á flugsýningunni, og að ég átti ekki lengur neina vini til að grínast í mér.

Þriðja skýring: þessi kona hreifst af klámmyndunum mínum og vissi af örinu á brjóstinu á mér. Það var vel skrásett í kvikmyndasögunni þar sem ég hafði aldrei haft fyrir því að hylja það með farða. (Of mikill sviti í mínu fagi). Nema hvað ég var ekki skráður inn á spítalann undir klámmyndanafninu, heldur alvörunafni mínu, og í ljósi þess hvernig ég leit út hefði verið ómögulegt að þekkja mig sem manninn sem ég hafði eitt sinn verið.

Lokaskýring: þessi kona elskaði klámmyndirnar mínar og hundelti mig, hafði fundið mig með því að þefa uppi framleiðslufyrirtækið mitt sáluga. Einhver, líkast til úrþvættið með lagagráðuna, hafði sagt henni frá slysinu og vísað henni í átt að brunadeildinni.

En ef hún var aðdáandi með þráhyggju, hvers vegna minntist hún þá ekki á gamla starfið mitt? Og ef hún hafði komið til að finna leikarann sem hún sá á skjánum, hvers vegna virtist hún þá svona ánægð að hitta hinn nýja mig? Og það sem meira var: þótt margt í fari konunnar væri sérkennilegt var sannarlega ekkert sem benti til þess að hún væri haldin örgustu klámfíkn. Trúðu mér, ég hef séð nógu marga perverta um dagana til að spotta þá í hvaða hóp sem er.

Ég bjóst við að þurfa einfaldlega að spyrja hana þegar hún kæmi aftur þar sem ég vissi einhvern veginn að hún myndi gera það. Þegar ég tilkynnti hjúkkunum að ég hefði ekkert á móti framtíðarheimsóknum frá konunni á geðdeildinni brostu þær allar einkennilega til mín. En sorglegt, hugsuðu þær eflaust, að ég skyldi hlakka til heimsókna frá truflaðri konu. En þetta sló mig ekki út af laginu og ég bað Beth meira að segja um að komast að því hvað konan héti. Hún neitaði að gera nokkuð slíkt svo ég bað Connie. Hún sagði líka að það væri andstætt reglum spítalans að miðla upplýsingum um annan sjúkling. Þessu svaraði ég með því að segja að það væri „mjög, mjög illkvittið“ af Connie að hjálpa mér ekki að komast að nafni einu manneskjunnar sem hafði heimsótt mig svo lengi. Og þar sem hún óskaði einskis heitar en að vera góð kom Connie brátt með upplýsingarnar sem ég hafði beðið um.

Konan hét Marianne Engel.

* * *

Ég var hærri fyrir slysið. Eldurinn herpti mig eins og skerpukjöt í þurrkun. Ég hafði eitt sinn verið jafnmagur og dásamlegur og þriðjualdar grískur drengur, með rasskinnar jafnþrýstnar og þriflegustu hálfmelónur, af þeirri tegund sem japanskir viðskiptamenn borga dágóða summu fyrir. Húð mín var jafnmjúk og hrein og ósnert jógúrt, maginn á mér skiptist niður í samhverfa holdpúða og handleggirnir á mér voru kraftalega skornir. En það var andlitið sem var mín helsta vegsemd. Ég var með kinnbein sem hefðu sómt sér í blautum draumum Verlaines. Augun í mér voru nógu dimm og djúp fyrir daglega leiðangra heilu hellarannsóknarhópanna. Samkynhneigður maður sagði mér eitt sinn hversu mjög hann þráði að leyfa plómu typpis síns að hvíla mjúklega á neðri vör minni. Ég hló að honum en geymdi minninguna í laumi sem dásamlegt hrós.

Eftir slysið hef ég reynt að losa mig við hégómann en ég á enn í erfiðleikum með hann. Ég man eftir fortíðinni þegar andlitið á mér var fullkomið og þegar vindurinn blés hárinu á mér svo það leit út eins og mjúkur dúnninn undir fuglsvæng. Ég man eftir því þegar konur sneru sér við á götu til að brosa til mín, veltandi því fyrir sér hvernig væri að eiga fegurð mína eitt skínandi andartak.

Ef þú fellst á lýsinguna af skepnunni sem ég er núna þá ættirðu líka að fallast á lýsinguna á fegurðarprinsinum sem ég var. Og síðan ég hitti Marianne Engel hafði ég fundið fyrir þessum missi – einkum í tómu samskeytunum milli fóta mér – af æ sterkari kennd.

* * *

Hún heiðraði dyragættina mína aftur um það bil tíu dögum seinna, klædd skikkju sem virtist vera með fínasta miðaldasniði. Þetta er ekki bara ég að grínast á þinn kostnað; hún var raunverulega klædd í slíka flík. Hettan hékk yfir andliti hennar og augu hennar skinu eins og akvamarín í námugöngum. Hún lyfti fingri að vörum til að vara mig við því að tala og færði sig laumulega að rúmstokknum. Mig langaði að skella upp úr en sá að fyrir henni var þetta alvörumál. Um leið og hún var kom að rimlunum dró hún gardínurnar fyrir svo við gætum, líkt og fyrr, haft okkar næði. Áhyggjur hennar voru óþarfar því á þessum tíma voru bara tveir aðrir sjúklingar á deildinni. Annar var í endurhæfingu, hinn hraut.

Á bak við plasttálmann áræddi hún að taka af sér hettuna – bara svolítið, ekki alla leið af – og ég sá að baugarnir voru horfnir undan augum hennar. Það var mun beittari bragur á henni en þegar við hittumst fyrst, og yfir henni allri lá þung angan af tóbaki. Ég velti því fyrir mér hvort henni hefði í raun tekist að laumast framhjá hjúkrunarkonunum eða hvort þær hefðu einfaldlega hleypt henni í gegn. Það að hún skyldi ekki vera í gestaslopp benti til að hún hefði komið án vitneskju þeirra. Hún hélt fast um hettuna, eins og reiðubúin til að draga hana fyrirvaralaust aftur yfir höfuðið.

„Ég vil ekki að þeir viti af mér hér.“

„Læknarnir?“

Marianne Engel kinkaði kolli. Ég sagði henni að það væri ekki mikið að óttast, þeir væru gott fólk.

„Þú veist ekki mikið um lækna.“ Hún fór inn undir hálsmálið á sér og dró fram leðurstreng með dinglandi örvaroddi. „Sjáðu, ég fékk hálsmenið mitt aftur.“ Hún lyfti því upp yfir höfuðið og hélt yfir brjóstkassanum á mér þannig að örvaroddurinn hékk eins og töfragripur í leit að hjarta mínu. „Má ég?“

Ég vissi ekki hvað hún meinti en kinkaði engu að síður kolli.

Marianne Engel beygði höfuðið þannig að slaknaði á leður­strengnum og oddurinn hvíldi á brjósti mér. „Hvernig er tilfinningin?“

„Eins og hann eigi heima þarna.“

„Hann á heima þarna.“

„Hvernig vissirðu um örið á brjóstinu á mér?“

„Engan æsing. Það tekur tíma að útskýra slíka hluti.“ Hún lyfti hálsfestinni af brjósti mér og setti hana aftur á sig. „Áður en lengra er haldið, mætti ég segja þér sögu af dreka?“

* * *

„Einu sinni var dreki sem hét La Gargouille og bjó í Frakklandi, nærri ánni Signu. La Gargouille var mjög venjulegur dreki með grænt hreistur, langan háls, beittar klær og litla vængi sem gátu engan veginn hafið sig til flugs en gerðu það samt. Eins og flestir drekar gat hann spúið eldi, spýtt kynstrum af vatni og rifið upp stærðarinnar tré með klónum.

Íbúarnir í næsta bæ, Rúðuborg, hötuðu drekann og óttuðust stöðugt um líf sitt. En hvað gátu þeir gert? Hann var miklu öflugri en þeir, svo á hverju ári færðu þeir fórn í von um að hann yrði til friðs. La Gargouille hafði mestar mætur á hreinum meyjum, eins og gjarnt er um dreka, en bæjarbúar áttu það hins vegar til að reiða fram glæpamenn. Hvað sem öllu leið þá var fólk étið, sem gerði þetta allt hið ógeðfelldasta mál.

Svona fór þessu fram í marga áratugi. Að lokum, í kringum árið 600 eftir Krist, kom prestur að nafni Romanus til borgarinnar. Hann hafði heyrt um La Gargouille og vildi fá að reyna sig við að temja skepnuna. Romanus lagði fram tilboð um að svo fremi sem fólkið reisti kirkju og hver einasti bæjarbúi væri reiðubúinn að gangast undir skírn myndi hann ganga frá drekanum. Bæjarbúum, sem voru alls engin fífl, fannst þetta gott samkomulag. Hverju höfðu þeir að tapa, öðru en drekanum?

Romanus gekk því að Signu og hafði með sér bjöllu, Biblíu, kerti og kross. Hann kveikti á kertinu og kom því fyrir á jörðinni, opnaði síðan Biblíuna áður en hann kallaði á La Gargouille. Skepnan birtist grunlaus út úr helli sínum; þegar öllu var á botninn hvolft var hann dreki, svo hvað hafði hann að óttast frá aumri mannveru? Ef eitthvað var mátti líta á slíkan gest sem dýrindisnýmeti til að gæða sér á.

Um leið og drekinn birtist hringdi Romanus bjöllunni – eins og til að tilkynna dauða – og tók að kyrja orð Drottins.

Drekinn hnussaði upp litlum reykbólstrum þegar hann heyrði hljóðið, eins og þetta skemmti honum, þar til rann upp fyrir honum að hann hefði ekki getað spúið eldi þótt hann hefði viljað það. Hann var með verk í lungunum sem tæmdust fyrr en varði af lofti svo hann gat varla andað.

Þessi skyndilega uppgötvun, að geta ekki drepið prestinn með svolitlum eldstrók, varð til þess að La Gargouille steypti sér í átt að manninum. Romanus lyfti upp krossinum og hélt honum af festu fyrir framan drekann sem fann að hann komst ekki áfram, líkt og ósýnileg hönd ýtti honum til baka. Hvernig svo sem skepnan sneri sér gerði presturinn slíkt hið sama og La Gargouille var ófær um að komast nær kvalara sínum. Með krossinn í annarri hendi og Biblíuna í hinni hélt Romanus áfram að lesa af trúfestu sinni; sérhvert vers var eins og ör í hreistur drekans og hver kafli eins og spjót í síðu hans.

La Gargouille hafði aldrei upplifað neitt þessu líkt alla sína ævi og tók að hörfa til baka. Hann leit til allra átta en Romanus beitti krossinum jafnharðan til að aftra skepnunni framgöngu. Þegar drekinn var loks innilokaður í helli sínum lét presturinn biblíuversin dynja á honum þar til hann hneig sigraður niður á hnén. Lokahnykkurinn var þegar Romanus lokaði Biblíunni og slökkti á kertinu; athöfnin var fullkomnuð og skepnan tamin.

Ófær um að berjast áfram hneigði La Gargouille höfuðið og leyfði Romanusi að hengja messuklæði sín yfir hálsinn á sér. Presturinn notaði síðan krossinn sinn til að festa þennan taum kirfilega og leiddi bugaðan drekann inn í bæinn.

Það var á allra vitorði að eina leiðin til að drepa dreka væri að brenna hann á bálkestinum og því var það gert. La Gargouille grét af sársauka en í augum bæjarbúa hljómuðu öskur hans eins og fegursta tónlist. Ópin héldu áfram allt til enda vegna þess að háls La Gargouille, jafnt sem höfuð, neitaði að brenna – hæfileiki drekans til að spúa eldi höfðu vanið þessi svæði við hitann. En þar kom að því að þeir drápu hann og bæjarbúar voru frelsaðir undan hinni miklu bölvun sinni.

Fólkið í bænum var heiðvirt og uppfyllti sinn hluta samkomulagsins. Hver einn og einasti íbúi gekkst undir skírnina og þeir byggðu kirkjuna. Óbrunnu höfðinu á La Gargouille var komið fyrir ofan á henni og það stóð þar öldum saman sem hin upprunalega fyrir­mynd eldspúandi gargana, ufsagrýla og steindreka.

* * *

Marianne Engel sökkti sér algjörlega í frásögnina sem gaf mér tækifæri til að virða hana ögn betur fyrir mér. Augu hennar, sem voru blá þennan daginn, hættu að skima til og frá í leit að læknunum. Hún starði svo ákaft og beint á mig að ég varð feiminn. Tilfinningin var hvorttveggja munúðarfull og kom mér úr jafnvægi.

Án efa hefðu sumir tregðast við að kalla hana klassíska fegurðardís. Tennurnar voru kannski ögn of smáar fyrir munninn á henni en mér hafa alltaf þótt tannvögl fremur kynæsandi. Ég býst við að augabrúnirnar hafi verið of þéttar fyrir smekk sumra karlmanna en, í hreinskilni sagt, þá eru þessir menn hálfvitar. Eina raunverulega bitbeinið hefði getað staðið um nefið á henni sem var vel að merkja ekki of stórt en sannarlega ekki smágert. Örlítill kúfur á nefhryggnum gaf til kynna að það hefði einhvern tíma brotnað en mér fannst þetta ljá henni persónuleika. Færa mátti rök fyrir því að nasirnar á henni víkkuðu of mikið út til hliðanna en allt skynsamt fólk hefði þó vísað slíkum rökum á bug.

Húð hennar var föl, þar sem hún fór ekki oft út í sólina. Hún virtist fremur grönn en feit þótt skikkjan gerði manni erfitt um vik að meta vöxt hennar. Hún var hærri en flestar konur en ekki nógu há til að rjúfa normið. Fallega hávaxin, mætti segja. Hversu gömul var hún? Erfitt að segja af einhverri nákvæmni en hún leit út fyrir að vera á ofanverðum fertugsaldri.

Löngu eftir að hún hætti að tala rann upp fyrir mér að ég starði enn á hana og hún brosti á móti, ekki móðguð heldur ánægð. Ég sagði það fyrsta sem mér datt í hug: „Skáldaðirðu þetta?“

„Nei, þetta er gömul þjóðsaga.“ Hún hló. „Ég hef engan hæfileika til að skálda upp sögur en ég þekki mannkynssöguna. Vissirðu til dæmis að Jóhanna af Örk fæddist í Rúðuborg og að öskunni af henni var fleygt í Signu?“

„Ég vissi það ekki, nei.“

„Mér finnst gott til þess að hugsa að líkami hennar sé enn hluti af vatninu.“

Við spjölluðum meira, um alls kyns hluti. Að lokum heyrðist kunnuglegt fótatak Edwards læknis og hún dró frá tjaldið.

„Ó!“ sagði hún hissa á því að mæta gesti. „Kem ég á slæmum tíma?“

Marianne Engel dró hettuna á sinn stað og tók á rás þannig að hún flæktist næstum í plasthenginu um leið hún braut sér leið framhjá lækninum. Á leiðinni út leit hún til baka á mig og grátbað: „Ekki segja frá!“

* * *

Dagana eftir heimsókn Marianne Engel byrjaði Nan að nota rafknúinn húðskera til að safna saman nothæfri húð af sjálfum mér til flutnings á sködduðu svæðin. Hún sagði mér að þetta væri skref fram á við í meðferðinni en mér leið ekki þannig. Í ósködduðu húðinni voru enn virkar taugar svo hver skurður reif í rauninni af mér líkamshulstrið og skildi eftir sig opin sár. Það tók hvert skurðsvæði um það bil tvær vikur að jafna sig áður en hægt var að endurtaka leikinn. Mér óx ný húð til þess eins að hægt væri að fjarlægja hana aftur; ég var leðurbýli og húðskerinn var þreskivélin.

Að loknum hverjum skurði var ég þakinn í kremum og mér pakkað inn í reifar. Nokkrum dögum seinna kom ein hjúkrunarkvennanna, oftast Beth, og setti mig í ný föt í fyrsta sinn eftir aðgerðina. Nan stóð álengdar og aðgætti hversu stór hluti ígræðslunnar hefði fest sig – þetta nefndist festan – og gróft mat var framkvæmt til að skera úr um hversu velheppnuð aðgerðin var. Áttatíu og fimm prósent festa þótti góð; allt minna en það varð til þess að Nan smellti tungunni. Minna en sextíu prósent þýddi að hún varð að plástra upp á nýtt.

Jafnvel þegar festan heppnaðist olli skortur á fitukirtlum í flutningsvefnum gríðarlegum þurrki. „Pöddur undir húðinni“ er ekki aðeins of klisjukennd lýsing á þessari tilfinningu, hún er heldur ekki nógu myndræn. Skógartermítar að hamast á litlum keðjusögum, kannski; eða veifukrabbar í lopapeysu og skráp­skóm; eða herdeild af rottuungum sem draga á eftir sér vírplóg. Steppandi innanhúðarkakkalakkar í takkaskóm með spora? Kannski.

* * *

Ég beið marga daga eftir að Marianne Engel kæmi aftur.

Ég hugsaði of mikið um hana og hugsunin drap tíma sem hefði annars mátt nota í að kvíða húðflettingu eða skipuleggja sjálfsmorð. Þegar mig fór að verkja í magann velti ég fyrir mér hvort ég væri raunverulega farinn að sakna hennar, þessarar konu sem ég þekkti varla. Var þetta þrá? Í fullri hreinskilni vissi ég það ekki þar sem mér hafði aldrei liðið svona nema þegar kókaínleiðslur bæjarins þornuðu upp.

Það kom á daginn að tilfinningin í maganum á mér var ekki þrá. Óstyrkt þarmakerfið steig brátt flamengódans í átt að funheitum sársauka. Garnirnar í mér urðu heitar sem chili-pipar og í endaþarminum glumdu kastaníusmellir. Nan potaði í kviðinn á mér og spurði hvort það væri sárt. Ég sagði henni að þetta væri vettvangur spænska borgarastríðsins. Brátt tóku aðrir læknar að dúkka upp í herberginu mínu, í hvítum sloppum sem minntu mig á Flanders Fields. Þeir skönnuðu, þeir röntgengeisluðu og þeir muldruðu orð eins og „áhugavert“ og „hmm.“ (Sama hversu áhugavert eitthvað getur orðið ætti læknir aldrei, aldrei að segja „áhugavert“ eða „hmm“ fyrir framan sjúkling.) Fyrr en varði staðfesti þetta muldur í læknunum að ég var með bráða briskirtilsbólgu sem hafði valdið því að meirihluti brisvefjanna dó.

Vefjadrep í brisi skiptist í tvennt: dauðhreinsað eða sýkt. Mitt var sýkt. Án tafarlausrar skurðaðgerðar voru miklar líkur á því að ég myndi ekki lifa þetta af. Svo læknarnir sögðu mér að ég ætti um lítið annað að velja en kveðja karlmannsskammt af brisi. Hvers vegna ekki, sagði ég hirðulaus um þetta. Innan við fimm tímum eftir greininguna var mér rennt inn á skurðstofu þar sem svæfingalæknirinn sagði mér að telja afturábak upp að tíu. Ég komst bara upp í sex.

Brunasjúklingar geta ekki fengið venjulega svæfingu og það sem við fáum í staðinn – ketamínsvæfing – veldur oft ofskynjunum. Í þetta skiptið hlotnaðist mér sérlega ánægjuleg ofskynjun, óvæntur bónus í annars dapurlegri reynslu. Ég horfði yfir hafið, mér við hlið stóð yndisleg ensk kona, og hvað betra gæti fallið brunasjúklingi í skaut en draumar um vatn?

* * *

Ég vaknaði við frétt um að hálft brisið í mér hefði verið fjarlægt. Til vonar og vara tók skurðlæknirinn auk þess handfylli af nærliggjandi garnvef sem hafði líka skemmst. Ætli honum hafi ekki fundist, úr því hann var byrjaður, að hann gæti allt eins þrifið burt hvað sem fyrir honum varð. Ég varð smátt og smátt að læknisfræðilegum úrgangi. Hver veit, kannski munu læknarnir strípa mig einhvern daginn út í algjöra neind.

Marianne Engel sat í stól í horninu á herberginu mínu og las, klædd einhverju drapplitu. Eftir fáein andartök þegar augu mín höfðu vanist birtunni sá ég að þetta var gestasloppur. Þegar hún sá að ég var vaknaður kom hún nær og ég sá að á bókarkápunni hennar stóð Non Omnis Moriar.

„Hvers vegna ertu hér?“ Ég vonaðist eftir svari sem myndi strjúka á mér föngulegt egóið.

„Ég kom til að sjá þjáningu þína.“

„Ha?“

„Ég ásælist hana.“

Gleymdu geðtruflun hennar: það er brunasjúklingi lífsins ómögulegt að þola manneskju sem segist ásælast þjáningar hans. Ég braut mér leið gegnum svæfingarþokuna til að gera eins heiftugt áhlaup og ég gat. Ég man ekki nákvæmlega hvað ég sagði en það var ekki allt fallegt.

Þegar hún skildi hvernig orð hennar höfðu móðgað mig reyndi hún að útskýra: „Ég ásælist alla þjáningu því þjáning er nauðsynleg til að verða andlega fagur. Hún færir mann nær Kristi. Þeir sem þjást eru Guðs útvaldir.“

„Hvers vegna kveikirðu þá ekki í þér,“ hrækti ég út úr mér, „og sérð hvað þú verður falleg?“

„Ég er allt of veikgeðja,“ svaraði hún og virtist ekki skynja kaldhæðni mína. „Ég óttast ekki aðeins logana, heldur að deyja áður en þjáning mín er fullkomnuð.“

Heiladópið tosaði mig aftur inn í myrkrið. Mér var létt að hverfa úr þessum samræðum.

* * *

Mér var enn ekki fullkunnugt um hvers kyns veikindi Marianne Engel stríddi við en þegar hún sagði að „þeir sem þjást eru Guðs útvaldir“ datt mér helst í hug geðklofi.

Geðklofar eiga oft erfitt samband við trú og sumir læknar vilja meina að þetta tengist mótunarárunum: ástandið skapast oftast á árunum frá sautján til tuttugu og fimm ára, tímabili þegar margir horfast í augu við trúarsannfæringu sína. Geðklofar ganga oftar en ekki í gegnum tímabil ýktrar skynjunar – eða beinna ofsjóna, á borð við ímyndaða heyrn – sem getur orðið til þess að þeir álíta sig útvalda af Guði. Staðan versnar enn fyrir þá sök að þeir eiga erfitt með að skilja að táknfræði trúarinnar byggist á myndmáli.

Kristindómurinn byggist á þeirri hugmynd að Jesús hafi dáið fyrir syndir alls mannkyns: til að veita okkur aflausn var Kristur pyntaður og negldur upp á kross. Geðklofi sem reynir að finna merkingu í sögunni gæti hugsað svona: Jesús er elskaður sonur Guðs og Jesús þoldi ótrúlegar þjáningar, svo þeir sem þola mesta sársaukann eru elskaðastir af Guði.

Það er löng hefð fyrir því að heittrúuðu fólki finnist þjáning færa mann nær frelsaranum en mannsandlit er alltaf betra en almenn kenning. Af þeim sökum langar mig að kynna til sögunnar Heinrich nokkurn Seuse, þýskan dulspeking sem fæddist árið 1295 og varð einhver áhrifamesti trúmaður síns tíma, einkum undir nafninu Minnesänger – söngvari hirðástanna – en nafnið hlaut hann vegna ljóðrænna skrifa sinna.

Seuse kom í Dóminíkanahúsið í Konstanz þrettán ára að aldri og skaraði að eigin sögn engan veginn fram úr hvað trúariðkun varðaði fyrstu fimm árin þar á eftir. Um átján ára aldurinn varð hann hins vegar fyrir skyndilegri uppljómun – tilfinningu um himneskan fögnuð sem var svo sterk að hann vissi ekki hvort sál hans hefði verið aðskilin frá líkamanum. Hann áleit þennan viðburð svo mikilvægan að hann byrjar þar ævisögu sína, Ævi þjónustumannsins.

Sumir fræðimenn halda því fram að Ævi þjónustumannsins sé fyrsta sjálfsævisagan á þýskri tungu, á meðan aðrir vilja meina að hún sé alls ekki sjálfsævisaga. Megnið af textanum virðist hafa verið skrifað af Elsbeth Stagel, ungri konu frá Töss-klaustrinu, einni af mest metnu andans dætrum Seuse. Svo virðist sem hún hafi skrásett mikið af samræðum þeirra og notað við ritun Ævinnar án þess að Seuse vissi. Þegar hann komst að því hvað hún hafði gert brenndi hann hluta handritsins þar til „skilaboð frá Guði“ skipuðu honum að varðveita það sem var eftir. Enginn veit hversu stór hluti Ævinnar var skrifaður af Stagel og hversu stór af Seuse.

Ævin er hrífandi frásögn og inniheldur dásamlegar útlistanir á þeim hugljómunum sem Seuse fékk um lífsdagana: Guð sýndi honum framsetningar á himnaríki, helvíti og hreinsunareldinum, og liðnar sálir birtust honum til að segja frá handanlífi sínu. Gott stöff og stórkostlega dramatískt! En það sem slær mann mest við lestur Ævinnar eru lýsingar Seuse – eða Stagels – á sjálfspyntingum hans.

Sem fylgismaður þeirrar trúar að líkamleg þægindi veiki andann fullyrti Seuse að hann hefði ekki stigið inn í upphitað herbergi í tuttugu og fimm ár og auk þess neitað sér um drykkjarvatn þar til tungan í honum sprakk af þurrki en það tók hana heilt ár að gróa. Hann takmarkaði það sem hann lét sér til munns – borðaði einu sinni á dag og aldrei kjöt, fisk eða egg. Hann fékk einu sinni vitrun þar sem löngun hans í epli var sterkari en þrá hans eftir eilífri visku, svo til að refsa sér hætti hann að borða ávexti í tvö ár. (Maður veltir fyrir sér hvort hann hefði ekki hreinlega átt að meðtaka boðskap sögunnar og halda áfram að borða alvöru-, en ekki myndrænt bannaða, ávexti.)

Að neðanverðu klæddist Seuse nærklæðum með hundrað og fimmtíu ásaumuðum látúnsnöglum sem sneru inn á við og kitluðu í honum húðina. Að ofanverðu klæddist hann meinlætaskyrtu með járnkeðju og undir henni var viðarkross á stærð við útréttan mannshandlegg með þrjátíu látunsnöglum til viðbótar. Með þetta áfast á milli herðablaðanna varð sérhver hreyfing – ekki síst bænahneigingar – til þess að þrýsta nöglunum inn í hold hans sem hann nuddaði svo með ediki. Seuse klæddist gaddakrossinum í átta ár áður en Guð blandaði sér í málið gegnum vitrun og bannaði honum að halda áfram.

Hann klæddist þessum refsiklæðum jafnvel þegar hann svaf – á gamalli hurð. Þegar hann lagðist niður batt hann sig niður með leðurólum því væru hendur hans frjálsar gat hann stuggað burtu rottunum sem nöguðu hann á næturnar. Stundum losaði hann ólarnar í svefni og því tók hann upp á því að klæðast leðurhönskum með fleiri hvössum látúnstittum sem ristu upp á honum húðina með jafnárangursríkum hætti og brygði hann ostaskera á lúkurnar. Seuse hélt uppteknum hætti í sextán ár þar til enn ein vitrunin frá Guði skipaði honum að fleygja þessum svefnmeðölum í nálæga á.

Í stað þess að vera létt yfir því að mega ekki lengur refsa sér varð Seuse argur yfir þessum guðlegu íhlutunum. Þegar nunna ein spurði hvernig honum liði svaraði hann því til að allt væri á niðurleið, enda meira en mánuður síðan hann upplifði sársauka. Hann óttaðist að Guð hefði gleymt sér.

Það rann upp fyrir Seuse að svona líkamspíslir voru bara byrjunin; þær fólu ekki í sér áþreifanlegt tákn um stórbrotna ást hans á Herranum. Til að bæta fyrir þetta fletti hann sig klæðum eitt kvöldið og notaði yddaðan griffil til að rista stafina IHS í húðina ofan hjartans. (Ef þú heldur að þetta sé gríska hafðu ekki áhyggjur: IHS er skammstöfun á nafni Krists í grískri tungu.) Blóð fossaði út úr tættu holdi hans en hann sagðist varla finna fyrir sársauka, slíkur var unaður hans. Rispaðir stafirnir hurfu aldrei og hann bar sárið í leynd til dauðadags; það róaði hann á tímum ókyrrðar, sagði hann, að vita að sjálft nafn frelsarans hreyfðist með hverju slagi hjarta hans.

Seuse dó árið 1366 eftir langa ævi sem maður getur aðeins getið sér til um að hafi virst lengri en hún í rauninni var.

Mér finnst áhugavert að Seuse hafi fengið „uppljómun“ sína þegar hann var átján ára, einmitt á þeim tíma þegar geðklofa er hvað tamast að gera vart við sig. Sem geðklofi gastu gert margt vitlausara í Þýskalandi á fjórtándu öld en að iðka trú. Á öld dulspekinnar leit fólk vitranir ekki hornauga, heldur hóf þær upp til skýjanna. Ef þú barðir sjálfan þig til óbóta varstu ekki haldinn sjálfseyðingarhvöt, heldur líktirðu eftir Kristi. Ef þú heyrðir raddir varstu í beinu sambandi við Guð.

Hvað sem öllu þessu líður þá er einn atburður í lífi Heinrich Seuse sem mér finnst sérlega áhugaverður – þótt mér hafi aldrei tekist að finna neitt um hann í rannsóknum mínum á bókasafninu.

Marianne Engel hélt því fast fram að endur fyrir löngu hefði hún hitt hann.

* * *

Þegar ég vaknaði aftur var Marianne Engel farin en hún hafði skilið eftir gjöf á náttborðinu, lítinn dreka úr steini.

Ég velti litla áranum í lófanum. Um það bil fimmtán sentímetra hár líktist steindrekinn hálfmennskri hveitibollu, bakaðri í lit dapurlegra regnskýja. Bumban á honum seig niður á krosslagða fætur, olnbogarnir hvíldu á hnjánum, og hakan lá í þrífingruðum höndum hans. Upp úr bakinu uxu stuttir, þykkir vængir, líklega fremur til sýnis en afnota. Kubbslegu höfði var tyllt á hoknar axlir hans, líkt hnullingi sem beið þess að vera velt fram af bjargbrún. Hann var með gríðarstór augu sem birtust undan neandertalísku enni og munnfylli af skökkum tönnum. Steindrekinn virtist reyna hvað hann gat að yggla sig en tókst það ekki almennilega. Ásjóna hans var ljúf og sorgleg og einhvern veginn allt of mannleg, eins og á vesalingi sem hefur eytt ævinni í að skæklast á milli ólukkulegra atburða þar til mæðan að lokum kremur hann undir orðhlassi sem hann fær ekki lengur mælt fram.

Líkamlegt ástand mitt batnaði til muna dagana eftir skurðaðgerðina. Ruslpramminn sem magi minn var lærði aftur að fljóta þótt hann þyldi ekki sömu byrðina og fyrr. Hægri fóturinn á mér, með sitt laskaða hné og ónýtu mjöðm, var líka byrjaður að gróa og læknarnir lofuðu mér því að fjarlægja bráðum vélkóngulóasöfnuðinn. Með hverjum degi var eins og drægi úr óþægindunum í beinagrindarrúminu.

Nan potaði í mig og skrifaði skilaboð til sjálfrar sín á sjúkraskrána. Hún var alltaf fagmennskan uppmáluð en ég var farinn að kalla hana Nan oftar en ég kallaði hana Edwards lækni. Ég veit ekki hvort henni var í nöp við þennan kumpánleika en hún bað mig aldrei að hætta þessu. Líklega stappaði þetta í mig stálinu því af andartaks forvitni spurði ég hvort hún væri gift. Hún hikaði og hugleiddi að svara en hætti á endanum við.

* * *

Sætið við hliðina á beinagrindarrúminu var áfram autt, ef frá voru talin innlit hjúkkanna og Nan. Einn Marianne-laus dagur varð að tveimur Marianne-lausum dögum, tveir urðu að þremur, fimm Marianne-lausum dögum þar til þeir urðu að Marianne-lausri viku. Mig langaði að spyrja hana út í litla steindrekann, hvers vegna hún hefði gefið mér hann, hvað hann þýddi.

Ég las mikið, einkum lögfræðikrimma sem ég hafði eiginlega ekkert gaman af. Mig vantaði eitthvað í staðinn svo ég bað Nan um að lána mér kennslubækur um afbrigðilega sálfræði. „Þú hlýtur að vera með eitthvað um geðklofa, geðhvarfasýki, geðhvörf, eitthvað svoleiðis?“

„Þetta er ekki mitt sérsvið,“ svaraði hún. „Auk þess ættirðu að lesa þér til um bruna.“

Nan hafði þegar fært mér fjölmargar bækur um brunabata sem enn lágu ósnertar á náttborðinu. Ég las þær ekki einmitt vegna þess að ég átti að lesa þær. Við gerðum með okkur samning: fyrir hverja sálfræðibók sem hún færði mér læsi ég eina af brunabókunum. Nan leit á þetta sem sigur og fór fram á að ég læsi eina af bókunum hennar fyrst.

Eftir að ég hafði gert það kom Gregor inn í herbergið mitt, nuddandi saman flauelslærunum sínum, með sálfræðitexta í höndum. Hann rétti mér bókina og sagði að það væri að beiðni Edwards læknis, úr einkasafninu á skrifstofunni hans.

„Þessi staður er ekki að gera þig geggjaðan, er það?“ Hláturinn sem fylgdi þessu benti til þess að hann hefði varið allri gönguferðinni frá geðdeildinni í að upphugsa þetta. Þegar ég spurði hann hvort geðlæknar ættu í alvöru að tala um sjúklinga sína sem geggjaða strauk hann svitataum af enninu með köflóttum vasaklút og lét vera að svara. Í staðinn spurði hann mig hvers vegna ég væri svona áhugasamur um geðklofa og geðhvarfasýki.

„Kemur þér ekki við,“ sagði ég.

Gregor opnaði munninn eins og til að segja eitthvað fleira en í staðinn brosti hann bara og bankaði einu sinni laust á hausinn á steindrekanum mínum. „Þetta er flott,“ sagði hann áður en hann mjakaði sér út úr herberginu á dúskuðu mokkasínunum sínum.

* * *

Næsta dag kom mjög lítil asísk kona inn í herbergið mitt. Við fyrstu sýn var hún líkari brúðu en alvörumanneskju.

Ég vona samt að þú haldir ekki að mér sé annt um klisjuna um að allar asískar konur líkist postulínsdúkkum. Ég hef ekki þannig brúðu í huga. Þessi kona var með breitt andlit, flatt nef og töfrabros. (Ég hef alltaf hatað fólk sem getur brosað breitt án þess að líta út fyrir að vera heimskt.) Kinnar hennar voru eins og þroskuð epli, og í samfloti með röndóttu skyrtunni og gallasmekkbuxunum var heildarútkoman eins og austurlensk dúkkulísa.

„Blessaður! Ég heiti Sayuri Mizumoto. Gleður mig að kynnast þér.“ Hún þrýsti hönd sinni í mína og bjó til myndarlegt handaband. Og þótt ég nefni það ekki í hvert sinn sem ég hef eitthvað eftir henni þá skælbrosti hún alltaf þegar hún sagði eitthvað, svo vinsamlegast taktu því sem gefnu hér eftir.

„Hvers konar nafn er Sayuri?“

„Fallegt nafn,“ sagði hún með votti af áströlskum hreim. „Sestu nú upp.“

Ég spurði hvers vegna hún vildi að ég gerði þetta.

„Vegna þess að ég er nýi sjúkraþjálfarinn þinn og nú áttu að setjast upp.“

„Þú veist ekki einu sinni –“

„Ég er búin að tala við Edwards lækni og þú getur það!“ Kæti hennar yfir því að ég gæti þetta var nær froðufellandi. Hún tók utan um mig og lagði sig alla í líma við að hjálpa mér, um leið og hún varaði mig við því að mig myndi eflaust svima svolítið þegar blóðið rynni til höfuðsins. Ég sagði að þetta væri slæm hugmynd.

„Ekki satt,“ sagði hún glaðlega. „Núna, einn, tveir, rykkja!“

Upp fór ég; hún var sterk af brúðu að vera. Það var í lagi með mig svolitla stund á meðan hún studdi mig en síðan kom sviminn og herbergið fór að snúast í einkennilega hringi. Sayuri lagði hönd á hálsinn á mér svo höfuðið á mér færi ekki í allar áttir. „Þú stendur þig frábærlega! Stöðugur.“

Þegar hún lagði mig aftur niður lét hún þessi orð falla: „Þetta var ekki svo slæmt, er það?“

„Þetta var alveg djöfullegt.“

„Á-fall!“ Hún tók fyrir munninn á sér og þóttist vera gersamlega miður sín. „Þú ert alveg eins og þér er lýst. Sagði þér aldrei neinn að munnurinn er anddyrið að ógæfunni?“

* * *

Þegar ég opnaði augun eftir síðdegislúrinn stóð Marianne Engel yfir mér, hengið var dregið fyrir. Á kollinum við rúmstokkinn hékk einn af gestasloppunum; til að friða hjúkkurnar sem höfðu séð hana laumast inn hafði hún komið í sloppnum inn í herbergið, eins og ég komst seinna að, en síðan svipt honum snöggt af sér svo hún sat nú hjá mér á hversdagsklæðunum: víðri, hvítri skyrtu sem var gyrt ofan í upplitaðar gallabuxur með silfurbelti. Hárið féll slegið yfir axlirnar og niður bakið. Það var ró yfir andlitinu og birta í augunum – grænum, án nokkurs efa grænum. Bróderaður dreki bjó á hægri buxnaleggnum.

Á endanum fékk ég staðfestingu á því að Marianne Engel var vel vaxin. Drekanum virtist finnast það líka því hann skreið upp eftir fætinum, frá ökkla að mjöðm, í allskyns vindum og gælum við lærið á henni. Hvert einasta hreistur var lituð pallíetta; rúbínaugun voru útstæðir glersteinar. Tungan kvíslaðist í ærslafullum sleikjum eftir rasskinnum hennar. Klærnar, svartur útsaumur, læstu sig í girnilegt hold fóta hennar. „Flottar buxur,“ sagði ég. „Hvar hefurðu verið?“

„Ég var upptekin,“ svaraði hún. „Buxurnar voru gjöf.“

„Við hvað? Frá hverjum?“

„Ég var að vinna en svo varð ég veik um tíma.“ Hún dró stól að rúmstokknum og settist niður. „Jack gaf mér buxurnar.“

„Leitt að heyra að þú hafir verið slöpp. Hver er Jack?“

„Ég er að jafna mig. Afbrýðissamur?“

„Gott að heyra. Ekkert á hlaupum undan læknunum í dag?“

„Neibb. Afbrýðissamur?“

„Út í Jack?“ Ég geispaði á hana. „Svo það er allt í góðu á milli ykkar?“

„Ég gengi nú ekki svo langt. Vil ekki tala um það.“

„Læknana eða Jack?“

„Læknana,“ svaraði hún. „Viltu tala um Jack?“

„Auðvitað ekki. Þitt einkalíf er þitt einkalíf, er það ekki?“

„Þetta er flókið samband.“

„Við Jack?“

„Við lækna.“ Marianne Engel trommaði fingurgómunum á gimsteinsaugu buxnadrekans.

„Jamm. Svo þér er alveg batnað af … veikindunum?“

„Ofþreyta, fyrst og fremst.“ Hún hnykkti til höfðinu. „Segðu mér frá slysinu þínu.“

„Ég var skakkur og keyrði fram af klettabrún.“

„Sá sem étur eld skítur gneistum.“

Ég kinkaði kolli í átt að litlu styttunni á náttborðinu. „Steindrekinn er flottur.“

„Ekki steindreki. Þetta er gróteska.“

„Þú segir að það skipti, ég segi að það skifti.“

„Þetta skiptir mig ekki öllu,“ sagði Marianne Engel, „en þetta er samt gróteska. Steindreki spúir vatni.“

„Fólk talar um steindreka.“

„Fólk hefur fyrir rangt sér.“ Hún dró upp sígarettu án þess að kveikja í henni og neri henni milli fingra sér. „Steindrekar kasta vatni af dómkirkjuveggjum svo að stoðirnar skolist ekki í burtu. Þjóðverjar kalla þá Wasserspeier. Manstu?“

„Man ég hvað?“

„Vatnsspýtari. Það er beina þýðingin.“

„Hvers vegna veistu svona mikið um þetta?“

„Gróteskur eða tungumál?“

„Bæði.“

„Ég bý til gróteskur,“ svaraði Marianne Engel. „Tungumál eru hobbí.“

„Hvað meinarðu með því að þú búir til gróteskur?“

„Ég hegg út.“ Hún kinkaði kolli í átt að kyrkingslega skrímslinu í hendi mér. „Ég bjó hann til.“

„Geðlækninum mínum finnst hann flottur.“

„Hverjum?“

„Doktor Hnatiuk.“

„Hann er skárri en flestir.“

Þetta kom mér ögn á óvart. „Þekkirðu hann?“

„Ég þekki þá flesta.“

„Segðu mér frá útskurðinum þínum.“

„Áhuginn vaknaði þegar ég fylgdist með þér stunda hann.“ Hin höndin fiktaði nú við örvaroddsmenið.

„Ég hegg ekki út.“

„Þú gerðir það.“

„Nei, ég hef aldrei gert það,“ sagði ég. „Segðu mér hvers vegna þér finnst gaman að skera út.“

„Það er afturábaklist. Maður endar með minna en maður hefur.“ Hún þagnaði andartak. „Leitt að þú skulir ekki muna eftir steinskurðinum. Ég á enn svolítið sem þú gerðir.“

„Hvað?“

„Meine Morgengabe.“ Marianne Engel horfði stíft á mig, eins og hún biði eftir því að tilefnislaus minning dúkkaði upp í huga mér. Þegar hún sá að engrar slíkrar var að vænta yppti hún öxlum og hallaði sér aftur í stólnum. „Jack er umboðsmaðurinn minn.“

Vinnufélagi. Gott. „Segðu mér frá honum.“

„Ég held ég leyfi þér bara að hugsa um hann.“ Hún var greinilega í góðu skapi þennan dag. „Hvað um að ég segi þér sögu?“

„Um hvað í þetta sinn?“

„Um mig.“

IV

Nákvæmur fæðingardagur minn skiptir varla máli lengur en svo langt sem nef mitt nær þá var hann einhvern tíma í kringum aldamótin 1300. Ég þekkti aldrei blóðforeldra mína sem skildu mig eftir í körfu við aðalhliðið framan við Engelthal-klaustrið um miðjan apríl þegar ég var ekki nema nokkurra daga gömul. Undir venjulegum kringumstæðum hefði útburður ekki verið tekinn og alinn upp í klaustrinu – Engelthal var eftir allt saman ekki munaðarleysingjahæli – en það vildi svo til að einmitt þetta kvöld höfðu systir Christina Ebner og faðir Friedrich Sunder verið að ræða hvernig nema mætti tákn frá Guði.

Systir Christina hafði gengið í klaustrið tólf ára að aldri og fór að sjá sýnir tveimur árum síðar. Þegar hún fann mig var hún rúmlega tvítug og þegar orðin mikils metinn dulspekingur. Faðir Sunder, sóknarpresturinn á svæðinu, var að nálgast fimmtugt og hafði gengið kirkjunni á hönd miklu síðar en venja var. Um þetta leyti hafði hann verið skriftafaðir Engelthal-nunnanna í um tuttugu ár. En það sem mestu máli skipti var innræti þeirra því hefðu þau ekki verið jafnsamúðarfull og raun bar vitni hefði allt farið á annan veg.

Í körfunni minni voru tvær orðsendingar. Önnur var á latínu og hin á þýsku en báðar sögðu það sama. Útvalið barn, hið tíunda af góðri fjölskyldu, gefið frelsara okkar Jesú Kristi og Engelthal-klaustrinu. Gerið henni það sem Guð vill. Það var sjaldgæft á þeim tíma að alþýðufólk skrifaði á einu tungumáli, hvað þá tveimur, svo ég býst við að orðsendingin hafi ein og sér stutt staðhæfinguna um að ég kæmi af góðri fjölskyldu.

Sagan segir að systir Christina og faðir Sunder hafi fljótt ákveðið að sending þessa barns, þetta kvöld af öllum kvöldum, hafi ekki verið tilviljun. Það spillti heldur ekki fyrir að systir Christina var sjálf tíunda barn. Þegar þau færðu mig príorinnunni var hún hikandi í andstöðu sinni við áætlanir þeirra. Gat príorinnan hunsað möguleikann á því að ég hefði verið send þeim að ofan? Þegar lesið er í skilaboð Drottins er vissara að láta sér frekar skjátlast í rétta átt. Þetta var almenn skoðun nunnanna í klaustrinu þótt ein þeirra hafi mótmælt komu minni harkalega. Sú var systir Gertrud, bókavörðurinn – „yfirskriftan“ – í skriftastofunni í Engelthal. Þú ættir að leggja nafn hennar á minnið, rétt eins og nafn aðstoðarkonu hennar, systur Agletrudisar. Báðar áttu eftir að hafa mikil áhrif á líf mitt og sjaldnast til góðs.

Engelthal-klaustrið var talið vera ein mikilvægasta trúarmiðstöðin í Þýskalandi. Þú heldur kannski að fyrir vikið hafi ég átt erfiða bernsku en í sannleika sagt var það ekki raunin. Nunnurnar komu vel fram við mig, líklega vegna þess að ég var þeim dægrastytting í amstri hversdagsins. Það yljaði mér alltaf ef ég fékk þær til að brosa því um leið og þær fundu sjálfar að þær brostu reyndu þær allt hvað þær gátu til að hætta því. Mér fannst eins og ég hefði brotið reglu.

Ég var alltaf nákomnust systur Christinu og föður Sunder. Þau gengu mér nánast í foreldrastað eins og þú heyrir á nafninu sem ég gaf honum: faðir Sunder. Líklega hefðu allir getað kallað hann „föður“ en lítillæti hans var slíkt að hann fór alltaf fram á að vera kallaður „bróðir“. Fyrir öllum öðrum var hann því bróðir Sunder en fyrir mér var hann alltaf faðir. Hann leyfði þetta, býst ég við, vegna þess að ég sá á honum hlið sem enginn annar sá, ef frá var reyndar talinn bróðir Heinrich. Þeir deildu saman litlum bústað undir kambi í skóginum. Hvað sem því leið þá heyrði ég hláturinn í föður Sunder á meðan aðrir sáu aðeins styrk hans.

Engin hinna nunnanna kom í klaustrið fyrr en á unglingsárum en sjálf sagði ég fyrsta orðið mitt við föður Sunder. „Gott.“ Guð, þvílík dásemdarinnganga í heim tungumálsins. Hvernig í ósköpunum átti hann því að geta sýnt mér sama andlit guðshræðslunnar og hann sýndi öllum öðrum? Hún fór andliti hans ekki vel þar sem hann lék sér við smábarnið. Og þegar að því kom að hann hugleiddi að setja grímuna upp var það orðið of seint. En ég skildi strax sem barn að hann þurfti að gangast við ákveðinni ímynd og þagði yfir þessu leyndarmáli okkar.

Faðir Sunder klæddist meinlætaskyrtu og áfelldist sjálfan sig stöðugt, kallaði sig syndara – einkum vegna „synda æsku sinnar,“ hverjar svo sem þær nú voru – og lagðist á bæn um miskunn. Hann trúði því að hann væri „mengaður“ af því sem hann hafði gert áður en hann gekkst trúnni á hönd. Hann lagðist ekki oft í þessar bölbænir fyrir framan mig en þegar það gerðist var bróðir Heinrich vanur að standa þögull afsíðis og ranghvolfa augunum.

Þótt hann fordæmdi sjálfan sig hikaði faðir Sunder aldrei við að fyrirgefa öðrum. Og hann átti sér rödd, indælustu rödd sem hægt var að ímynda sér. Þegar hann talaði fannst manni ósjálfrátt eins og maður ætti ekki aðeins ást hans, heldur einnig ást Guðs.

Systir Christina – ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja. Hún var ótrúleg kona. Hún fæddist á föstudaginn langa, sem var fyrsta merkið um þá blessun sem átti eftir að einkenna líf hennar. Fólk sagði að af öllum fulltrúum Guðs á jörðu væri hún á meðal þeirra fimmtán mest blessuðu. Sem lítil stúlka efaðist ég aldrei um að þetta væri satt og það var ekki fyrr en löngu seinna sem ég spurði mig að því hvernig hægt væri að leggja mat á annað eins. Vitranir og bókmenntahæfileikar systur Christinar færðu klaustrinu mikla frægð. Hún var sískrifandi og átti eftir að senda frá sér tvö meistaraverk – Opinberanir og Systra-bók Engelthal, þar sem rakin var saga áhrifamestu nunnana sem höfðu starfað á undan henni. Verk hennar hvöttu aðra í klaustrinu til að skrifa. Til dæmis skrifaði Gertrud Líf systur Gertrud frá Engelthal með hjálp bróður Heinrichs og bróður Cunrats, en ef ég á að segja eins og er þá fannst mér alltaf eins og bókin væri ekki síst til að auka veg hennar sjálfrar.

Gertrud lagði það í einkennilegan vana sinn að totta stöðugt að sér andrúmsloftið. Ómögulegt var að leiða þetta hjá sér og jafnómögulegt að þola það. Sagt var að móðir hennar hefði með miklum erfiðismunum eignast átta drengi áður en Gertrud kom í heiminn en að sú fæðing hefði verið átakalaus. Þér finnst þetta kannski ekki merkilegt en staðreyndin var sú að allt frá upphafi lagði Gertrud þetta að jöfnu við fæðingu Jesúbarnsins, þar sem hún var líka laus við sársauka – jafnfölskvalaus og sjálfur getnaðurinn. Fólk sagði að sem barn hefði Gertrud aldrei tekið brjóst móður sinnar; þess í stað kaus hún að sötra bara loftið, eins og til að eima úr því himneska sætu. Ég hafði hana alltaf grunaða um að totta loftið einfaldlega til að enginn myndi gleyma þessari sögu.

Af öllum þeim bókum sem bárust mér á þessum innblásturstímum var bók eftir Friedrich Sunder, Gnaden-vita föður Sunders, mér kærust. Ojæja, hún er mér kær, en það sama verður ekki sagt um það sem var gert við hana. Eftir dauða föður Sunders var hún hreinsuð og allar tilvísanir til mín meðal annars þurrkaðar út. Ekki það að hégómi minn hafi ekki mátt við því en ég var – og er – móðguð yfir því að verk hans hafi verið eyðilagt.

Hvað um það, þetta var fólkið sem ég umgekkst sem barn. Í eina skiptið sem ég spurði systur Christinu hvenær ég mætti búa í heiminum utan klaustursins svaraði hún sem svo að það mætti ég aldrei. Þetta væri þó ekki vandi sem bæri að harma, heldur gjöf sem bæri að fagna. Guð hafði sýnt höfðingsskap með því að opinbera áætlanir sínar í minn garð strax við fæðingu með því að færa mig beint í Engelthal. Engri hinna nunnanna, ekki einu sinni Christinu sjálfri, hafði hlotnast að verja allri ævi sinni í dýrlegri þjónustu við Guð. „Þú ert svo heppin lítil stúlka,“ sagði hún og sló þannig botn í samræðurnar.

Allir bjuggust við því að þegar ég yxi úr grasi myndi ég sjálf taka til við skriftir. Þessar væntingar efldust aðeins þegar ég byrjaði að tala mjög ung að aldri og lærði latínu jafnauðveldlega og móðurmálið. Auðvitað man ég ekki eftir því en ég hef heyrt að ég hafi varla haft fyrir því að læra einstök orð áður en ég byrjaði að tala í heilum setningum. Það er rétt að hafa í huga að í þá daga voru börn í raun talin ófullkomnar útgáfur fullorðinna. Innræti barns var ekki eitthvað sem gat þroskast, því manngerðin varð til við fæðingu; bernskan var tímabil opinberana, ekki þroska, svo þegar tungumálahæfileikar mínir komu í ljós var litið svo á að þeir hefðu alltaf verið til staðar. Guð hafði sett þá þarna og því þurfti aðeins að bíða þar til þeir kæmu í ljós.

Ég elskaði gestina sem komu í Engelthal. Sveitungarnir komu í meðferðir á sjúkrahúsinu okkar og það var ekki nema við hæfi að við tækjum á móti þeim. Ekki aðeins frá sjónarhóli miskunnar, heldur líka af pólitískri nauðsyn. Klaustrið stækkaði ört þar sem aðalsmenn gáfu því sífellt meira af nærliggjandi landsvæðum og við erfðum leiguliðana með. Fleiri komu líka, farandprestar sem vildu sjá hvað það væri við Engelthal sem kallaði fram jafnmagnþrungnar vitranir hjá nunnunum, og svo þeir sem komu þangað af einfaldri nauðsyn og þörfnuðust næturgistingar. Veikur bóndi vakti mér jafnmikinn áhuga og aðalsmaður því hvor um sig færði sögur af stóra heiminum.

Systir Christina lét ýmislegt eftir mér þegar þessir gestir komu. Ég sat hljóð úti í horni og einbeitti mér ákaft að samræðunum, brýndi listina að láta lítið fyrir mér fara. Gertrud var auðvitað á móti þessu og leit á mig niðureftir löngu, mjóu nefinu. Hún var reyndar þegar farin að missa sjón svo það var henni þrautin þyngri að brýna svona fyrirlitningu sína.

Gertrud leit á klausturgestina sem boðflennur á vinnustaðnum sínum. Þar sem hún var bókavörður kom það í hennar hlut að túlka og henni fórst það ekki mjög vel – frönsku- og ítölskukunnátta hennar var í besta falli gloppótt – og hún gerði þetta af illri nauðsyn. Flestir gesta okkar töluðu latínu og þýsku en ég var hrifnust af þeim sem töluðu framandi tungur. Áskorunin fólst ekki aðeins í því að skilja útlensku orðin heldur líka að ná utan um útlendu málefnin. Til dæmis vissi ég að Clement páfi hafði flutt páfadóminn til Avignion – en hvers vegna? Og hvar var Avignon? Og hvernig var sá staður? Eitt kvöldið varð ég vitni að fyrsta rifrildinu. Erlendur gestur vogaði sér að efast um ráðvendni Boniface páfa og Gertrud snerist harkalega til varnar hans heilagleika. Þetta fékk mikið á litla stúlku.

Ég man mjög vel eftir kvöldinu þegar upp komst um hæfileika minn. Hjá okkur var útlendur gestur og Gertrud átti sem endranær í mestu erfiðleikum með túlkunina. Ég skildi aldrei hvað vafðist fyrir henni því sjálf skildi ég allt. Þetta kvöld var gesturinn ítalskur, gamall, fátækur, óþveginn maður. Allir sáu að hann átti ekki langt eftir og hann reyndi í örvæntingu að skýra frá stöðu sinni. Gertrud fórnaði höndum af viðbjóði og lýsti því yfir að hreimurinn hans væri of ruddalegur til að hægt væri að skilja hann.

Kannski var það vegna þess hversu brothættur gamli maðurinn var útlits, eða kannski var það vegna skröltsins í brjósti hans. Kannski var það vegna þess að hann þakkaði nunnunum fyrir hverja hafragrautsskeið sem þær báru að vörum hans og mælti ekki styggðaryrði af vörum þótt enginn skildi hann. Eða kannski var það vegna þess að mér fannst eins og ef enginn talaði við hann þetta kvöld gæfist ef til vill aldrei tækifæri til þess framar. Hver sem ástæðan var rauf ég þagnareiðinn og steig út úr horninu. Á ítölsku mállýskunni hans spurði ég: „Hvað heitirðu?“

Hann leit upp úr skeiðinni og ljómaði allur í framan: „Paolo,“ sagði hann og spurði svo hvernig stæði á því að ég kynni ítölskuna hans. Ég sagðist ekki vita hvernig eða hvers vegna, ég gerði það bara. Ég sagði honum að ég hlustaði á útlendinga og að eftir að þeir færu spynni ég mál þeirra í huganum áður en ég sofnaði. Honum fannst þetta yndislegt. Þegar ég spurði hvaðan hann væri sagðist hann hafa varið lunga ævi sinnar í Flórens en væri fæddur í suðrinu, á svæði sem væri illræmt fyrir grófgerða mállýsku. Hans eigin framburður var ferleg blanda af þessu tvennu. Hann hló þegar hann sagði þetta og hláturinn fékk svo á systur Christinu að hún hrökk upp úr undrun sinni og fór að spyrja mig spjörunum úr, eflaust allt eins til að kanna tungumálahæfileika mína eins og til að komast að upplýsingum um manninn. Gegnum mig varð saga gamla mannsins sögð.

Paolo hafði alla ævi verið í hjónabandi með konu sem hann elskaði heitt. Hún hafði nýlega fallið frá og hann vissi að hann færi brátt sömu leið. Þetta var ástæðan fyrir ferðalagi hans, hann hafði aldrei komið út fyrir heimaland sitt og vildi ekki deyja án þess að vita neitt um heiminn. Hann óttaðist ekki dauðann þar sem hann hafði verið guðrækinn og vænti umbunar fyrir það. Hann spurði hvort hann gæti hvílt sig eina nótt í klaustrinu áður en hann héldi ferð sinni áfram. Systir Christina féllst á þetta þar sem hún hafði vald til að taka ákvörðun í fjarveru príorinnunar og Paolo þakkaði henni fyrir vinsemdina. Í fyrsta sinn á ævi minni fannst mér ég vera mikilvæg.

Paolo tók bók upp úr pokanum sínum og otaði henni í átt til mín. Augljóst var að hann vildi að ég fengi hana. „Ég þarfnast hennar ekki mikið lengur.“

Systir Christina steig fram til að afþakka fyrir mína hönd. „Segðu honum að hann eigi svo lítið að við getum ekki þegið þetta. En þakkaðu honum.“ Ég þýddi og Paolo kinkaði kolli til skilnings. Hann þakkaði nunnunum enn einu sinni fyrir sig áður en hann hélt til herbergisins sem hafði verið útbúið fyrir hann.

Systir Christina tjáði mér að ég ætti að hitta hana og príorinnuna í fundarherberginu daginn eftir að loknum morgunbænum. Ég spurði hvort ég hefði komið mér í vandræði með því að hefja upp raust mína en systir Christina sannfærði mig um að svo væri ekki.

Þegar ég kom næsta morgun sat príorinnan við skrifborðið sitt og á bak við hana stóð systir Christina. Gertrud stóð afsíðis og virtist lítt um þetta gefið. Príorinnan var góð kona en mér stóð engu að síður ógn af henni. Hún var bara svo gömul, eins og hrukkóttur hundur í framan.

„Ég hef það eftir systur Christinu að við höfum orðið fyrir opinberun í gær,“ urraði hún. „Marianne, barn, það eru engin haldbær rök fyrir því að þú kunnir ítölsku. Með hvaða aðferð tókst þér að framkvæma þessa dáð?“

Systir Christina kinkaði kolli mér til hughreystingar og það stappaði í mig stálinu. „Þegar ég hlusta á tungumál skil ég bara,“ sagði ég. „Ég veit ekki hvers vegna allir geta það ekki.“

„Geturðu leikið sama leik með önnur tungumál líka? Þetta er augljóst teikn.“

„Ef mér leyfist,“ greip Gertrud fram í. Gamla konan kinkaði kolli. „Dómgreind þín er traust, príorinna. Líkt og alltaf. Samt sem áður tel ég hyggilegt að spyrja hvaðan svo óvenjulegur hæfileiki er sprottinn. Ég hvet til þess að við höfum allan vara á okkur þar sem við vitum svo lítið um uppruna barnsins. Hvaða fullvissu höfum við fyrir því að þessi hæfileiki komi frá Drottni en ekki frá … einhverri annarri tilvist?“

Ég var ekki í nokkurri aðstöðu til að ögra Gertrud en sem betur fer gat systir Christina gert það. „Hvaðan heldur þú að hann komi, systir Gertrud?“

„Það er vissara að hafa ekki slík nöfn yfir en þér er fullkunnugt um að til eru öfl sem réttlátar sálir þurfa að varast. Ég segi ekki að þetta sé raunin, ég legg bara til að við sýnum skynsemi og hugleiðum alla möguleika.“

Príorinnan svaraði ásökuninni: „Þar til við höfum ástæðu til að halda annað skulum við ganga út frá því að þetta sé sannarlega opinberun frá Guði en ekki eitt af klækjabrögðum óvinarins.“

Ég sá á Gertrud að hana langaði að segja meira en hún náði að stoppa sig. „Já, príorinna. Að sjálfsögðu.“

Gamla konan hélt áfram: „Ég legg til að við lítum ekki aðeins á þetta sem opinberun, heldur köllun. Tala allir tungum? Túlka allir? Nei. Þegar slík gjöf birtist okkur er skylda okkar að sjá til þess að hún gagnist Guði. Ertu ekki sammála, systir Gertrud?“

„Ég er sammála því að við eigum allar að gera það sem við getum til að þjónusta.“

Gertrud kreisti þessi orð fram eins og nirfill kreistir aura fram úr buddu sinni.

„Það gleður mig að heyra þig segja það,“ bætti príorinnan við, „því ég hef ákveðið að þú takir barnið inn á skriftastofuna. Það er augljóst að hæfileikar hennar eru í tungumálum og því skal þjálfun hennar hefjast undir eins.“

Hjarta mitt sökk þungt niður í maga. Hefði ég séð fyrir að ég yrði sett undir handleiðslu Gertrudar hefði ég aldrei rofið þögnina. Það sem príorinnan leit á sem „verðlaun“ mín var í raun harðasta refsing sem hugsast gat og ég er viss um að enginn hafði meiri óbeit á þessari ráðstöfun en Gertrud. Loks höfðum við sameinast í skoðunum okkar: þetta var skelfileg hugmynd.

„Marianne er bara barn,“ mótmælti Gertrud, „og sannarlega ekki búin undir slíka ábyrgð. Þótt hún hafi kannski sýnt fram á einhverja grunnkunnáttu þarf að hafa fleira í huga við þessa vinnu. Þolinmæði, til dæmis, og auga fyrir smáatriðum, sem barn getur ómögulega haft.“

„En hún mun læra,“ svaraði príorinnan, „af þér.“

„Ég bið þig að skoða málið betur. Ég skil sjónarmið þín, en –“

Príorinnan stoppaði hana. „Það gleður mig að þú skulir skilja. Þú myndir ekki æskja þess að ég breytti gegn vilja Guðs, er það, systir Gertrud?“

„Að sjálfsögðu ekki, príorinna.“ Gertrud hélt höndunum fyrir aftan bak og ég heyrði fingurneglurnar grafa sig inn í efnið á kyrtlinum hennar. Systir Christina steig fram, lagði hendur á axlir mér og spurði hvort – með leyfi príorinnunar – við mættum talast örstutt við í einrúmi. Príorinnan féllst á þetta og hvarf af hólmi. Gertrud fór líka, tottandi loftið full heiftar, og hafði sig alla við að skella ekki á eftir sér hurðinni, án árangurs.

Systir Christina tók til máls: „Ég veit að þér finnst fátt um þetta en ég trúi því í raun að systir Gertrud sé góð og heilög kona og að þú getir lært margt af henni. Þótt þú skiljir það ekki núna þá er náðargáfa þín jafneinstök og hún er óvænt. Drottinn ætlar þér augljóslega stórt hlutverk og ég gæti ekki með góðri samvisku látið eins og ekkert sé. Við verðum að treysta á þessa opinberun og muna að Drottinn lætur ekkert henda af slysni.“

Þú getur rétt ímyndað þér hver viðbrögð barns voru við annarri eins útskýringu, jafnvel barns sem hafði alist upp í klaustri. Hvernig gat Guð bundið svo um hnútana að ég yrði sett undir handleiðslu Gertrud? Ég gólaði þar til kinnarnar á mér voru orðnar rauðar og baðaðar tárum. Systir Christina leyfði mér að fá fulla útrás og vék sér ekki einu sinni undan barnslegum höggum mínum. Hið sama gilti þó ekki um spörkin svo líkast til voru takmörk fyrir sjálfsfórn hennar. Þegar ég hafði að lokum tæmt mig af allri orku og lyppast niður á gólfið settist hún við hliðina á mér.

Ég sagðist hata hana en við vissum báðar að það var ekki satt. Hún strauk mér um hárið og hvíslaði því að mér að allt færi vel ef ég aðeins treysti Guði. Og síðan tók hún svolítið undan kyrtli sínum, bók sem hún hafði falið þar.

„Þegar ég fór inn til Paolo í morgun komst ég að því að hann hafði dáið í svefni. Hann fór sársaukalaust, held ég, og það var friður yfir andliti hans. En það var augljóst að hann vildi að þú fengir þetta í gærkvöldi svo ég uppfylli hinstu ósk hans með því að láta þig hafa þetta.“

Systir Christina afhenti mér ítalska bænabók, fyrstu bókina sem ég gat sagt að ég ætti sjálf. Síðan fór hún með mig inn á skriftastofuna svo ég gæti byrjað að þjóna vilja Guðs.

V

Hvernig kem ég til skila miðaldalífinu sem Marianne Engel þóttist hafa lifað þegar staðreyndin er sú – auðvitað – að hún var ekki frekar uppi á fjórtándu öld en ég? Áskorunin felst ekki aðeins í hinum augljósa skorti á sannleika sem saga hennar bjó yfir, heldur líka því að ég get ekki lengur látið mína eigin rödd nægja við skriftirnar: ég þarf framvegis að taka tillit til hennar. Ég hef reynt að endurskapa Engelthal-söguna nákvæmlega eins og hún sagði hana en ef brestir finnast í framsetningunni á rödd hennar bið ég vinsamlegast um að mér sé fyrirgefið. Ég hef gert mitt besta.

Sagan skerpti ennfremur á þeirri spurningu hversu brjáluð Marianne Engel væri í raun. Trúði hún því í alvöru að hún hefði alist upp í miðaldaklaustri eða reyndi hún einfaldlega að hafa ofan af fyrir brunasjúklingi? Þegar ég reyndi að fá hana til að viðurkenna að hún hefði skáldað þetta allt saman upp horfði hún á mig eins og ég væri sá vitfirrti, og þar sem ég vildi að hún héldi áfram að heimsækja mig gat ég tæpast haldið því fram að málinu væri öfugt farið. Að lokum ákvað ég að leyfa henni að halda áfram að segja söguna þar til staðreyndirnar brygðu fyrir hana fæti.

Ég var ekki sá eini sem velti fyrir sér geðheilsu þessa gests míns. Edwards læknir fór ekki leynt með þá skoðun sína að best væri að þessi nýja kona í lífi mínu léti sig hverfa. Hún varaði við hættunni sem heilsu minni stafaði af komu hennar; hún laumaðist inn á meðan hjúkkurnar sáu ekki til og virti allar reglur um gestasloppa að vettugi, hver vissi hvaða sýkla hún bæri með sér? Ég féllst á athugasemdina en sagði jafnframt að það stoppaði varla batann þótt ég hefði eitthvað – einhvers – að hlakka til.

„Það má vera en þú verður að einbeita þér að batanum í stað þess að standa í …“ Nan hugleiddi andartak hvernig hún kæmi þessu best frá sér. „… öðrum málum sem hjálpa þér ekkert við að láta þér batna.“

Ég sagði henni að mér þætti hún fljót til ályktana um hvað mér væri fyrir bestu.

„Ég hef gert þetta lengi og ég veit hvað aukið álag getur gert sjúklingi.“

Ég spurði hvort áhyggjur hennar beindust að því að gesturinn minn legðist endrum og eins inn sem geðsjúklingur á spítalann og Nan staðfesti að sú staðreynd ynni ekki beinlínis með Marianne Engel. Engu að síður bætti hún því jafnharðan við að þetta yrði ekki notað, og mætti ekki nota, til að halda Marianne Engel í burtu; þar sem hún hafði verið dæmd hæf til að lifa í samfélaginu þýddi það að hún var líka hæf til að fara í spítalaheimsóknir. Mig grunaði Nan þó um að beita áhrifum sínum til að gera það eins örðugt og hægt var.

„Við getum haft þetta svona,“ sagði ég. „Ef þú leyfir henni að halda áfram að koma skal ég leggja harðar að mér með Sayuri.“

„Þú ættir að gera það hvort sem er.“

„En ég geri það ekki,“ sagði ég, „og þú ættir að hirða það sem að þér er rétt.“

Nan hlýtur að hafa metið þetta sem svo að hún kæmist ekki að betra samkomulagi, því hún féllst á þetta. Þó stóðst hún ekki mátið og bætti við: „Ég þarf samt ekki að vera ánægð með þetta.“

„Nei, þú þarft þess ekki,“ sagði ég. „Þú þarft bara að láta hana í friði.“

* * *

Skömmu eftir þennan fund með Edwards lækni kom Connie í fylgd sjúkraliða til að færa mig yfir í sérherbergi, burt frá hinum brunasjúklingunum. Ég spurði hana hvað væri að gerast – þetta hlytu að vera mistök. Nei, sagði hún og tók af allan vafa, samkvæmt boðum Edwards læknis átti ég að fá mitt eigið herbergi þótt hún vissi ekki hvers vegna. Hún sagði mér að njóta bara næðisins á meðan ég hefði það. Ef um mistök væri að ræða yrðu þau fljótt leiðrétt. Í stað þess að færa mig úr beinagrindarrúminu var öllu batteríinu rúllað niður ganginn inn í lítið en dásamlega mannlaust herbergi.

Mannlaust, það er að segja, þar til Sayuri tók að útskýra fyrir mér æfingarnar sem hún vildi að ég gerði daglega. „Edwards læknir segir mér að þú viljir leggja harðar að þér,“ sagði hún og lagði þil meðfram endilöngu rúminu. Í þilinu var gróp með tveggja punda silfurbolta. Ég átti að ýta boltanum upp eftir þilinu þar til hann náði upp á topp og rúlla honum svo rólega til baka. Endurtaka.

Ég hafði skrölt með hundruð kílóa af tökubúnaði milli svefnherbergja í kvikmyndagerðinni en nú varð ég að sætta mig við að þrýsta bolta eftir viðarplanka. Til að bæta gráu ofan á svart krafðist þetta einfalda verkefni allrar minnar einbeitingar. Ég sá plástrað andlit mitt speglast í ávölu silfrinu og því lengra sem ég ýtti boltanum frá mér því lengra hörfaði spegilmynd mín. Sayuri hrósaði mér í hvert skipti sem mér tókst vel upp. „Fullkomið!“ Þegar við kláruðum kippti hún boltanum áreynslulaust í burtu eins og hann væri – ja, eins og hann væri eitt kíló á þyngd. Þessi örsmáa japanska kona pirraði mig með því að vera sterkari en ég og svo pirraði hún mig enn frekar með því að hneigja sig aðeins áður en hún yfirgaf herbergið.

* * *

Þegar Edwards læknir kom næst að heilsa upp á mig spurði ég hana út í einkaherbergið. Hvers vegna í ósköpunum naut ég þessa íburðar? Það var ekki eins og þyrfti að verðlauna mig fyrir góða hegðun eða erfiðið sem ég hafði nýverið tekist á hendur. Það var allt fram undan.

Nan sagðist standa fyrir rannsókn sem hún vonaðist eftir að fá birta, um hvaða áhrif það hefði á brunasjúklinga að dveljast í einkaherbergi í samanburði við fjöldastofur. Hún vonaðist til að tilfelli mitt gæti varpað nokkru ljósi á viðbrögð sjúklinga sem breyta um umhverfi í miðri meðferð og það vildi svo vel til að herbergi hafði losnað. Ég spurði hvort þetta þýddi að ég yrði færður aftur inn á fjöldastofuna en hún sagðist ekki vera viss.

Ég tók af allan vafa um að hún mætti nota mig sem tilraunadýr svo lengi sem hún óskaði en bætti við: „Ertu viss um að ekkert meira hangi á spýtunni?“

Hún hugsaði sig um og ákvað að segja mér allan sannleikann – þann sem ég hafði þegar getið mér til um. „Það er í lagi að þú fáir heimsóknir frá fröken Engel en ég sé enga ástæðu til þess að hinir gestirnir þurfi að þola þær líka.“

Ég sagði henni að mér þætti umhyggja hennar fyrir öðrum virðingarverð og hún kinkaði kolli. Þegar ljóst var að hvorugt okkar hafði meira um málið að segja kinkaði hún aftur kolli og fór út.

Heimsóknir Marianne Engel voru ánægjulegri eftir að við fengum næði, ótrufluð af plasthengjum og gestasloppum. Þar sem ég varð stöðugt hraustari kallaði klæðaburður hennar ekki lengur á mótmæli, en líklega var ástæðan líka sú að læknarnir voru orðnir þreyttir á því að þrátta við hana. Marianne Engel var ekki tekið opnum örmum á brunadeildinni en þar sem ég hafði lagt hart að læknunum að banna henni ekki að koma litu þeir eflaust svo á að áhættan væri mín.

Í þessu aukna næði urðu samræður okkar æ fjölbreyttari: hvernig elda á grænmetis-lasagna; hvaða kjötkveðjuleikir eru leiknir í Hamburg; fagri treginn í óbókonsert í D-moll eftir Marcello; búsetuhættir Vesturstrandar-indjána; hvers vegna fólk syngur í rokkhljómsveitum; kostir kanadískra bókmennta í samanburði við rússneskar; hvernig vetrarhörkur móta skapgerð fólks; saga evrópsks vændis; hvers vegna karlmenn heillast af hugmyndinni um „sterkasta mann heims“; hvers kyns samræður kynnu að kvikna á milli votta Jehóva og fornleifafræðinga; og hversu lengi tyggjó er ferskt uppi í manni. Öll árin á bókasafninu komu mér vel.

Ég spurði stríðnislega út í meistarana þrjá og hvort slíkir verndarar væru algengir hjá miðaldanunnum. Hún sagði í fyllstu alvöru að svo væri ekki þótt Heinrich Seuse hefði reyndar líka átt sér þrjá meistara sem hann varð að ráðfæra sig við áður en hann hóf upp raust sína (með sömu latínubæninni og hún notaði).

Svar mitt lá beint við: „Eru þetta sömu meistararnir?“

„Nei.“ Fyrsti meistari Seuse var heilagur Dominic, stofnandi Dóminíkana-reglunnar, sem veitti einungis samræðuleyfi undir réttum kringumstæðum. Næsti meistari, heilagur Arsenius, féllst á samræður svo lengi sem þær snerust ekki um efnislega hluti. Sá þriðji, heilagur Bernharður af Clairvaux, leyfði Seuse að tala gegn því skilyrði að það raskaði ekki tilfinningajafnvægi hans.

„Og þínir meistarar?“

Hún sagði að sínir meistarar væru meistari Eckhart, mikilsmetinn guðfræðingur frá því systir Marianne var ung; Mechthild von Magdeburg, andlegur leiðtogi Begúína-reglunnar sem stofnaði Engelthal-klaustrið; og faðir Sunder, sem hún hafði þegar minnst á.

Þegar samræðurnar snerust loks að klámmyndaferli mínum reyndist hann síst framandi umtalsefni; bara enn eitt málefnið í samtali sem virtist innihalda allt. Hún sýndi starfinu áhuga og spurði margra spurninga sem ég svaraði eins vel og ég gat. Þegar ég lauk máli mínu spurði ég hvort henni þætti óþægilegt að vita við hvað ég hefði fengist.

„Alls ekki,“ svaraði hún og minnti mig á að meira að segja Ágústínus kirkjufaðir hefði lifað nautnalífi áður en hann bað Drottin, eins og frægt varð, um að „gera sig skírlífan – þó ekki strax.“

Munurinn var hins vegar sá, útskýrði ég, að fortíð mín ætti ekki eftir að vísa mér á trúna. Marianne Engel gaf ekkert út á það, hvort sem ástæðan var sú að henni stóð á sama eða þóttist viss um að ég ætti víst eftir að finna Guð. En þar sem samræður okkar höfðu nú þegar imprað á skírlífi spurði ég varfærnislega hvort hún vissi hvað hefði orðið um typpið á mér í eldsvoðanum.

„Læknaliðið tilkynnti mér,“ sagði hún, „að það hefði týnst.“

Svo hún vissi það, en hvað fannst henni? „Og… ?“

„Og það er synd.“

Já, mikið rétt, það var synd. „Ég hélt að þér leiddist að tala við lækna.“

„Það var mikilvægt að ég fengi að heyra um áverka þína svo ég komst ekki hjá því.“

Með þeim orðum lauk samræðum okkar um horfna typpið á mér, sem þegar voru orðnar lengri en ég hafði ætlað þeim.

Í hverri heimsókn jók Marianne Engel íburðinn í klæðnaði sínum og blómstraði sem ný kona. Úlnliðirnir klingdu af armböndum víðs vegar að úr heimsbyggðinni: Asteka-fjöllum, Mayen, Tonka Toy, Ojibwa. Hún var með plasthringi á fingrunum, gula fíla sem hétu Duke Ellifant og Ellafant Gerald. Strigaskórnir voru skreyttir pallíettum sem minntu mig á svífandi mergð hitabeltisfiska. Þegar hún fór út til að fá sér sígarettu lyfti hún fjólubláum kjólfaldinum upp og hneigði sig eins og dama. Ég spurði hvað orsakaði þennan breytta klæðaburð og hún sagði að þar sem allir héldu að hún væri biluð gæti hún eins klætt sig í hlutverkið.

Þetta var áhugavert: fyrsti brandarinn sem hún sagði um geðheilsu sína. Ég bjóst við að nú hefðu flóðgáttirnar opnast og spurði – þar sem hún hafði sjálf rætt slys mitt við læknana – hvernig hún hefði greinst. Hún kæfði samræðurnar með því að segja að læknarnir skildu einfaldlega ekki sérstæðan þokka hennar.

Hún þreifaði ofan í bakpokann sinn og dró upp litla bók í leðurbandi sem hún sagðist vilja lesa upphátt fyrir mig. Infernó eftir Dante. Ég benti á að þetta væri athyglisvert val fyrir brunasjúkling og bætti við að þrátt fyrir ást mína á bókmenntum hefði ég aldrei lesið þessa klassík.

Hún brosti eins og hún vissi eitthvað sem ég vissi ekki og sagðist hafa mjög sterka tilfinningu fyrir því að mér ætti ekki aðeins eftir að falla sagan í geð, heldur líka finnast margt í henni kunnuglegt.

* * *

Marianne Engel sagði sögu af eigin ævi sem náði aftur á fjórtándu öld. Ef lesandinn trúir þessu hlýtur hann að fyrirgefa mér þótt ég miðli smá upplýsingum um Sayuri, svolitlu sem mér var ekki kunnugt um þegar hér var komið í spítalavistinni. Til varnar þessu valhoppi í tíma bendi ég á að fröken Mizumoto sagði mér þetta allt síðar, þegar við höfðum kynnst betur – og saga hennar er að minnsta kosti sönn.

Sayuri var þriðja barn og önnur dóttir Toshiaki og Ayako Mizu­moto. Staða hennar í fjölskyldunni var mesta ólán þar sem hún þýddi að fjórir voru á undan henni í kvöldbaðið. Það er hefð hjá japönskum fjölskyldum að deila með sér einni kerfylli af baðvatni og enda þótt fólk skoli af sér áður en það laugar sig dökknar vatnið með hverjum baðgesti. Faðirinn fer fyrstur og síðan karlpeningurinn í aldursröð. Þá fyrst er röðin komin að konunum, aftur frá þeirri elstu til þeirrar yngstu. Fyrir vikið höfðu faðirinn, eldri bróðirinn, móðirin og eldri systirin öll notað baðvatnið áður en röðin kom að Sayuri. Barnæskuna á enda var hún því daglega gegndrepa af uppsöfnuðum skítnum af fjölskyldu sinni.

Samdráttur Toshiaki og Ayako var tilkominn af omiai, sem þýðir hagkvæmnishjónaband. Hvort sem sambandið logaði af ást eða ekki virkaði það að minnsta kosti sem skyldi, líkt og börnin þrjú báru vitni um. Toshiaki lagði hart að sér á skrifstofunni og lauk deginum á drykkju og karókí; Ayako sá um heimilið og fjármálin og sá til þess að matur væri á borðum fyrir eiginmanninn þegar hann sneri heim ölvaður og aumur í raddböndunum eftir sönginn. Þau uppfylltu allar nauðsynlegar kröfur sem gerðar voru til venjulegra japanskra fjölskyldna og það eina sem Toshiaki og Ayako óskuðu af börnum sínum var að þau gerðu slíkt hið sama.

Fyrsti sonurinn, Ichiro – nafn sem reyndar merkir fyrsti sonur – fór í góðan háskóla. Þess vegna fékk hann gott starf og góð laun hjá góðu fyrirtæki eftir útskriftina; þannig ganga hlutirnir fyrir sig. Reyndar þurfti Ichiro ekki einu sinni að stunda námið að neinu marki eftir að hann fékk ingöngu, því mestu varðaði að sækja rétta háskólann; minna um lærdóminn. Eftir að hann fékk starfið vann hann í nokkur ár áður en hann giftist góðri japanskri stúlku af góðri fjölskyldu á góðum aldri. Svo vill til að góður aldur fyrir japanska stúlku er yngri en tuttugu og fimm ára því þá breytist hún í „jólaköku.“ Jólakökur eru, eins og allir vita, girnilegar fyrir tuttugasta og fimmta en verða fljótt þurrar eftir það og settar upp í hillu. Eiginkona Ichiros var tuttugu og þriggja ára og því langt frá því að vera komin á síðasta söludag. Toshiaki og Ayako voru ánægð; Ichiro myndi erfa fjölskylduheimilið og sjá um grafir foreldranna eftir að þau féllu frá.

Systir Sayuri, Chinatsu – indælt nafn sem þýðir þúsund sumur – fór líka í góðan háskóla, fékk svo vinnu sem skrifstofustúlka og giftist þegar hún var tuttugu og fjögurra og hálfs. Mátti ekki seinni vera. Hún hætti að vinna og hellti sér út í barneignir. Aftur voru foreldrarnir ánægðir.

Síðan var röðin komin að yngstu dótturinni, vandræðagemsanum Sayuri. (Nafnið hennar þýðir litla lilja. Það verður ekki af Japönum tekið að þeir eru meistarar í nafngiftum).

Sayuri var nokkru yngri en Chinatsu. Foreldrar hennar hefðu aldrei gengið svo langt að kalla hana slys en nefndu einstaka sinnum að hún hefði ekki verið „planlögð.“ Foreldrar hennar viðurkenndu líka, ef á þau var gengið, að óplanlagðir hlutir eiga til að vera til vandræða, en á hinn bóginn væri raunin sú að ef tvö börn væru góð hlyti þriðja barnið að vera þriðjungi betra. Því verður aldrei sagt að foreldrar Sayuri hafi iðrast fæðingarinnar þótt Sayuri hafi hins vegar kunnað nóg fyrir sér í reikningi til að vita að þegar einum er bætt við tvo eykst upphæðin um helming, ekki þriðjung.

Ichiro og Chinatsu höfðu bæði fetað rétta slóð og gert það sem ætlast var til af þeim. Mynstrið hafði verið vandlega treyst, brotið snyrtilega saman og lagt til hliðar eins og fínn kímono; þetta mynstur réttrar hegðunar var nánast erfðagripur sem gekk á milli kynslóða. Það eina sem Sayuri þurfti að gera til að viðhalda fullkomnun foreldra sinna var að fylgja fordæmi eldri systkinanna. En því miður var þetta það allra síðasta sem hana langaði til að gera. Ef hún gerði það, sagði hún, yrði hún dæmd til að eyða ekki aðeins bernskunni, heldur allri ævi sinni í skítuga baðvatninu af fjölskyldu sinni.

Vandinn var sá að Sayuri var ekki viss um hvað hana langaði til að gera. Svo hún hélt sér saman og beið síns tíma. Hún lagði hart að sér í menntaskólanum en þegar foreldrarnir sáu ekki til notaði hún allar frístundir sínar í að læra ensku. Án vitneskju foreldranna, sem héldu að Sayuri væri á blakæfingu, kom kona að nafni Maggie á hverju þriðjudagskvöldi til að kenna henni. Á laugardagskvöldum fór Sayuri í bíó, ekki sér til skemmtunar, heldur til að læra að tala eins og Jodie Foster, Susan Sarandon og (því miður) Woody Allen. Á sunnudagseftirmiðdögum sótti hún söfn til að elta uppi bandaríska túrista og ef hún náði að króa einn þeirra af bað hún hann að tala við sig í fimm mínútur svo hún gæti æft enskuna sína. Ferðamennirnir játtu þessu allir, því hver gat hafnað svo krúttlegri ákefð? Á sama tíma fyllti Sayuri samviskusamlega út umsóknir til allra réttu japönsku háskólanna og fékk inni í einum þeirra. Foreldrar hennar voru ánægðir. Nú þurfti Sayuri bara að útskrifast, vinna í nokkur ár sem skrifstofustúlka og komast í hnapphelduna fyrir tuttugu og fimm ára aldurinn.

Skömmu eftir menntaskólaútskriftina heimsótti Sayuri ástralska sendiráðið, ásamt Maggie, til að sækja um atvinnuleyfi. Viku seinna hringdi hún í foreldra sína frá Sydney-flugvelli. Óþarft er að taka fram að þeir voru allt annað en ánægðir, ekki aðeins með þessa bráðlátu og móðgandi ákvörðun heldur líka vegna þess að hún hafði ekki einu sinni haft kjark í sér til að kveðja áður en hún fór úr landi.

Í raun var ákvörðun Sayuri þó ekki stýrt af heigulsskap, heldur umframkjarki. Hefði hún reynt að rökræða við foreldra sína hefðu þeir aldrei leyft henni að fara. Rifrildið hefði verið óvinnandi fyrir Sayuri, og jafnóhugsandi fyrir hana að tapa því, og því gerði hún einfaldlega það sem hún þurfti að gera til að hefja líf sitt á eigin forsendum. Í fyrstu héldu foreldrar Sayuri að hún væri að grínast – hún gat varla verið að hringja í þau frá Ástralíu, var það? Hún gat varla ætlað sér að dvelja þar, var það? Þegar þau meðtóku loks stöðuna eins og hún var brugðust þau við með hótunum og fagurgala. Sayuri skellti á þar sem það hefði engu breytt að hanga lengur í símanum.

Hún dvaldi eitt ár í Ástralíu við ýmis konar störf: húsamálun, ávaxtatínslu, þjónustustörf, japönskukennslu og svo framvegis. Hún varð æ sólbrúnni, brosmildari og betri í ensku. Stærsti vandinn við að búa í vestrænu landi var að þurfa að kaupa föt í barnadeildinni þar sem hún var jafnvel smávaxin á japanskan mælikvarða. (Af þessum sökum voru það örlög hennar í útlandinu að líta út eins og barnsdúkka.) Sayuri hringdi í foreldra sína einu sinni í mánuði – alltaf úr nýjum og nýjum tíkallasíma – til að láta þau vita að henni liði vel og hlusta á grátbænir þeirra um að hún sneri til baka. Stundum reyndi Ichiro að gæða samræðurnar þunga með elsta-bróður-röddinni en hún virti hann sömuleiðis að vettugi.

Þegar atvinnuleyfi Sayuri rann út sneri hún aftur til Japan. Móðir hennar grét og faðir hennar æpti, jafnvel þótt hluti af honum hrifist af því sem hún hafði gert. Sayuri tilkynnti þeim að hún ætlaði að fara í bandarískan háskóla og ná sér í próf. Næsta árið vann hún þrjú hlutastörf, náði öllum tilskildu ensku stöðuprófunum og fékk inngöngu í sjúkraþjálfun í Michigan-háskóla. Þegar hún var ferðbúin grét móðir hennar öðru japönsku stórfljóti. Faðirinn hafði hins vegar, þegar hér var komið, fallist á allar fáránlegu hugmyndirnar sem yngsta dóttir hans ól með sér. Þegar Toshiaki bauðst til að greiða hluta af skólagjöldunum faðmaði Sayuri hann fast og lengi. Hann vissi ekki almennilega hvernig hann átti að bregðast við og stóð því eins pinnstífur og hann gat.

Sayuri lauk prófi með ágætiseinkunn og fékk starf á spítalanum þar sem hún átti að lokum eftir að hitta mig. Löngu áður en ég kom til sögunnar hafði hún greitt föður sínum til baka hvert einasta jen sem hann hafði gefið henni til menntunarinnar.

* * *

Doktor Hnatuiuk kom og heilsaði upp á mig á nokkura daga fresti með nýja sálfræðibók. Ég var farinn að kunna vel við hann. Ég á erfitt með að segja af nokkurri nákvæmni hvænær skoðun mín á honum breyttist. Að minnsta kosti hrópaði ég aldrei fram vitranir um stórbrotna kosti jarðíkornans. En hann vann mig á sitt band og kannski hafði það sitt að segja að hann hætti að reyna að höfða til mín eins og læknir andspænis sjúklingi og leyfði samræðunum einfaldlega að ganga sinn gang. Hann kunni líka að meta steindrekann sem Marianne Engel hafði fært mér, ólíkt Beth sem kallaði hann „viðbjóðslegan smáhlut.“ Það sem varð þó endanlega til þess að ég tók Gregor í sátt var sú staðreynd að á bak við uppburðarlitla ásjónu hans leyndist ástríðufullur maður sem lét sig starf sitt miklu varða. Einn eftirmiðdaginn hélt hann langa ræðu um hvernig lögfræðingar, að hans mati, hafa verið stærstu óvinir geðheilbrigðisþjónustunnar síðustu hálfa öldina. Hann sagði mér hvernig þeir berðust fyrir réttindum sjúklingsins – sem væri gott og blessað – en gengju hins vegar svo langt í baráttu sinni að ekki var hægt að hafa eftirlit með sjúklingi sem át sinn eigin saur. „Láttu lögfræðingana um að breyta skít í heilsufæði.“

Eftir því sem vikurnar liðu mátti greina skýra breytingu á útliti Gregors. Hann hætti að ganga í dúskuðu mokkasínunum og illa sniðnu flókaskinnsbuxunum og tók að klæða sig í föt sem virtust allt að því passa á hann. Jafnvel þótt hann yrði tæplega kallaður „smart“ stakk hann að minnsta kosti ekki verulega í stúf í hefðbundnu umhverfi. Hann stundaði ræktina nógu stíft til að roðinn í kinnunum virtist ekki lengur stafa af ofreynslu í stigagangi og mörinn sem áður huldi miðbik hans var á talsverðu undanhaldi.

Gregor spurði mig aldrei hvers vegna ég lægi í sálfræðibókum en svaraði glaður öllum spurningum mínum um geðklofa. Þótt ég hefði aldrei minnst á hana í samræðum okkar leyfði ég mér að impra á því einn daginn (ekki af algjörri rælni) að ég óttaðist að vinkona mín HÚN ER EKKI VINKONA ÞÍN kynni að þjást af sjúkdómnum. HÚN ER BARA VITFIRRT KONA.

„Ég veit,“ sagði Gregor. „Marianne Engel.“

Gregor virtist ánægður með að hafa orðið fyrri til að nefna hana á nafn en líklega hafði Nan ráðfært sig við hann þegar hún reyndi að sannfæra mig um að hætta að taka á móti henni. Gregor sagði mér að hann hefði haft hana nokkrum sinnum til meðferðar, síðast þegar hún var lögð inn fyrir að „tala við drauga“ á almannafæri. SJÁÐU? Ég spurði hann hvers vegna hann hefði aldrei minnst á þetta áður og hann nefndi Hippókratesareiðinn og bætti því við að hann myndi ekki segja neitt meira um hana en hann hafði þegar gert.

„Þar fyrir utan,“ sagði hann, „mun ég aldrei staðfesta eða hrekja greiningu á geðklofa.“ Honum fannst rétt að benda á að hann ræddi þetta ekki við hvern sem var en ég sagði að hann mætti hafa eftir mér það sem hann vildi, enda væri ég ekki sjúklingur hans. Þá sagði hann að við værum engu að síður á spítala þar sem ég væri sjúklingur og hann læknir og það væri að hans mati næg ástæða til að gæta trúnaðar. Ég lét í ljós þá skoðun mína að geðlæknar væru upp til hópa gagnslausir og mér væri alveg sama hvað þeim (sem sagt honum) fyndist um mig.

„Æ, það er kannski rétt að við gætum margir staðið okkur betur,“ viðurkenndi Gregor, „en okkur ratast þó stundum rétt orð á munn. Til dæmis á ég auðvelt með að greina stærsta skapgerðarbrestinn þinn, af öllum þeim sem eru í boði.“

„Og hver er hann?“

„Þú heldur að þú sért klárari en allir aðrir.“

* * *

Að frátöldum þeim næstu vikulöngu tímabilum sem Marianne Engel lét sig hverfa kom hún nú nærri daglega á brunadeildina. Hún fór að hjálpa mér við æfingarnar, studdi höndum undir iljarnar á heila fætinum og veitti mótstöðu á meðan ég þrýsti eins og einfættur hjólreiðamaður.

„Ég talaði við Edwards lækni,“ sagði hún. „Hún gaf mér leyfi til að koma með svolítinn mat handa þér.“

Þar sem hún var farin að tala við lækninn minn bað ég hana um leyfi til að ræða hennar mál við einn læknanna sem sáu um meðferðina hennar. Nánar tiltekið doktor Hnatiuk.

Hún sagðist ekki vilja að ég ræddi hennar mál við nokkurn og var móðguð yfir því að ég skyldi spyrja. Ég af öllum ætti að vita að hún væri ekki geðveik.

Vandræðalegri þögn sló andartak á samræðurnar þar til Marianne Engel hjó hana í tvennt og sagði: „Paracelsus skrifaði uppskrift að brunasmyrsli sem innihélt villisvínafitu, orma úr hauskúpu hengds manns og hluta úr múmíu. Kássan var grilluð fyrir notkun.“ Að þessu sögðu hélt hún áfram að fræða mig um skinnágræðslu, uppruna hennar á meðal Hindúa til forna, allt til okkar daga. Ég tók upp eitt sárabindið af fótleggjunum til að sýna henni græðivefina mína, þar á meðal svolítið af svartri húð. Þar sem skinnið hafði verið skorið í litla ferninga og fest þannig til að teygja á henni líktist fóturinn einna helst aflöguðu skákborði.

„Ef þú værir rasisti,“ sagði hún og strauk fingrunum yfir spilaborð líkama míns, „þá væri þetta nú heldur betur hár í súpunni þinni.“

Fingur hennar gældu blítt við eyðilandið. Þeir færðu sig upp búkinn og að hálsinum á mér, með viðkomu á öxlunum þar sem þeir renndu sér eftir línunum. „Hvernig er að vera í húðinni af öðrum?“

„Ég er ekki með gott svar við því,“ sagði ég. „Það er sárt.“

„Manstu eftir sögunum þeirra? Finnurðu ástina sem þeir fundu til?“

Það var stundum erfitt að átta sig á því hvort Marianne Engel vænti raunverulega svars af mér eða væri bara að stríða. „Er þér alvara?“

„Þetta minnir mig á okkur,“ hélt hún áfram. „Og þá langar mig að sauma mig á þig, eins og húð.“

Ég ræskti mig.

„Vissurðu,“ spurði hún, „að líkami minn er líka merktur?“

Ég vissi hvað hún meinti. Þegar hún klæddist stuttermabolum var ómögulegt að leiða hjá sér húðflúrin með latnesku orðtökunum sem hringuðu sig um upphandleggina. Á vinstri handleggnum var setningin Certum est quia impossibile est. Ég spurði hvað þetta þýddi og hún sagði: „Það er öruggt vegna þess að það er ómögulegt.“ Á hægri handleggnum var setningin Quod me nutrit, me destruit. Þetta sagði hún að þýddi: „Það sem nærir mig tortímir mér einnig.“

„Ég skil þetta ekki,“ viðurkenndi ég.

Hún hló. „Jæja. Það er nú bara vegna þess að þú hefur enn ekki séð mig rista í stein.“

Síðan gerði Marianne Engel svolítið. Hún snerti á mér andlitið.

Það er bara örlítið, að láta snerta á sér andlitið. En hugsaðu um allar brenndu og ástlausu skepnur þessa heims. Hugsaðu um fólkið sem man ekki lengur eftir því hvað snerting getur verið blíð. Fingur hennar gældu við hörmungina og hvörfluðu undir sárabindin til að snerta leifarnar af andliti mínu. Fingur hennar fóru af ástúð um innbundinn vangann og brutu sér torvelda leið að vörunum. Þeir hvíldu þar blíðlega eitt andartak. Ég hallaði aftur sviðnum augnlokunum, lítil ör völsuðu um í grópinni þar sem þau höfðu verið saumuð aftur nokkrum vikum fyrr. Hjarta mitt steig klaufskan dans í helli brjóstholsins og allan tímann unnu innsiglaðir svitakirtlarnir yfirvinnu við að svitna ekki.

„Hvernig er andlitið á mér viðkomu?“

„Eins og að eyðimörkin eftir sandstorm.“

Ég var aðframkominn af löngun til að segja henni að ég hefði verið fallegur fyrir slysið, en ég gerði það ekki. Hvaða tilgangi þjónaði það? Síðan teygði ég fram nothæfu höndina til að snerta vanga hennar. Hún hrökklaðist ekki undan: nei. Ekki minnstu vitund.

„Góðir hlutir gerast,“ hvíslaði Marianne Engel áður en hún stóð upp og gekk út í horn til að tala við ósýnilegu meistarana þrjá. Það var augljóst, meira að segja á latínu, að hún bað þá um leyfi til að gera eitthvað. „Jube, Domine benedicere.“

Þegar hún kom aftur að rúmstokknum mínum gaf bros hennar til kynna að ósk hennar hafði verið uppfyllt. „Myndirðu vilja sjá hin húðflúrin mín?“

Ég kinkaði kolli og hún byrjaði að strjúka gegnum stríðan hárflókann á sér og togaði hann upp svo að aftanverður hálsinn kom í ljós þar sem var flúraður lítill kross, vafningur þriggja samfléttaðra kaðla án enda. Hún bað mig að snerta hann. Ég gerði það. Ég strauk fingrunum eftir honum endilöngum, upp og til hliðar þannig að ég gerði í raun krossmark á húð hennar.

Hún fór úr skónum. Kringum vinstri ökklann var flúrað talnaband með perlum, þvert niður ristina. Með þessum hætti, sagði hún, yrði hún alltaf tilbúin ef hún þyrfti að vinna yfirbót. En hún brosti og það var augljóst að sjálf tók hún þessa yfirlýsingu ekki mjög alvarlega.

Næst fór hún úr buxunum – nokkuð sem ég bjóst ekki við því kvikmyndir hafa á einhvern hátt skilyrt mig til að halda að konur afklæðist alltaf fyrst að ofan. Hún var ekki í nærfötum og því stóð hún á hvíta stuttermabolnum einum fata, með áprentaðri mynd af Beethoven að drekka sig undir borð. (Áletrunin? „Beethoven’s Ninth.“)

Snákur var flúraður eftir endilöngum hægri fótleggnum, á nákvæmlega sama stað og drekinn var bróderaður á buxurnar. Hann vafði sig um hana á sama hátt og biblíumyndir sýna snákinn í vafningi um viskutréð. Marianne Engel sneri að mér og ég sá líkama snáksins fyrst birtast við hnéð, skríða upp og vefja sig tvisvar í kringum lærið, hvíla demantslaga höfuðið í nára hennar og leita upp í sköpin.

Augu hennar störðu á mig. Hún fór úr Beethoven-bolnum með því ærna erfiði sem fylgdi því að hnykkja honum yfir flókann þar til hún stóð kviknakin í miðju herberginu, ef frá er talið örvaroddsmenið sem hékk um háls hennar.

Síðan ég kom á brunaganginn hafði ég einstaka sinnum orðið örvaður. Maddy hafði gert sitt besta til að stríða mér með dillandi rassinum og stundum leit hún meira að segja um öxl til að sjá hvort það bæri árangur. En þetta var í fyrsta sinn sem ég var að fullu kynferðislega æstur. Andlega, í það minnsta; ég framleiddi enn hormónin sem stýra blóðinu til reisnar, ég átti bara ekkert sem gat framkallað þessa reisn. Ég ímyndaði mér að það safnaðist þar saman og léti nárann á mér roðna.

Annar kross og miklu stærri en sá á hálsinum var teiknaður á magann. Hann var með keltnesku lagi, armarnir fjórir mættust í hringlaga spíral í miðjunni. Sporöskjulaga umgjörð lá í kringum herlegheitin, ílöng frá mjaðmagrind upp að rifjabeinum þar sem þrír höfuðstafir – „IHS“ – tróndu fyrir ofan.

Á vinstra brjósti hennar var stórt flúr af helga hjartanu, skínandi rauðu, hringuðu þyrnikórónu. Gulir logar gleyptu hjartað og sindruðu upp á við, í átt að öxl hennar.

Hún kom að rúmstokknum svo ég gæti gaumgæft smáatriðin á alflúruðum líkama hennar og sagði mér að snerta nafn Krists. Ég gerði það og um leið breiddist gæsahúð um líkama hennar undan snertingu ósködduðu handarinnar.

Hún sneri sér þannig að hún sat á rúmbríkinni og vísaði í mig baki. Englavængir breiddu úr sér frá öxlum niður að rasskinnum þar sem vængbroddarnir hvíldust. Vængirnir huldu allt bak hennar og ég stóðst ekki mátið að lyfta að þeim höndinni. Það var líkt og mér fyndist ég eiga rétt á að snerta húð hennar, eins og hún væri mín til að snerta. Það tók mig andartak að átta mig á því að svo væri ekki – það gæti ekki verið – og hönd mín nam staðar á miðri leið. Hún hékk þar í óvissu þar til Marianne Engel sagði án þess að snúa sér við: „Ég vil að þú snertir mig.“

Svo ég teygði mig alla leið og strauk fingrunum eftir skýrt dregnum blekfjöðrunum sem þó voru svo fínlegar og listilega gerðar að maður fann næstum fyrir dúninum. Holdið á baki hennar skalf, og það sama gerði hjarta mitt.

Eftir fáein andartök leit hún feimnislega yfir öxl sína. Hún brosti – viðkvæm, spennt – og ég rauf snertinguna. Hún stóð upp og byrjaði að klæða sig. Við sögðum ekkert. Eftir að hún var klædd fór hún út úr herberginu.

* * *

Engar fullnægjandi rannsóknir segja til um hvenær best er að fjarlægja gifs af brunasjúklingum, þar sem vöðvarýrnun flækir óhjákvæmilega málin. Á endanum varð Edwards læknir að treysta á hyggjuvitið til að ákveða hvenær ætti að fjarlægja vírkóngulóna af löppinni á mér.

Brottnámið kallaði fram glóð í augum Sayuri sem hafði klæjað í fingurgómana að fá mig upp úr rúminu. Hún klappaði tvisvar saman höndum með mjög leikrænum tilburðum. „Ertu tilbúinn? Ertu genki? Það er komið að því!“

Maddy og Beth voru komnar til að hjálpa, klæddar bláum sloppum og gulum stríðshönskum. Þær teygðu á fótum mínum í nokkrar mínútur og létu mig svo stíga fótstig til að liðka burtu stirðleikann. Að því loknu hlykkjuðu þær hvor sinni hendinni fyrir aftan bakið á mér, toguðu mig upp í réttstöðu og héldu mér föstum á meðan sviminn leið hjá. Smám saman losuðu þær svo um takið þar til ég stóð á eigin fótum.

Í fyrsta sinn síðan eftir slysið stóð ég uppréttur. Sayuri hrópaði upp sekúndurnar sem liðu – „… sex … sjö … átta!“ – þar til fæturnir breyttust úr ósoðnu spagettí í soðið. Á einu andartaki þaut blóðið niður líkama minn líkt og það myndi allt í einu hvernig þyngdarlögmálið virkaði og spratt fram úr skurðsvæðunum. Fótabindin á mér roðnu­ðu vandræðaleg yfir vanhæfni sinni; stund yfirliðsins var runnin upp.

Konurnar lögðu mig aftur til hvílu og hrósuðu mér fyrir árangurinn. Þegar hugur minn róaðist eftir lóðréttuna kom ég auga á Edwards lækni í dyragættinni, brosandi út að eyrum.

Fyrir tilraunina hefði ég sagt – með minni svölustu harðnaglarödd – að útkoman skipti engu. Að standa uppréttur var ómerkilegra afrek en nokkur barnaleikur. Ef manni færi að þykja það merkilegt, hvað færi maður þá að upphefja næst? Þótt ég hafi ekki viljað njóta fagnaðarlátanna hljómuðu þau ósvikin. Konurnar voru stoltar af mér og, gegn betri vitund, þá var ég líka stoltur af mér sjálfur.

Í stað þess að gera lítið úr þessu afreki breyttist ég í glottandi örvita. Ég þakkaði öllum fyrir hjálpina og saknaði þess eins að Marianne Engel skyldi ekki hafa séð mig.

* * *

Ég bjóst við að sofa eins og ungbarn þetta kvöld en gerði það ekki. Svefninn var uppfullur af óhroða.

Mig dreymdi að Sayuri hefði reist mig við og sleppt mér án viðvörunar. Hrúgaldið af sjálfum mér hrundi niður; ég fann hvernig snákurinn í hryggnum iðaði til. HELDURÐU AÐ ÞÚ GETIR STAÐIÐ ÓSTUDDUR? Nan notaði lamaðan skrokkinn á mér sem píluspjald og hjúkkurnar fimmuðu hver aðra af ánægju yfir að mér skyldi hafa mistekist. Ég leit undir beinagrindarrúmið. Þar voru logar, þúsund kerti. Mig langaði að teygja mig í þau til að kæfa eldinn en það var líkt og einhver hefði slökkt á vöðvastarfsemi handleggjanna og gert mig að strengjalausri brúðu. Úr andlitum loganna störðu á mig reiðileg bros og klofnar tungurnar sleiktu beinagrindarrúmið, líkt og gneistar stæðu af brennandi líkklæðum. Allt í kring hrundu bein til jarðar og skröltu af heift eins og hrapandi vinnupallar.

Læknaliðið hló meira. Ein hjúkrunarkvennanna tilkynnti á harðneskjulegri þýsku: „Alles brennt, wenn die Flamme nur heiß genug ist. Die Welt ist nichts als ein Schmestiegel.“ Svo virðist sem í draumum sé ég eins og Marianne Engel: fjöltyngdur. Allt brennur ef loginn er nógu heitur. Heimurinn er ekkert nema deigla.

Ég lá fastur undir beinahrúgunni á meðan líkklæðin héldu áfram að brenna. Andlitin í logunum brostu hatursfullum brosum sínum; svikular tungurnar sleiktu, sleiktu, sleiktu. NÚ KEM ÉG OG ÞAÐ ER EKKERT SEM ÞÚ GETUR GERT Í ÞVÍ. Ég heyrði hvin í örvum. Ég fann þær stingast í hendur mínar, og ég fann þær stingast í fætur mína.

Mig dreymdi langan, óralangan bruna og þegar honum lauk loks og ég vaknaði í sveimandi loftrúminu var ég úti á þekju, þreifandi eftir staðfestingu á því hvorum megin vitundarinnar ég var.

* * *

Ég sagði Marianne Engel frá því hvernig mér tókst að standa á eigin fótum í átta sekúndur í fyrsta skipti sem ég reyndi, og frá höfuðafrekinu í næstu tilraun, þegar ég stóð í þrettán sekúndur. Hún reyndi að veita þessu þá athygli sem það átti skilið en var augljóslega annars hugar út af einhverju.

„Hvað er að?“

„Hmm? Nei, nei, það er ekkert að plaga mig.“ Hún renndi fingrinum á mjög sýnilegan hnúð á öxlinni á mér sem hafði stækkað með hverjum deginum. „Hvað er þetta?“

„Þetta kallast vefjavíkkun“

Ég útskýrði fyrir henni að undir húðinni væri lítill sílíkonhnoðri og að á hverjum degi sprautuðu læknarnir ögn meira af saltvatni inn í hann. Eftir því sem hnoðrinn stækkaði teygðist á húðinni, alveg eins og þegar manneskja fitnar. Á endanum yrði hnoðrinn tæmdur og ég sæti eftir með flipa af umframhúð sem yrði fluttur af öxlinni á viðtökusvæði á hálsinum.

„En spennandi. Ég vildi að ég hefði getað gert eitthvað svona fyrir þig í fyrsta skiptið.“

„Ha?“

„Skiptir ekki máli.“ Hún kom aftur við hnúðinn og brosti. „Vissirðu að vaxtarkýli minna mig alltaf á ígerðina sem fylgir svarta dauða?“

„Ha?“

„Ég á vin …“ Orð hennar dóu út og hugsunin virtist flögra í burtu. Í nokkrar mínútur sat hún og starði út í loftið. Hún virtist viðþolslaus, hendurnar á enn sífelldara iði en þegar hún rúllaði ótendraðri sígarettu milli fingranna eða fiktaði í hálsmálinu. Það var líkt og þær vildu opna gátt að sögu sem hún hafði fram til þess leynt mig.

Að lokum kinkaði hún kolli í átt að náttborðinu mínu. Á því var stafli af sálfræðibókum sem hún hafði alltaf gert sér far um að virða að vettugi. „Þú ert að lesa þér til um mig,“ sagði hún. „Ætti ég að leigja eina af klámmyndunum þínum til að skilja þig betur?“

Þetta var nokkuð sem ég vonaðist til að hún gerði aldrei þótt mér fyndist ég ekki hafa gefið það í skyn. Ég bað hana að lofa mér því að hún myndi aldrei horfa á eina af myndunum mínum.

„Ég hef sagt þér að mér er sama,“ sagði hún. „Skammastu þín?“

Ég fullvissaði hana um að svo væri ekki; ég vildi bara ekki að hún horfði á þær. Þetta var sannleikurinn en bara hluti af honum: ég vildi ekki að hún horfði á þær vegna þess að ég vildi ekki að hún sæi hver ég hafði verið og bæri hann saman við hver ég var orðinn. Ég vildi ekki að hún sæi karlmennskuna, slétta húðina og stæltan líkamann, og þurfa síðan að horfa upp á forsmánina sem breiddi úr sér í rúminu fyrir framan hana. Ég gerði mér grein fyrir að þetta var ekki rökrétt, að hún hlyti að vita að ég hafði eitt sinn verið óbrenndur, en ég vildi ekki að hún sæi þetta í enn afdráttarlausara samhengi. Ef hún gat sætt sig við mig eins og ég var þá var það kannski bara vegna þess að hún hafði engan samanburð.

Marianne Engel gekk að glugganum mínum og starði út um hann andartak áður en hún sneri við og sagði flausturslega: „Mér finnst óþolandi að yfirgefa þig og ég vildi að ég gæti alltaf verið við rúmstokkinn þinn. Þú verður að skilja að þegar ég fæ boðin ræð ég mér ekki sjálf.“

Þetta var eitt fárra skipta sem ég skildi nákvæmlega hvað gekk á hjá henni: hana langaði að deila með mér leyndarmáli en vissi að það var þess konar leyndarmál sem fæst fólk gat skilið. Það var mikilvægt að segja það upphátt en hún óttaðist að það hljómaði fáránlega. Eins og það hljómar til dæmis fáránlega að útskýra fyrir manneskju að inni í hryggnum á manni búi snákur.

„Þegar ég vinn sef ég ofan á grjótinu,“ byrjaði Marianne Engel og dró djúpt andann, „í að minnsta kosti tólf klukkutíma en oftast lengur. Það er undirbúningur. Þegar ég ligg ofan á grjótinu finn ég fyrir því. Ég finn fyrir heild þess, öllu sem er inni í því. Það er … hlýtt. Líkami minn sekkur í útlínur þess og mér finnst ég þyngdarlaus, eins og ég fljóti. Einhvern veginn – glata ég hæfileikanum til að hreyfa mig. En það er dásamlegt; það er andstæða doða. Það er meira eins og ég sé svo meðvituð, svo ofurmeðvituð að tilfinningin bugar í mér kvikuna.“

„Hvað meinarðu,“ spurði ég, „þegar þú segist finna hvað er inni í grjótinu?“

„Ég drekk í mig drauma steinsins og drekarnir innra með honum segja mér hvað ég eigi að gera til að frelsa þá. Þeir sýna andlit sín og garga á mig hvað ég þurfi að höggva burt til að gera þá heila. Þegar ég hef fengið nægar upplýsingar byrja ég. Líkami minn vaknar en hann skynjar ekki tímann. Ekkert er nema vinnan. Dagar líða áður en ég átta mig á því að ég hef ekki sofið og varla borðað. Mér finnst ég grafa eftirlifendur upp úr grjótskriðu tímans sem hefur safnast upp frá örófi og skyndilega hrunið niður fjallið. Steindrekarnir hafa alltaf verið inni í steinunum en á nákvæmlega þessu andartaki verður þeim ólíft þar. Þeir hafa legið í vetrardvala steinsins og vorið býr í meitlinum mínum. Ef ég næ að höggva burt réttu brotin sprettur drekinn fram eins og blóm úr klettabakka. Ég er sú eina sem er fær um það því ég skil tungumálin þeirra og ég er sú eina sem get gefið þeim hjörtun sem þeir þarfnast til að hefja sín nýju líf.“

Hún þagnaði og virtist bíða eftir að ég segði eitthvað, hvað sem er – en hvernig svarar maður yfirlýsingum eins og þessum? Þar sem hún vildi að ég tjáði mig og ég vildi að hún héldi áfram að tala sagði ég henni að þetta hljómaði eins og einstaklega skapandi ferli.

„Nei, þvert á móti. Ég er brunnur sem vatni er hellt í þar til það vellur upp úr. Þetta er hringur, fljótandi hringur milli Guðs og steindrekanna og mín, því þannig er Guð – hringur sem á sér alltumlykjandi miðju en enga umgjörð. Og í hvert sinn sem ég hegg út verða raddir steindrekanna hærri og hærri. Ég vinn eins hratt og ég get því ég vil að raddirnar hætti en þær hvetja mig stöðugt áfram og heimta að ég hjálpi sér til að öðlast frelsi. Raddirnar þagna ekki fyrr en ég er búin og þá er ég svo uppgefin að röðin er komin að mér að sofa. Það tekur langan tíma að frelsa steindreka og jafna sig eftir það. Ég ræð engu um það hvenær steindrekinn er tilbúinn og ég get ekki hafnað honum. Þú verður að fyrirgefa mér að ég skuli hverfa, ég hef ekkert val.“

* * *

Gott og vel. Núna vissi ég að minnsta kosti hvað hún gerði við fjöldahjörtun sem hún hélt að byggju í brjósti sér. Þau fóru inn í stytturnar sem hún hjó út.

Darmowy fragment się skończył.

44,09 zł
Ograniczenie wiekowe:
0+
Data wydania na Litres:
15 listopada 2024
Objętość:
551 str. 3 ilustracji
ISBN:
9789979642138
Wydawca:
Właściciel praw:
Bookwire
Format pobierania:

Podobne książki